Enn bið eftir fyrsta sigrinum

Biðin eftir fyrsta sigrinum ætlar að reynast löng fyrir stuðningsmenn ÍBV. Liðið hefur nú spilað fjóra leiki í Íslandsmótinu, tapað tveimur og gert tvö jafntefli á heimavelli. Í dag tóku Eyjamenn á móti Fylki og skildu liðin jöfn 1:1. Talsverður vindur stóð beint á annað markið og setti svip sinn á leikinn en kom reyndar […]
KFS byrjaði á sigri

KFS byrjar Íslandsmótið vel en liðið tryggði sér í síðustu viku sæti í 32ja liða úrslitum Bikarkeppni KSÍ. Í dag léku Eyjamenn svo sinn fyrsta leik í Íslandsmótinu þegar þeir tóku á móti Ægi frá Þorlákshöfn. Ægismönnum hefur verið spáð góðu gengi í sumar á meðan KFS er svo til óskrifað blað en í dag […]
Mikilvægur leikur í dag

ÍBV tekur á móti Fylki í dag klukkan 16:00 á Hásteinsvellinum. Óhætt er að segja að Eyjamenn tefli fram vængbrotnu liði því hvorki fleiri né færri en fimm byrjunarliðsmenn eru á meiðslalistanum og munar um minna. Eyjamenn léku samt sem áður vel í síðasta leik gegn KR þrátt fyrir að hafa tapað 3:2. Leikmenn ÍBV […]
Wall Street Journal fjallar um Vestmannaeyjar

Bandaríska dagblaðið Wall Street Journal birti í dag á vefsvæði sínu umfjöllun um atvinnuástand í Vestmannaeyjum og hvernig Ísland er að krafla sig í gegnum kreppuna. Bæði er þar að finna grein þar sem m.a. er rætt við Daða Pálsson um rekstur Godthaab í Nöf og einnig við Einar Björn Árnason, matreiðslumann sem nýverið opnaði […]
Kári skoraði 5 á móti Hamburg

Línumaðurinn Kári Kristján Kristjánsson skoraði 5 mörk fyrir Wetzlar sem tapaði á heimavelli fyrir fráfarandi meisturum í Hamburg 28:26 í þýsku 1. deildinni í handbolta. Wetzlar er sæti fyrir ofan fallsæti með 19 stig en Bergischer sem Rúnar Kárason leikur með og Arnór Gunnarsson einnig á næsta ári er tveimur stigum á eftir. Liðin eiga […]
Kristbjörg aftur til veiða óskemmd

Engar skemmdir virðast hafa orðið á Kristbjörgu VE eftir að veiðarfæri skipsins festust í skrúfu þess í gær. Skipstjórinn segir þó að mikil hætta hafi verið á ferðum og að gott veður hafi skipt sköpum. Við skoðun kafara á stýrisbúnaði í dag kom í ljós að snurvoðin hafði vafist sex hringi utan um skrúfuna. Eftir […]
Kristbjörg VE á leið til Vestmannaeyja

Neta- og dragnótabáturinn Kristbjörg VE er nú í togi á leið til Vestmannaeyja. Báturinn varð vélarvana á Meðallandsbugt norðan við Skarðsfjöruvita á tíunda tímanum í nótt og rak í átt að landi. Landhelgisgæslan lýsti yfir hættuástandi og kallaðar voru út tvær þyrlur, björgunarskip Landsbjargar í Vestmannaeyjum og Höfn í Hornafirði auk þess sem björgunarsveitir á […]
Björgunarbáturinn �?ór kallaður út í kvöld

Björgunarbáturinn Þór í Vestmannaeyjum var kallaður út um klukkan hálf tíu í kvöld vegna togara sem var vélarvana við Skarðsfjöru og rak í átt að landi. Tíu manna áhöfn er um borð og er óttast að togarinn hafi fengið eitthvað í skrúfuna. Björgunarbátur frá Höfn í Hornafirði var einnig kallaður út, sem og björgunarsveitir í […]
Töpuðu stórt fyrir nýliðunum

Kvennalið ÍBV var sannarlega skotið aftur niður á jörðina eftir 4:2 sigur á Val í fyrstu umferðinni þegar Eyjastelpur sóttu FH heim í Kaplakrika í annarri umferð Pepsídeildarinnar. Nýliðarnir, með Eyjastelpuna Bryndísi Jóhannesdóttur í broddi fylkingar, unnu sannfærandi sigur 4:1 en FH komst í 4:0 áður en Berglind Björg Þorvaldsdóttir minnkaði muninn í uppbótartíma. (meira…)
Maggi og Brynjar Gauti mæta sínu gamla liði

Í hádeginu í dag var dregið í 32 ja liða úrslitum Bikarkeppni KSÍ. Tvö lið frá Eyjum voru í pottinum, ÍBV og KFS en ÍBV kemur nú inn í keppnina ásamt úrvalsdeildarliðunum á meðan KFS er þegar búið að vinna tvo leiki í keppninni. ÍBV dróst á móti Víking frá Ólafsvík og fer leikur liðanna […]
Hjálmadagur Kiwanis á morgun

Á morgun, laugardag klukkan 11:00, verður hinn árlegi Hjálmadagur Kiwanisklúbbsins Helgafells í Vestmannaeyjum. Þá mæta yngstu nemendur grunnskólans við Kiwanishúsið við Strandveg og fá afhenta reiðhjólahjálma fyrir sumarið. Verkefnið er unnið í samstarfi við Eimskip en auk þess verða Eykyndilskonur á svæðinu með reiðhjólaþrautir og lögreglan býður upp á skoðun á hjólunum. (meira…)
Mikil lúðrasveitarhelgi framundan

Lúðrablástur verður áberandi í Eyjum um helgina. Í kvöld, föstudag milli 21 og 23, verður Októberfest í Hallarlundi þar sem Lúðrasveit Vestmannaeyja og Lúðrasveit Hafnarfjarðar munu leika drykkjusöngva ýmiskonar. Eins og vera ber, verður þýskt bjórtilboð á barnum og bjórstemmningin allsráðandi. (meira…)
Stefnt á útflutning á sorpi

Starfshópur um framtíðarskipan sorpmála hefur skilað af sér greinargerð og tillögum varðandi Sorporkustöð Vestmannaeyja en málið var tekið fyrir á fundi framkvæmda- og hafnarráðs í síðustu viku. Vestmannaeyjabær fékk frest til að skila áætlun um framtíð Sorporkustöðvarinnar og skyldrar starfsemi til 11. maí en tillögurnar hafa nú þegar verið sendar til Umhverfisstofnunar þar sem þær […]
Folaldið var nefnt álfunum til heiðurs

„Við nefndum folaldið Álf sem smá virðingarvott við þessa nýju fjölskyldu sem sest er að hérna í Eyjum“, segir Gunnar Árnason, eigandi Hestaleigunnar Lukku í Vestmannaeyjum. Svo bar við að hryssan Gæfa frá Lágafelli kastaði fallegu folaldi í skjóli við álfasteininn í garði Árna Johnsen. Árni flutti steininn til Eyja á þriðjudag en steinninn var […]
�??Af hverju er ekki Ísland �?? og Vestmannaeyjar �?? og Morgunblaðið �?? við strendur Afríku?�??

Mörður Árnason, þingmaður Samfylkingarinnar veltir því fyrir sér hvort forsíða miðvikudagsblaðs DV geti jafnvel vísað veginn, til Afríku, fyrir íslenska útgerðamenn, svo sem Gunnlaug Sævar Gunnlaugsson og Guðbjargar Matthíasdóttur. Hann vísar einnig til fréttar Morgunblaðsins í gær þar sem á forsíðu var fagnað komu fiskiskipsins sem ber heitið Heimaey VE-1. Eigandi skipsins er systurfyrirtæki Morgunblaðsins, […]
Erlingur ráðinn yfirþjálfari ÍBV

Erlingur Richardsson, annar þjálfara Íslandsmeistara HK í handbolta er á förum til ÍBV þar sem hann hefur verið ráðinn yfirþjálfari handknattleiksdeildar og annar aðalþjálfara karlaliðs ÍBV. Erlingur sem skrifaði undir 2 ára samning þess efnis á lokahófi handknattleiksdeildar ÍBV í gærkvöldi verður einnig þjálfari karlaliðs ÍBV við hlið Arnars Péturssonar. Erlingur verður forstöðumaður íþróttaakademíu ÍBV […]
KFS komið áfram í bikarnum

KFS er komið í 3. umferð í bikarkeppni KSÍ en Eyjamenn lögðu Hvíta riddarann á útivelli í dag 2:5. Staðan í hálfleik var 0:2 KFS í vil en riddararnir gerðu harða hríð að forystu Eyjamanna í síðari hálfleik, minnkuðu muninn í tvígang í eitt mark, fyrst 1:2 og svo 2:3 en Eyjamenn innsigluðu sigurinn á […]
Fylgjum ÍBV óháð hvaðan leikmennirnir koma

Mig langar að bara að segja það að Magnús þjálfari ÍBV kemur inn á fínan punkt þegar hann ræðir umfjöllun sérfræðinga Stöðvar2 um Eyjaliðið þ.e. vegna fjölda útlendinga í ÍBV. Mig langar að spyrja sérfræðingana, er munur á því hvort erlendir leikmenn eða íslenskir leikmenn leiki í liðum í efstu deild og hafa ekki verið […]
Skóladagur GRV í Barnaskólahúsinu í dag

Í dag miðvikudaginn 16. maí milli kl. 17 og 20 bjóðum við alla bæjarbúa velkomna í skólann okkar til að sjá hluta af því sem við erum að fást við alla daga. Stofur nemenda verða opnar gestum og gangandi. Þar eru hluti af verkefnum vetrarins til sýnis og gestir geta látið ljós sitt skína með […]
Védís og Herdís halda þverflaututónleika í kvöld

Þær Védís Guðmundsdóttir og Herdís Gunnarsdóttir munu halda þverflaututónleika í kvöld miðvikudaginn, 16. maí, í Safnaðarheimili Landakirkju en tónleikarnir hefjast klukkan 19:30. Á tónleikunum munu þær flytja klassískt efni, bæði saman og í sín hvoru lagi, auk þess sem þær taka eitt lag með Ástu Maríu Harðardóttur en um undirleik sér Guðmundur H. Guðjónsson, faðir […]