Skóladagur GRV í Barnaskólahúsinu í dag

Í dag miðvikudaginn 16. maí milli kl. 17 og 20 bjóðum við alla bæjarbúa velkomna í skólann okkar til að sjá hluta af því sem við erum að fást við alla daga. Stofur nemenda verða opnar gestum og gangandi. Þar eru hluti af verkefnum vetrarins til sýnis og gestir geta látið ljós sitt skína með […]
Védís og Herdís halda þverflaututónleika í kvöld

Þær Védís Guðmundsdóttir og Herdís Gunnarsdóttir munu halda þverflaututónleika í kvöld miðvikudaginn, 16. maí, í Safnaðarheimili Landakirkju en tónleikarnir hefjast klukkan 19:30. Á tónleikunum munu þær flytja klassískt efni, bæði saman og í sín hvoru lagi, auk þess sem þær taka eitt lag með Ástu Maríu Harðardóttur en um undirleik sér Guðmundur H. Guðjónsson, faðir […]
Álfasteinninn kominn á sinn stað

Eins og fram hefur komið í fjölmiðlum, flutti Árni Johnsen álfastein til Eyja í gær, þriðjudag. Steininn flutti hann ofan úr jaðri Svínahrauns en þar hafði hann komið auga á steininn og bjargað undan nýjum Suðurlandsvegi. Árni fékk í lið með sér Ragnhildi Jónsdóttur, álfasérfræðing úr Álfagarðinum í Hafnarfirði, sem sá um flutninginn á álfunum […]
101. leikári Leikfélagsins að ljúka

101. leikári Leikfélags Vestmannaeyja lýkur nú um helgina með lokasýningum af söngleiknum Banastuð og barnasýningunni Galdrakarlinn í Oz. Leikárið hefur gengið vel og mikil gróska verið í starfsemi félagsins. Nú fer á fullt undirbúningur sumarstarfsins en töluvert af verkefnum liggur fyrir hjá félaginu. Vill stjórn félagsins koma á framfæri þökkum til allra þeirra sem lagt […]
Magnús dómari gerði vel fyrir KR

Eyjamenn máttu ganga svekktir af velli eftir 3:2 tap gegn KR. Magnús Þórisson dæmdi þrjár vítaspyrnur á ÍBV, tvær þeirra voru í besta falli vafasamar og sú þriðja var ekkert annað en rangur dómur. Eyjamenn lentu 2:0 undir en náðu að jafna í seinni hálfleik. KR-ingar fengu þriðju vítaspyrnuna í síðari hálfleik og í uppbótartíma […]
ÍBV fær ungan miðjumann frá Millwall

Nítján ára enskur miðjumaður, Jake Gallagher, fær leikheimild með ÍBV frá og með morgundeginum. Hann verður því löglegur með Eyjaliðinu í fjórðu umferð en getur ekki leikið gegn KR í kvöld. Gallagher kemur frá Millwall þar sem hann var fyrirliði unglingaliðsins. Samkvæmt heimasíðu Millwall er um að ræða baráttuglaðan leikmann sem er góður skotmaður og […]
Fyrsta myndin af Heimaey VE í íslenskri lögsögu

Heimaey VE 1, nýtt og glæsilegt uppsjávarskip Ísfélagsins bíður nú þess að sigla inn í heimahöfn í fyrsta sinn. Áhöfnin á TF-SIF, þyrlu Landhelgisgæslunnar flaug yfir skipið í gær og náði þessari ágætu mynd af skipinu á siglingu í átt að Vestmannaeyjum og er það klárlega fyrsta myndin af skipinu í íslenskri lögsögu. (meira…)
Hugsa bara um að vinna titil

„Ég hef ekkert heyrt frá forráðamönnum Potsdam eða Kristianstad og veit ekki til þess að neitt sé í gangi. Fréttirnar um að ég sé að fara til Svíþjóðar eru ekki á neinum rökum reistar. Ég er samningsbundin Potsdam til 2013 og nú hugsa ég ekki um neitt annað en að taka þátt í að tryggja […]
ÍBV fær markvörð frá Rangers

Khym Ramsay, markvörður frá Rangers í Skotlandi, hefur fengið leikheimild með ÍBV og getur spilað með liðinu í næstu umferð Pepsi-deildar kvenna í knattspyrnu. Ramsay er 23 ára gömul og var á dögunum kölluð inní skoska landsliðshópinn í fyrsta skipti, fyrir vináttulandsleik gegn Pólverjum. Hún sat á varamannabekknum í 3:1 sigri skoska liðsins í Gdansk. […]
Heimaey VE væntanlega á morgun

Nýtt og glæsilegt skip Ísfélagsins, Heimaey VE 1, er væntanlegt til heimahafnar í Vestmannaeyjum á morgun, þriðjudag. Siglingin heim frá Chile, þar sem skipið var smíðað, hefur gengið vel og samkvæmt upplýsingum sem fengust á skrifstofu Ísfélagsins er ekki búist við öðru en að skipið verði á réttum tíma í Eyjum. Áætlað er að Heimaey […]
�?rír úr ÍBV á úrtaksæfingar í handbolta

Þrír Eyjapeyjar, þeir Dagur Arnarsson, Nökkvi Dan Elliðason og Hákon Daði Styrmisson, hafa verið valdir til úrtaksæfinga með U-16 ára landsliði Íslands í handbolta. Æfingarnar fara fram í Reykjavík seinna í þessum mánuði en þjálfari liðsins er Selfyssingurinn Einar Guðmundsson. (meira…)
Farmur féll af vörubifreið og á aðra bifreið

Það var frekar rólegt hjá lögreglu í vikunni sem leið og rólegt í kringum skemmtistaði bæjarins. Eitthvað var um tilkynningar vegna foks vegna norðanbálsins sem gekk yfir landið í byrjun vikunnar, en ekkert tjón hlaust af því. Alls voru fimm umferðaróhöpp tilkynnt til lögreglu í vikunni sem leið sem verður að teljast nokkur fjöldi miðað […]
Margrét Lára á förum frá Turbine Potsdam

Flest bendir til þess að landsliðskonan Margrét Lára Viðarsdóttir sé á leið frá þýska félaginu Turbine Potsdam. Markadrottningin er orðuð við sitt gamla félag Kristianstad í Kristianstadsbladed í dag. „Það er ekkert launungarmál að við erum í leit að nýjum sóknarmanni og Sofia Jakobsson er á þeim lista,” segir Mathias Morack forráðamaður Potsdam liðsins sem […]
Herjólfur siglir samkvæmt áætlun í dag mánudag

Brottfor í fyrstu ferð kl. 08:00 og gert ráð fyrir því að Herjóflur siglir samkvæmt áætlun í dag, mánudag. Farþegar eru vinsamlega beðnir að fylgjast með fréttum á herjolfur.is, facebook síðu Herjólfs og síðu 415 í Textavarpi. (meira…)
Ferðum Herjólfs aflýst

Öllum ferðum Herjólfs sem vera átti eftir hádegi í dag hefur verið aflýst vegna veðurs. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Eimskip en þar segir jafnframt að næsta ferð sé fyrirhuguð klukkan 8:00 í fyrramálið, mánudag. (meira…)
�?olinmæðissigur gegn Val í rokinu

Það er óhætt að segja að kvennalið ÍBV hafi byrjað Íslandsmótið vel en liðið lagði í dag Val að velli á Hásteinsvellinum 4:2 eftir að staðan í hálfleik hafði verið 0:2 Val í vil. Það var reyndar rokið sem lék aðalhlutverkið í dag. Sterkur vindur stóð beint á annað markið enda komu öll mörk leiksins […]
Sneri aftur til Eyja sökum veðurs

Herjólfur er nú kominn aftur til Vestmannaeyja þar sem ófært var til Landeyjahafnar. Fram kemur í tilkynningu að skipið hafi beðið í um 50 mínútur fyrir utan Landeyjahöfn en gat ekki siglt inn vegna mikils vinds, sem hafi verið allt að 30 metrar á sekúndu. (meira…)
Hverjir mega hafa skoðun?

Síðustu daga hafa auglýsingar frá aðilum sem eru á móti stórhættulegu kvótakerfi núverandi ríkisstjórnar verið áberandi á öldum ljósvakans. Um leið hafa skæruliðar ríkisstjórnarinnar sett sig í stellingar og hrópað hversu ógeðfelldar auglýsingarnar eru. Allir sem þar koma fram hljóta að vera á launaskrá LÍÚ. Vibbalið… (meira…)
Tvær frá ÍBV í úrvalsliðinu

Lokahóf Handknattleikssambands Íslands var haldið í kvöld en hápunktur kvöldsins er verðaunaafhending fyrir veturinn. Meðal annars var tilkynnt um lið tímabilsins, bæði í karla- og kvennaflokki en í síðarnefnda flokknum átti ÍBV tvo fulltrúa, þær Florentina Stanciu og Ester Óskarsdóttur. (meira…)
Leikurinn klukkan 13:00 á morgun

Leiktíma leiks ÍBV og Vals í 1. umferð Pepsídeildar kvenna hefur verið breytt. Leikurinn átti upphaflega að fara fram klukkan 16:00 á morgun, sunnudag en leiknum hefur verið flýtt til klukkan 13:00. Leikurinn verður án efa mjög spennandi enda voru liðin tvö í toppbaráttu í fyrra og enduðu í öðru og þriðja sæti deildarinnar. (meira…)