Björn Jörundur semur �?jóðhátíðarlagið

Hinn Nýdanski Björn Jörundur Friðbjörnsson semur Þjóðhátíðarlagið í ár en upptökum á laginu er lokið. Þetta kemur fram á Vísi.is en Björn segir lagið ekta fínt Þjóðhátíðarlag. „Ég vandaði mig sem mest ég mátti og ég veit að það tókst vel,“ sagði Björn í samtali við Vísi en hann mun frumflytja lagið í Herjólfsdal á […]

ÍBV tapaði gegn KR

KR lagði ÍBV í dag 0-2. KR-ingar voru mun skipulagðari í leik sínum og uppskeru þeir sigur með tveim mörkum þeirra Baldurs Sigurðssonar og Jónasar Guðna Sævarssonar. Þar með tapaði ÍBV sínum fyrsta leik í sumar en fram að þessu höfðu Eyjamenn unnið tvo leiki og gert eitt jafntefli. (meira…)

Kynningarfundur um Hótel Heimaey

Mánudaginn 20. maí verður kynningarfundur um Hótel Heimaey. Á fundinum kynna aðstandendur verkefnisins hugmyndir sínar um hótel í Hásteinsgryfju við Hlíðarveg. Fundurinn fer fram á veitingastaðnum Kaffi Kró við Tangagötu 7 og hefst kl. 15.00. Í auglýsingu í Eyjafréttum var fundurinn auglýstur klukkan fjögur, en vegna viðureignar ÍBV og KR í knattspyrnu í dag var […]

Toppslagur Pepsídeildarinnar á Hásteinsvelli í dag

ÍBV tekur á móti KR í toppslag Pepsídeildarinnar í dag klukkan 17:00 þegar 4. umferðin hefst. Mikil stemmning hefur verið á Hásteinsvelli í fyrstu tveimur heimaleikjum ÍBV, yfir eitt þúsund manns hafa mæt á völlinn og má búast við öðru eins í dag, enda leikir liðanna ávallt skemmtilegir. Bæði lið hafa farið mjög vel af […]

Sölvi með flottar myndir í alþjóðlegri keppni

Eyjamaðurinn Sölvi Breiðfjörð, háseti á Guðmundi VE er nokkuð lunkinn ljósmyndari og hefur myndað bæði til sjós og lands. Hann hefur nú sent þrjár myndir inn í ljósmyndakeppni á vefnum FineArtAmerica, sem er ört vaxandi, alþjóðleg listaverka- og ljósmyndasíða með um 150 þúsund virka þátttakendur frá öllum heimshornum. Ein myndanna má sjá hér að ofan […]

ÍBV og Valur skildu jöfn

Valur tók á móti ÍBV að Hlíðarenda í hörkuleik í dag. Liðin skildu jöfn 3-3 en mörkin hefðu getað orðið mun fleiri en markmaður Vals, Þórdís átti stórleik í marki Vals og áttu leikmenn ÍBV í stökustu vandræðum með að koma boltanum framhjá henni. Sanngjörn úrslit í þessum stórskemmtilega leik. (meira…)

Active opnar við Strandveg

Ný verslun, Active opnaði í gær við Strandveg 45a, eða þar sem La Tienda var áður til húsa og Oddurinn fyrir þá sem muna enn lengra til baka. Eigendur verslunarinnar eru hjónin Karen Inga Ólafsdóttir og Sæþór Orri Guðjónsson en Karen hefur haldið úti vefverslun undir saman nafni í meira en eitt ár. Í Active […]

Sýning á gosmyndum eftir grunnskólabörn á annan í hvítasunnu

Í tilefni af því að nú eru 40 ár liðin frá því eldgosið í Heimaey hófst og lauk bjóða Listvinir Safnahúss til óvenjulegrar myndlistarsýningar í Einarsstofu. Í eigu bæjarins er málverk eftir Steinunni Einarsdóttur þar sem hún túlkar eldgosið eins og það birtist henni svo fjarri heimahögum, en hún bjó í Ástralíu á þeim tíma. […]

Íbúakönnun um hótel við Hástein

Vestmannaeyjabær ákvað á fundi sínum 6. maí sl. að leita til bæjarbúa með stórt skipulagsmál. Spurt verður hvort bæjarbúar vilji að Vestmannaeyjabæ veiti heimild fyrir byggingu 120 herbergja hóteli á lóð í Hásteinsgryfju. Mig langar til að lýsa mikilli ánægju minni með það að Vestmannaeyjabær standi fyrir íbúakönnun um þetta mál og vona að tónninn […]

Vinnslustöðin kaupir hlutabréf í Stíganda ehf.

Í gær var undirritaður samningur um kaup Vinnslustöðvarinnar hf. á hlutabréfum í útgerðarfélaginu Stíganda ehf. í Vestmannaeyjum. Skrifað var undir samninginn með fyrirvara um samþykki samkeppnisyfirvalda og hluthafafundar VSV. (meira…)

Er spenntur fyrir nýju hóteli

Sverrir Hermannsson, eigandi Hring hótels segir ekki rétt að samstarfssamningur liggi fyrir um rekstur hótels sem fyrirhugað er að byggja í Hásteinsgryfju. „En ég hef rætt við þá aðila sem ætla að reisa Hótel Heimaey og það liggja fyrir drög að samstarfssamningi. Forsenda þess að hægt sé að undirrita slíkan samning, er að lóðinni verði […]

Virðing hf en ekki lífeyrissjóður kemur að fjármögnun hótels

Vegna fréttar á forsíðu Eyjafrétta í gær skal tekið fram að það er ekki lífeyrissjóðurinn Virðing sem kemur að fjármögnun fyrirhugaðrar hótelbyggingar, eins og fram kemur í fréttinni, heldur Virðing hf. Beðist er velvirðingar á þessum mistökum ritstjórnar en fréttina má lesa leiðrétta hér að neðan. (meira…)

James bæði ánægður og leiður

David James var bæði leiður og ánægður með leikinn gegn FH. Hann segir í samtali við vefinn Sport.is að hann væri ánægður með varnarleik liðsins, ekki bara þá fjóra sem eru í vörninni, heldur líka miðjumenn og framherja, sem verjast einnig. „Mér fannst FH vera sterkari aðilinn til að byrja með en við brotnuðum ekki […]

Dröfn í markið hjá ÍBV

Dröfn Haraldsdóttir markvörður kvennaliðs FH í handknattleik er á leið til Vestmannaeyja og mun þar leysa Florentinu Stanciu af hólmi í marki ÍBV á næsta keppnistímabili. Florentina er líklega á leið til Rúmeníu eins og áður hefur komið fram. (meira…)

Jafntefli gegn FH í Kaplakrika

ÍBV sótti stig í Kaplakrika í kvöld þegar FH og ÍBV skildu jöfn 1-1. Þetta var sannkallaður toppslagur en bæði lið voru með fullt hús stiga eftir fyrstu 2. umferðirnar. FH-ingar voru líklegri framan af fyrri hálfleik og Atli Guðnason kom FH yfir á 30. mínútu. FH hélt boltanum ágætlega eftir markið en náðu þó […]

Eikarbátar að norðan til sýnis í kvöld

Eikarbátarnir Húni II og Knörrin eru nú á siglingu hringinn í kringum landið. Tilefnið er 50 ára afmæli bátanna tveggja, sem báðir voru smíðaðir á Akureyri. Tilgangur ferðarinnar er m.a. að vekja athygli á þeim menningararfi sem felst í gömlum skipum og bátum og varðveislu þeirra. Það er kannski kaldhæðni örlaganna að bátarnir tveir lögðust […]

Toppslagur í Kaplakrika sýndur í beinni í Hallarlundi

Í kvöld sækja Eyjamenn FH-inga heim og verður leikurinn sýndur beint á Stöð2 sport. Útsending hefst kl. 19.45 en leikurinn sjálfur kl. 20.00. Leikurinn verður sýndur í beinni í Hallarlundi og að sjálfsögðu verður tilboð á köldum. Hallarlundur opnar kl. 19.15. (meira…)

Sigursveinn �?órðarson nýr formaður

Ný stjórn var kjörin á framhaldsaðalfundi ÍBV-íþróttafélags sem haldinn var í Týsheimilinu í gærkvöldi. Jóhann Pétursson lét af starfi formanns. Tekur einn lögfræðingurinn við af öðrum því í hans stað var kjörinn Sigursveinn Þórðarson, lögfræðingur. (meira…)

Sækja Íslandsmeistarana heim í kvöld

Karlalið ÍBV leikur fyrsta útileik sinn í sumar þegar liðið sækir Íslandsmeistara FH heim í Kaplakrika. Liðin eru hnífjöfn á toppi deildarinnar eftir fyrstu tvær umferðirnar, bæði með fullt hús stiga og markatöluna 5:1. Það verður forvitnilegt að sjá hvernig ÍBV liðið bregst við þegar það er komið á útivöll en Eyjamenn hafa leikið sérlega […]

Hugmynd um að halda Norðurlandamót í Eyjum

Fyrsta stigamótið í Íslandsmótinu í torfæru fór fram í Vestmannaeyjum um helgina. Keppnin fór fram í gömlu sorpgryfjunni, vestan við Urðarvita en fjölmargir áhorfendur fylgdust með tilþrifum kappanna. Einn Eyjamaður tók þátt í mótinu, Magnús Sigurðsson. Eyjafréttir höfðu samband við Magnús Sigurðsson sem sagði að keppninn hefði verið vel heppnuð og gengið mjög hratt fyrir […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.