Kolbeinn á leið til New York með nýjan gemsa

Nýr Motorola Razr farsími kom í sölu hér á landi fyrr á árinu og í tilefni þess var efnt til Motorola-leiks á Facebook þar sem í vinning var ferð fyrir tvo á Saga Class til New York. Kolbeinn Aron Arnarson frá Vestmannaeyjum var hinn heppni Motorola-eigandi sem dreginn var út og tók hann við gjafabréfi […]
Leik ÍBV og Stjörnunnar flýtt

Leik ÍBV og Stjörnunnar, sem átti að fara fram á fimmtudaginn 31. maí, hefur verið flýtt til þriðjudags. Þetta er gert þar sem úgönsku leikmennirnir í liði ÍBV, þeir Tonny Mawejje og Abel Dhaira, eru á leið í landsliðsverkefni með Úganda og verða því ekki á landinu eftir viku. Þeir leikmenn sem hafa verið á […]
Leðjan til Eyja

Botnleðja er ein ástsælasta rokkhljómsveit Íslandssögunnar. Þeir hafa nú ákveðið að koma fram á Þjóðhátíð í Eyjum 2012. Þetta verður rosalegt því hljómsveitin kemur mjög sjaldan fram og má segja að þetta verði stærsta „come back“ sveitarinnar. Þetta er eitthvað sem enginn má láta framhjá sér fara því Botnleðja á hafsjó af slögurum sem allir […]
Herjólfur verður 20 ára 9. júní n.k.

Vegna 20 ára afmælis Herjólfs á næstunni verður ein ferð skipsins felld niður. Gunnlaugur Grettisson, rekstarstjóri Herjólfs, segir að afmæli ferjunnar verði fagnað með hátíðahöldum á bryggjunni í Vestmannaeyjum laugardaginn 9. júní. (meira…)
Golfing World hleður golfvöll Vestmannaeyja lofi

Golfvefurinn Golfing World, www.golfingworld.tv, heimsótti Golfklúbb Vestmannaeyja á dögunum en myndband vefsins hefur vakið nokkra athygli. Þar er m.a. rætt við Magnús Oddsson, hjá Golfsambandi Íslands, Helga Bragason, formann GV og Karl Haraldsson, yfirkennara GV þar sem þeir lýsa vellinum. Sjón er sögu ríkari en myndbandið má sjá hér að neðan. (meira…)
Skipstjóri og lagahöfundur

Hljómsveitin Dans á Rósum stefnir á að gefa út disk með nokkrum lögum í sumar. Fyrsta lagið, Sól í dag, er komið í spilun. Það er eftir Guðlaug Ólafsson, skipstjóra á Herjólfi. Textinn er eftir Ólaf Tý Guðjónsson, framhaldsskólakennara. (meira…)
Huginn Helgason úr GV fór holu í höggi í Skotlandi

28 félagar úr Golfklúbbi Vestmannaeyja fóru í golfferð til Skotlands, um miðjan maí. Á fyrsta degi, þann 15. maí, var leikið á Downfield golfvellinum í Dundee. Meðal kylfinga í ferðinni var Huginn Helgason, sem er í GV og með á milli 10 og 11 í forgjöf. Með honum léku í holli Helgi Bragason, sem er […]
Síðasta ferð Herjólfs í kvöld fellur niður

Vegna ölduhæðar í Landeyjahöfn neyðumst við til þess að fella niður síðustu ferð dagsins. Ölduhæð á duflunum í Landeyjahöfn er nú 3,2m og 3,0m. og því ófært. Næsta ferð Herjólfs er fyrirhuguð í fyrramálið frá Vestmannaeyjum kl. 08:30 og frá Landeyjahöfn kl. 10:00. (meira…)
Naumt tap í rokleik

ÍBV tapaði öðrum leik sínum í röð í Íslandsmótinu þegar stelpurnar tóku á móti Breiðabliki á Hásteinsvellinum. Aðstæður voru afar erfiðar, mikið rok beint á annað markið og setti vindurinn svip sinn á leikinn. Þrátt fyrir það fengu bæði lið sín færi gegn vindinum og mörkin hefðu í raun átt að vera mun fleiri. Þannig […]
Akkerin björguðu

„Við erum að sigla í átt að Eyjum, af Eldeyjarbanka og færa okkur austur fyrir, í Háfadýpið. Við reynum þar, það er búin að vera bræla og lítið að hafa,“ sagði Magnús Guðmundsson, skipstjóri á Kristbjörgu VE þegar Fréttir náðu tali af honum á þriðjudagsmorgun. Kristbjörg lenti í hremmingum á föstudagskvöld þegar hún var við […]
Hjalti stefnir á annað sætið

Fótbolti.net fer reglulega í heimsóknir til liða í neðri deildunum og kannar stemmninguna þar. Í morgun birtist viðtal við Hjalta Kristjánsson, þjálfara og aðalmann KFS en Hjalti hefur stjórnað liðinu lengur en elstu menn muna, líkt og átrúnaðargoðið, Alex Ferguson hjá Manchester United. Hjalti segir stemmninguna góða og bætir við að hann sé ósáttur við […]
Erum ekki í herferð gegn ÍBV

Hörður Magnússon, þáttastjórnandi Pepsímarkanna á Stöð2 Sport segir það alls ekki tilgangur þáttarins að sverta ímynd ÍBV eða fjalla með neikvæðum hætti um liðið. Hann segir að ÍBV sé annað tveggja liða í byrjun Íslandsmótsins sem hafi valdi vonbrigðum og slíkt kalli á gagnrýna umræðu um liðið. Hörður sagðist jafnframt aðspurður ekkert hafa á móti […]
Hvað ef? sýnt í dag, þriðjudag

Uppistands- og skemmtifræðslusýningin Hvað ef? verður sýnd í Félagsheimilinu við Heiðarveg í dag, þriðjudaginn 22. maí. Það er Íslandsbanki sem býður Eyjamönnum á sýninguna og er aðgangur ókeypis. Í sýningunni er fjallað um mál eins og vímuefni, áfengi, kynferðisofbeldi, ölvunarakstur, einelti og foreldravandamál. (meira…)
Allt annað ástand en í fyrra

„Það er allt annað ástand á svartfuglinum nú en í fyrra. Nú er ástandið eðlilegt en það var það ekki í fyrra. Það er mökkur af fugli um allt,“ sagði Valur Andersen, bjargmaður í samtali við Morgunblaðið. Þar kemur einnig fram að Valur hafi stundað eggjatöku í Súlnaskeri, Geirfuglaskeri og Geldungi í mörg ár ásamt […]
Andstyggðar öskumistur yfir eyjunum

Eftir hádegi í dag hefur verið mikið og heldur andstyggilegt öskumistur yfir Vestmannaeyjum. Mistrið er mjög þétt en fyrir hádegi var veður einstaklega gott, sól og blíða. Hins vegar snarbreyttist ástandið í hádeginu þegar vindur snerist og feykti um leið öskumistrinu yfir eyjarnar. Ástandið er þannig að gangandi vegfarendur finna strax fyrir öskunni, fá ryk […]
Skemmdir unnar á rútu Viking Tours

Lögreglan hafði í ýmis horn að líta í vikunni vegna hinna ýmsu verkefna sem upp komu. Skemmtanahald helgarinnar fór þokkalega fram en eitthvað var um kvartanir vegna hávaða, bæði frá heimahúsum sem og skemmtistöðum. (meira…)
Ný heimasíða Hraunbúða

Dvalar- og hjúkrunarheimilið Hraunbúðir hefur opnað glænýja heimasíðu. Á heimasíðunni er að finna upplýsingar um þjónustu, hvað er á döfinni og aðrar upplýsingar um heimilið. Gaman er að lesa um sögu dvalarheimilisins frá því elliheimilið Skálholt við Urðarveg 43 var vígt 11. nóvember 1950, upphaf starfsemi Hraunbúða þann 5. október 1974 og um þróun þjónustunnar […]
�?órarinn Ingi fer í myndatöku – Gæti verið álagsbrot

Þórarinn Ingi Valdimarsson miðjumaður ÍBV hefur misst af síðustu tveimur leikjum liðsins vegna meiðsla í rist. Hann meiddist fyrst í leiknum gegn Selfoss í fyrstu umferð og fékk svo aftur verki í leiknum gegn Breiðablik í 2. umferð. Hann hefur ekki spilað í leikjum liðsins gegn KR og Fylki. (meira…)
�?víst með Tonny Mawejje

Það á ekki af karlaliði ÍBV að ganga í upphafi Íslandsmótsins. Fyrir mótið voru þrír af sterkustu leikmönnum liðsins meiddir, þeir Tryggvi Guðmundsson, Andri Ólafsson og Gunnar Már Guðmundsson. Þórarinn Ingi Valdimarsson bættist í þann hóp eftir Blikaleikinn og svo Guðmundur Þórarinsson eftir leikinn gegn KR. Og nú er óvíst hvort Tonny Mawejje geti leikið […]
70% fyrirtækja í Eyjum ráða ekki við veiðiskattinn

Úttekt á gjaldhæfi útgerðarfyrirtækja í Vestmannaeyjum leiðir í ljós að 8 af 11 fyrirtækjum sem greiða veiðiskatt lenda í meiriháttar greiðsluerfiðleikum. Hjá þessum 8 fyrirtækjum starfa rúmlega 400 manns og hafa þau til umráða 58% af aflaheimildum Eyjanna. Nái frumvarp sjávarútvegsráðherra fram að ganga munu því bankar og fjármálastofnanir hafa veruleg áhrif á hvort þessar […]