Fermingabörn safna til vatnsverkefna Hjálpastarfs kirkjunnar

Fermingarbörn í Eyjum munu í dag, þriðjudag ganga í hús á milli klukkan 17.00 og 19.00 til að safna peningum til vatnsverkefna Hjálparstarfs kirkjunnar í þremur löndum Afríku; Malaví, Úganda og Eþíópíu. Undanfarin ár hafa bæjarbúar tekið einstaklega vel á móti ­fermingarbörnunum og verið dug­legir við að styðja og styrkja þetta mikilvæga verkefni, sem er […]

Leik ÍBV og Hauka frestað

Þar sem Herjólfur siglir ekki núna klukkan 11:30 frá Eyjum og frá Landeyjahöfn klukkan 13:00, hefur leik ÍBV og Hauka verið frestað til morguns. Liðin munu því væntanlega mætast í Íþróttamiðstöðinni í Vestmannaeyjum klukkan 18:00 á morgun. (meira…)

Sanngjarnt skattkerfi

Á liðnu kjörtímabili var þrepaskiptu skattkerfi komið á, kerfinu sem Sjálfstæðismenn ætla að afnema ef þeir komast til valda, skoðum það aðeins nánar. Til að byrja með þarf að hafa í huga að snillingunum tókst að þurrausa ríkissjóð og vel það. Björgunarsveitin þarf nú að greiða skuldir og halda áfram að reka þjóðfélagið. Í þeirri […]

Annar ungur leikmaður í raðir ÍBV

Knattspyrnudeild ÍBV hefur gengið frá munnlegu samkomulagi við Ragnar Pétursson, 18 ára miðjumann Hattar frá Egilsstöðum en Ragnar mun skrifa undir þriggja ára samning við ÍBV um næstu helgi. Ragnar þykir einn af efnilegustu miðjumönnum landsins. (meira…)

Mikið að gera í tengslum við óveðrið

Lögreglan í Vestmannaeyjum hafði í nógu að snúast í vikunni sem leið og einna mest í lok vikunnar í tengslum við það norðanóveður sem gekk yfir Eyjarnar, en lögreglan fékk um 20 útköll sem rekja má til veðurhamsins. Skemmtanahald helgarinnar var með ágætasta móti og flestir gestir skemmtistaðanna sem höguðu sér innan þeirra marka sem […]

Líklegt að Guðmundur fari til Noregs

Allt bendir til þess að miðjumaðurinn Guðmundur Þórarinsson leiki ekki með ÍBV næsta sumar, heldur haldi til Noregs í atvinnumennsku en hann var til reynslu hjá norska félaginu Sarpsborg 08. Þetta kemur fram í pistli Óskars Arnar Ólafssonar, formanns knattspyrnudeildar ÍBV sem hann birti á stuðningsmannasíðu ÍBV á facebook. Þar kemur jafnframt fram að unnið […]

Dóra Björk Gunnarsdóttir, ráðin framkvæmdastjóri hjá ÍBV

ÍBV íÞróttafélag hefur ráðið Dóru Björk Gunnarsdóttur sem nýjan framkvæmdastjóra félagsins. Dóra Björk er 38 ára gömul, kennari að mennt og hefur starfað við Grunnskóla Vestmannaeyja. Dóra Björk þekkir vel til félagsins og hefur m.a. komið að störfum yngri flokka félagsins. Hún mun hefja störf hjá ÍBV síðari hluta janúarmánaðar 2013 og mun Tryggvi Már […]

Vísbendingar um að enginn loðnukvóti verði gefinn út

„Miðað við þær mælingar sem við fengum núna verður ekki mælt með neinni loðnuveiði fyrr en að loknum mælingum eftir ár. Það er ekki hægt að útiloka að það verði engin veiði. Hins vegar höfum við áður verið með lélegar ungloðnumælingar en samt verið með vertíð. Fyrstu vísbendingar um stærð árgangsins 2011 eru á þann […]

Gunnar Heiðar varð næstmarkahæstur

Eyjamaðurinn Gunnar Heiðar Þorvaldsson lauk leiktíðinni í sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu með því að skora sigurmark Norrköping í 2:1 sigri á Mjällby í lokaumferðinni. Þetta var sautjánda mark Gunnars Heiðars í deildinni á leiktíðinni og varð hann næstmarkahæstur á eftir Abdul Majeed Waris hjá Häcken sem gerði 23 mörk. (meira…)

Djúpið sýnt í dag

Kvikmyndin Djúpið, sem byggð er á Helliseyjarslysinu 1984, hefur fengið afar góðar viðtökur og í flestum tilvikum góða dóma. Eyjamenn hafa ekki átt þess kost að sjá myndina til þessa en til stendur að ráða bót á því og sýna myndina í Bæjarleikhúsinu í dag, ­sunnudag. Það er Leikfélag Vestmannaeyja sem stendur fyrir sýningunum en […]

Mitt hverfi slapp við skemmdir

Eyjakonan og tónlistarmaðurinn Rósa Guðmundsdóttir hefur í nokkur ár búið í New York. Hún segist lítið hafa orðið vör við óveðrið og engar skemmdir urðu í hverfinu þar sem hún býr. Í öðrum hverfum, eins og t.d. á Manhattan segir hún ástandið skelfilegt. Miklar skemmdir við ströndina og fjöldi manns hafi látist. (meira…)

Ýmis þung mál sem við erum að takast á við

Óvissa um stöðu ÍBV-íþrótta­fé­lags er mikið rædd meðal áhuga­fólks um íþróttir í Vestmanna­eyjum. Félagið hefur staðið í stórum framkvæmdum, ekki ­liggur fyrir uppgjör þjóðhátíðar­innar í sumar, félagið hefur sagt upp vallarsamningnum við bæinn og sagt upp starfsfólki í Týsheimilinu. Enn er ekki búið að skipa í þjóðhátíðar­nefnd og nýr fram­kvæmdastjóri hefur ekki verið ráðinn. Eyjafréttir […]

Fundi Samfylkingarinnar frestað

Fundur með frambjóðendum Samfylkingarinnar í flokksvali 16. – 17. nóv, sem halda átti á Kaffi Kró í dag laugardaginn 3. nóvember frestast um sólarhring. Fundurinn verður á Kaffi Kró sunnudaginn 4. nóvember kl. 14.00. (meira…)

Fall og upp­risa, pólitík og björt framtíð

N.k. laugardag 3. nóv. kl. 11.00 verður haldinn fundur í Ásgarði félagsheimili sjálfstæðismanna við Heimatorg. Þar mun ég, frambjóð­andi í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Suður­kjör­dæmi fyrir prófkjörið 26. janúar nk., ræða um framboð mitt, helstu áherslur og stefnumál. Málflutningur minn sem bæjarstjóra í Garði um atvinnumál á Suðurnesjum og Suðurlandi hefur vakið athygli á síðustu miss­erum […]

Breytt fyrirkomulag varðandi blóðprufutökur

Frá og með 1 nóvember breytist fyrirkomulag varðandi afgreiðslu á rannsóknarstofu. Breyting verður á skráningu og greiðslufyrirkomulagi þannig að einstaklingar sem vísað er í blóðprufu mæta og skrá sig í afgreiðslu , greiða fyrir rannsókn og setjast í biðstofu þar til á þá er kallað. Hægt er að panta tíma við komu á heilsugæslu eða […]

Mesta vindhviðan á Stórhöfða dag fór í 46,7 metra á sekúndu

Pálmi Óskarsson, veðurathugunarmaður á Stórhöfða sendi okkur yfirlit yfir veðrið í Eyjum í dag. Hann segir að mesti 10 mín. meðalvindhraði í Vestmannaeyjum í dag hafi verið á Stórhöfða, 34,3 m.s. kl.11. (N-átt).Vestm.bær 13,0 m.s. kl.08. (NA-átt).Surtsey 24,9 m.s. kl.12. (NNA-átt). Mesta vindhviða í Vestmannaeyjum í dag var á Stórhöfða 46,7 m.s. kl.11.(N-átt). Vestmannaeyjabær 37,6 […]

Síðasta ferð dagsins fellur niður vegna veðurs

Vegna vinds fellur síðasta ferð dagsins niður. Herjólfur sigldi þrjár ferðir í dag milli lands og Eyja en aðstæður hafa verið erfiðar og þegar slæmt skyggni og myrkur bætast við eru aðstæður illviðráðar. (meira…)

B-lið ÍBV komið í 16 liða úrslit

Í hádeginu í dag var dregið í fyrstu umferð bikarkeppni karla en ÍBV teflir fram tveimur liðum í keppninni eins og undanfarin ár. A-lið ÍBV dróst gegn B-liði HK en B-lið ÍBV mætti einmitt A-liði HK í bikarkeppninni í fyrra. B-liðið datt í lukkupottinn nú, situr hjá í fyrstu umferð og er því komið í […]

Mótmæla harðlega málflutningi LÍ�?

Stjórn og trúnaðarráð Sjómannafélagsins Jötuns í Vestmannaeyjum, mótmælir harðlega þeim málflutningi LÍÚ að sjómenn skuli taka á sig 15% launaskerðingu. „ fyrsta lagi þykir sjómönnum það koma úr hörðustu átt að útgerðarmenn krefjist launalækkunar hjá sjómönnum. Sjómenn hafa staðið eins og klettar við hlið útgerðarmanna og mótmælt harðlega auðlindagjaldslögunum sem og óútkomnu frumvarpi um stjórn […]

Vestmannaeyjabær krefst skýringa á tillögum stjórnlagaráðs

„Í framhaldi af niðurstöðu í ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðslu um tillögur stjórnlagaráðs að nýrri stjórnarskrá lýsir bæjarstjórn Vestmannaeyja áhyggjum sínum af þeim óskýru og óljósu tillögum sem þar er að finna og þá sérstaklega þeim er tengjast rekstri Vestmannaeyjabæjar og fjárhagslegum skuldbindingum þar að lútandi.“ Þetta kemur fram í ályktun bæjarstjórnar Vestmannaeyja sem var samþykkt með atkvæðum […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.