Veikleiki holdsins

Gamall ítalskur maður sem bjó útjaðri Rimini á Ítalíu fyrir nokkrum árum, fór til næstu kirkju til skrifta. Maðurinn sagði: „Faðir … í síðari heimsstyrjöldinni kom falleg gyðingastúlka til okkar bankaði á hurðina og bað mig að fela sig frá nasistum. Þannig að ég faldi hana uppi á háalofti.“ „Þetta var dásamlegur hlutur sem þú […]

Eyjamenn greiða tæpa 3 milljarða

Útgerðarmenn fengu um mánaða­mótin rukkun fyrir fjórðungi af veiðigjöldum fiskveiðiársins 2012 til 2013. Gjalddagi átti að vera 1. október en fjármálaráðuneytið hefur ákveðið að fresta honum um tvo mánuði því margt er óljóst í því hvað hver útgerð á að borga. Samkvæmt upplýsingum frá Útvegsbændafélagi Vestmannaeyja (ÚV) þurfa útgerðir í Vestmanna­eyjum að greiða rúmlega 2,7 […]

Jónbi var með ólíkindum

Það er óhætt að segja að síðasta árið eða svo, hafi verið mikil rússíbanareið hjá Guðbjörgu Erlu Ragnarsdóttur. Eftir áralanga baráttu við krabbamein, lést eiginmaður hennar, Jón Björn Marteinsson eða Jónbi eins og hann var alltaf kallaður, 14. mars síðastliðinn. Þau höfðu gengið í ­hjónaband árið áður og horfðu björtum augum til framtíðar, þrátt fyrir […]

Reynir að bjarga veikri nöfnu sinni í Simbabve

„Ég held að þetta hafi byrjað sem sár en hún þarf að fara að láta rannsaka þetta betur í höfuðborginni Harare. Og það getur hún ekki því það kostar mikinn pening og ef þú átt ekki pening þá færðu enga þjónustu þarna úti,“ segir Bergrún Finnsdóttir sem ásamt vinkonu sinni Vigdísi Láru Ómarsdóttur hefur hafið […]

Aðeins 23 hafa kosið

Á laugardaginn ganga landsmenn að kjörborðinu í ráðgefandi þjóðar­atkvæðagreiðslu um tillögur stjórnlagaráðs að frumvarpi til stjórn­- skipunarlaga og tiltekin álitaefni. Ekki er að sjá að mikill áhugi sé fyrir kosningunum í Vestmanna­eyjum því í morgun höfðu aðeins 23 kosið utankjörfundar samkvæmt upplýsingum Karenar Hjaltadóttur, ritara hjá sýslumannsembættinu. (meira…)

Abel Dhaira áfram hjá ÍBV

Úgandamaðurinn Abel Dhaira verður að öllum líkindum áfram í markinu hjá ÍBV. Óskar Örn Ólafsson, formaður knattspyrnudeildar félagsins, sagði við Fótbolta.net að það væri nánast frágengið. Abel átti mjög gott tímabil og var valinn á bekkinn í úrvalslið ársins í Pepsi-deildinni á Fótbolta.net. (meira…)

Vestmanna­eyjar í �?tsvari annað kvöld

Lið Vestmannaeyja keppir í spurn­ingaþættinum Útsvari annað kvöld, föstukvöld en andstæðingurinn að þessu sinni verður lið Seltjarnarness. Liðið skipa að þessu sinni Gunnar K. Gunnarsson, forstjóri Heilbrigðisstofnunarinnar í Vestmanna­eyjum, Helga Kristín Kolbeins, framhaldsskólakennari og Oddgeir Eysteinsson, kennari og íslensku­fræðingur. Gunnar var í liðinu í fyrra en Helga og Oddgeir koma ný inn. (meira…)

�?dýrt að æfa vetraríþróttir í Eyjum

Verðlagseftirlit Alþýðusambands Íslands, (ASÍ) kannaði æfingagjöld barna í fimleikum og handbolta hjá stærstu íþróttafélögum landsins í þessum greinum. ÍBV-íþróttafélag var tekið fyrir í könnuninni í handbolta, ásamt 15 öðrum félögum og Fimleikafélagið Rán var einnig í könnuninni ásamt 14 öðrum fimleikafélögum. Óhætt er að segja að Rán komi mjög vel út í könnuninni enda félagið […]

Niðurstaða könnunar­innar kemur mjög á óvart

Niðurstaða kjarakönnunar BSRB á dögunum hefur vakið mikla at­hygli en í könnuninni, sem Capa­cent framkvæmdi fyrir banda­lag­- ið, kemur fram að kynbundinn launamunur meðal félagsmanna BSRB er rúmlega 13% á landsvísu en tæp 19% á Suðurlandi. Úrtakið var 20 þús. félagsmenn banda­lags­ins en svarhlutfall rúmlega 50%. (meira…)

Enginn handboltaleikur á laugardag

Þau mistök urðu við vinnslu Eyjafrétta, sem komu út í gær, að í blaðinu er heilsíðu auglýsing um handboltaleik á laugardaginn. Auglýst er viðureign ÍBV og KA/Þórs en norðanstúlkur drógu lið sitt úr keppni stuttu fyrir Íslandsmót og því er ÍBV í fríi um helgina. (meira…)

Segjum skoðun okkar á laugardaginn

Fyrir tæpum tveimur árum fór af stað undarlegt ferli sem hófst með kaffisamsæti 0,3% Íslendinga. Hávær, en fámennur, hluti landsmanna hafði bitið það í sig að fall stærstu fjármálafyrirtækja landsins væri stjórnarskránni að kenna. (meira…)

Ekki enn komin á borð Samkeppniseftirlitsins

Samrunatilkynning vegna kaupa ­Síldarvinnslunnar á Norðfirði (SVN) á Berg-Hugin ehf. (BH) hefur enn ekki borist Samkeppniseftirlitinu. Þetta staðfesti Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins, við Eyjafréttir. Á meðan öðlast samning­ur BH og SVN ekki gildi sem vekur athygli því viðskiptin eru með þeim stærstu í sjávarútvegi á seinni árum. Um var að ræða sölu á tveimur […]

3668 tilheyra Ofanleitissókn

Á mánudaginn birtist á Eyjafrétt­um.is samantekt upplýsinga um Vestmannaeyjar, sem finna má á vef Hagstofu. M.a. kom þar fram að íbúar í Vestmannaeyjum voru 1. okt. sl. 4190 talsins og að 2896 af þeim tilheyrðu þjóðkirkjunni. Þetta fannst sóknarpresti Ofanleitissóknar í Vestmannaeyjum ekki ríma við sína ­gagnagrunna en sr. Kristján Björnsson telur að börnin vanti […]

�?að er allt of mikið í húfi

Á laugardaginn gefst okkur með þjóðaratkvæðagreiðslu kostur á að segja hug okkar um tillögur er varða stjórnarskrá Íslands og marga grundvallarþætti um framtíða lands og þjóðar. Við sem þjóð erum þá með lýðræðislegum hætti spurð hvaða afstöðu við höfum til margra meginmála í samfélaginu. Þjóðaratkvæðagreiðslan er afar jákvæð tilraun til þess að auka lýðræðisleg vinnubrögð […]

Nýtt met slegið í flutningum á fólki með Herjólfi milli lands og Eyja

Í síðust ferð gærdagsins, 16. október, fór farþegafjöldi ársins í ár yfir heildarfjölda ársins í fyrra. Á öllu árinu 2011 voru farþegar Herjólfs 267.448 en eftir gærdaginn eru fjöldi þeirra kominn í 267.476. Tvennt kemur þar helst til annars vegar hafa siglingar til Landeyjahafnar gengið mjög vel það sem af er ári, gott veður og […]

DV fer með rangt mál

Í DV í gær er gerð úttekt á lífeyrissjóðum og er þar Lífeyrissjóður Vestmannaeyja sagður með -99,4% neikvæða tryggingafræðilega stöðu og settur í 19. sæti þeirra sem best fara með peninganna. Haukur Jónsson, framkvæmdastjóri Lífeyrissjóðs Vestmannaeyja segir þessa niðurstöðu blaðsins kolranga og hefur farið fram á leiðréttingu í blaðinu. (meira…)

Nauðganir í Herjólfsdal upplýstar

Lögreglan á Selfossi hefur haft upp á manni sem grunaður er um að hafa nauðgað stúlku í Herjólfsdal um verslunarmannahelgina. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu er unnið að rannsókn málsins en þegar henni er lokið verður málið sent til ríkissaksóknara. (meira…)

Undir eiginfjárkröfu í meira en 6 mánuði

Sparisjóður Vestmannaeyja hefur verið undir kröfu FME um 16% eiginfjárhlutfall í meira en sex mánuði. Sjóðurinn fékk frest frá FME til 1. desember næstkomandi til að bæta eiginfjárstöðu sína. Í umfjöllun um þetta mál í Morgunblaðinu í dag segist Ólafur Elísson sparisjóðsstjóri hafa væntingar um að það muni takast fyrir þann tíma. Sjóðurinn á í […]

Geir Jón fjallar um mótmælin

Geir Jón Þórisson, fv. yfirlögregluþjónn, mun í hádeginu í dag flytja fyrirlestur í Valhöll undir yfirskriftinni „Aðförin að Alþingi – mótmælin við Austurvöll í lok árs 2008 og byrjun árs 2009“. Fyrirlesturinn er haldinn á vegum stjórnmálaskóla Sjálfstæðisflokksins. (meira…)

Umfjöllun um smölun í Suðurey í Landanum

Í þættinum Landinn á RÚV var sagt frá smölun í Suðurey en lömbin í Suðurey feta ekki troðnar slóðir á leiði sinni í sláturhúsið, eins og segir á vef RÚV. „Þau eru látin síga fram af rúmlega 60 metra háu bjargi niður í bát sem færir þau á Heimaey. (meira…)

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.