Prófkjör 26. janúar á næsta ári

Kjördæmisráð Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi fundaði um síðustu helgi á Hótel Höfðabrekku í Mýrdal. Þar var samþykkt að halda prófkjör hjá flokknum og verður það 26. janúar á næsta ári. (meira…)
Tæplega þrjú þúsund íbúar Vestmannaeyja eru í þjóðkirkjunni

Íbúar Vestmannaeyja 1. október 2012 eru 4190 talsins og hefur fækkað um 10 frá áramótum. Karlar eru 2180 og konur 2010. Er það samkvæmt því sem gengur og gerist á landsbyggðinni; þar eru karlar yfirleitt fleiri en konur. Í Reykjavík eru þessu hinsvegar öfugt farið. Um tvítugt fer konum í Eyjum fækkandi en uppúr þrítugsaldrinum […]
Við gerum þetta saman

Hermann Hreiðarsson skrifaði undir tveggja ára samning hjá ÍBV-íþróttafélagi en Hermann mun stýra karlaliði félagsins í knattspyrnu. Hermann þarf varla að kynna fyrir Eyjamönnum, enda einn farsælasti knattspyrnumaður Íslands fyrr og síðar, lék um 15 ár í atvinnumennsku, eftir að hafa leikið með ÍBV alla sína tíð og var um tíma landsliðsfyrirliði. (meira…)
Ragnheiður Elín sækist áfram eftir 1. sætinu í Suðurkjördæmi

Ragnheiður Elín Árnadóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi, gefur kost á sér til þess að leiða lista flokksins áfram í kjördæminu. Ragnheiður Elín lýsti þessu yfir á fundi kjördæmisráðs Suðurkjördæmis á Höfðabrekku í Mýrdal um helgina þar sem ákveðið var prófkjör yrði haldið 26. janúar n.k. (meira…)
Stelpurnar völtuðu yfir Aftureldingu í seinni hálfleik

Kvennalið ÍBV í handbolta var ekki í teljandi vandræðum með Aftureldingu þegar liðin áttust við í Mosfellsbæ í dag. Lokatölur urðu 17:28 en staðan í hálfleik var 10:11 ÍBV í vil. Eyjastelpur skoruðu því 17 mörk gegn aðeins 7 mörkum heimaliðsins í seinni hálfleik en markahæstar voru þær Simone Vintale og Grigore Ggorgata með sex […]
Fjölnir átti aldrei möguleika

Eyjamenn tóku í dag á móti Fjölni í 1. deildinni en liðin urðu þess vafasama heiðurs aðnjótandi á síðasta tímabili að enda í tveimur neðstu sætum Íslandsmótsins. Í dag var getumunurinn mikill, eins og reyndar var síðasta vetur líka en lokatölur urðu 42:24 fyrir ÍBV eftir að staðan í hálfleik hafði verið 19:10. (meira…)
Kjartan sækist eftir að leiða lista Sjálfstæðismanna

Kjartan Ólafsson, fyrrum þingmaður Sjálfstæðisflokksins á Suðurlandi, sækist eftir að leiða lista Sjálfstæðismanna í komandi Alþingiskosningum á næsta ári. Kjartan sendi frá sér fréttatilkynningu þar sem hann óskar eftir stuðningi í fyrsta sæti listans en tilkynninguna sendi hann frá sér eftir að Kjördæmisráð Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi ákvað að viðhafa prófkjör við val á framboðslista flokksins. […]
Alveg í rusli

Nú get ég ekki orða bundist í sambandi við ruslamál okkar Eyjamanna, ef það er rétt það sem ég heyri og les í blöðum hér í Eyjum. Ætli kommarnir í ríkisstjórninni með Svandísi umhverfisráherra í fararbroddi viti af vitleysunni, sem á að fara að frammkvæma hér í Eyjum. Ef svo er þá hafa þau ekki […]
Engin Herjólfsferð fyrripart dags
Ekki verður hægt að sigla Herjólfi milli lands og Eyja fyrripart dags. Fyrstu ferð skipsins var aflýst en annarri ferð frestað til klukkan 14:30. Nú er hins vegar ljóst að ekki verður hægt að sigla þá en næst verður gefin út tilkynning klukkan 16:10, hvort hægt verði að sigla klukkan 17:30 frá Eyjum og 19:00 […]
Handboltinn verður á morgun, sunnudag

Þar sem Herjólfur siglir ekkert milli lands og Eyja fyrr en í fyrsta lagi síðdegis í dag, hefur leik ÍBV og Fjölnis í 1. deild karla og Aftureldingar og ÍBV í N1 deild kvenna verið frestað til morguns. Kvennaleikurinn, sem fer fram í Mosfellsbæ, hefst klukkan 13:30 en karlaleikurinn, sem fer fram í Eyjum, hefst […]
Ferð Herjólfs frestað

Annarri ferð Herjólfs í dag hefur verið frestað en skipið átti að leggja af stað 11:30 frá Eyjum og 13:00 frá Landeyjahöfn. Ölduhæð er 2,7 metrar við Landeyjahöfn og vindur yfir 22 metra á sekúndu í vindhviðum. Næsta tilkynning verður gefin út klukkan 13:10 vegna mögulegrar ferðar frá Eyjum 14:30 og frá Landeyjahöfn klukkan 16:00. […]
Fyrsta ferð Herjólfs féll niður

Vegna ölduhæðar og vinds í Landeyjahöfn, féll fyrsta ferð Herjólfs niður en skipið átti að sigla frá Eyjum klukkan 8:00 og frá Landeyjahöfn klukkan 10:00. Ölduhæð í landeyjahöfn er núna 2,7 metrar og vindur yfir 21m/s í kviðum. (meira…)
Sigurður VE 15 kominn í langtímageymslu?

Hið þekkta aflaskip, Sigurður VE 15 er nú kominn í langtímageymslu sunnan við Nausthamarsbryggju í Vestmannaeyjahöfn. Á heimasíðu Tryggva beikon Sigurðssonar, sem heldur úti flottri síðu um íslensk skip, er þessi mynd af aflaskipinu og sagt frá því að dýpkunarskipið Perla hafi þurft að dýpka þarna í höfninni, til að Sigurður VE 1 gæti flotið […]
Harma úrsögn Róberts Marshalls úr Samfylkingunni

Stjórn kjördæmisráðs Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi harmar úrsögn Róberts Marshall, þingmanns úr Samfylkingunni. Samstarf hans við stjórnina og hina þingmenn kjördæmisins hefur verið með miklum ágætum á kjörtímabilinu og ekki borið á neinum málefnaágreiningi innan hópsins. Að Róbert segi nú skilið við Samfylkinguna er okkur félögum hans undrunarefni og við bendum honum góðfúslega á að það […]
Vestmannaeyjabær fær 4 milljónir í arðgreiðslu

Stjórn Eignarhaldsfélags Brunabótafélags Íslands samþykkti fyrir nokkru, að greiða eigendum sínum 100 milljónir króna í arð. Sveitarfélögin í landinu eru eigendur félagsins og arðurinn kemur því í þeirra hlut. Vestmannaeyjabær er sjöunda stærsti eigandinn með 4.013 prósent eignarhlut. Hlutur bæjarins í arðgreiðslu ársins 2012 er því rúmar 4 milljónir króna. (meira…)
Johnny Cash messa í Landakirkju

Sunnudagskvöldið 14. október kl. 20:00 efnir Æskulýðsfélag Landakirkju og KFUM & K í Vestmannaeyjum til mikillar tónlistarveislu. Sjálfur Johnny Cash verður heiðraður með flutningi laga hans og munu fjölmargir listamenn koma fram. Leikhúsbandið sér um flutning ásamt Sæþóri Vídó sem bregður sér í hlutverk Cash. Brass tríóið Pípulagnirnar verður einnig á svæðinu Leikhúsbandinu og Sæþóri […]
Bleikt þema í október

Októbermánuður er tileinkaður baráttunni gegn krabbameini hjá konum en Krabbameinsfélag Íslands mun í mánuðinum selja Bleiku slaufuna, sem er hönnuð og smíðuð af SIGN. Nælan samanstendur af tveimur blómum sem sveigjast um hvort annað og eru táknmyndir kvenna. Bakhlið nælunnar sýnir tvo fjögurra blaða smára. Sagan segir að þeir sem finni smárann njóti gæfu. (meira…)
�?g ætla að kjósa

Laugardaginn 20. október n.k. mun fara fram ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðsla þar sem leitað verður eftir afstöðu þjóðarinnar til þess hvort Alþingi eigi að leggja tillögur stjórnlagaráðs til grundvallar frumvarpi að nýrri stjórnarskrá. Auk þess geta kjósendur komið á framfæri skoðun sinni á fimm tilteknum atriðum. Tillögur stjórnlagaráðs liggja fyrir í formi frumvarps að nýrri stjórnarskrá sem […]
Styrkja kaup á íþróttagleraugum

Kiwanisklúbburinn Helgafell hefur undanfarna mánuði styrkt börn sem æfa íþróttir undir merkjum ÍBV og þurfa á gleraugum að halda. Verkefnið virkar þannig að foreldrar, eða forráðamenn barnanna, fylla út umsóknareyðublað á skrifstofu ÍBV-íþróttafélags. Viðkomandi kaupa svo sérstök íþróttagleraugu við hæfi fyrir barnið, en Helgafell greiðir 25 þúsund krónur af kostnaðarverði. Ekki er um að ræða […]
Hamborgarafabrikkan afhendir barna- og unglingastarfi ÍBV eina milljón króna

Hamborgarafabrikkan og Þjóðhátíð gengu til samstarfs í sumar þar sem Hamborgarafabrikkan grillaði Fabrikkuborgara í Herjólfsdal um Þjóðhátíðarhelgina. Verkefnið heppnaðist með ágætum og var þessari nýjung vel tekið af Þjóðhátíðargestum. (meira…)