Leikurinn klukkan 13:00 á morgun

Leiktíma leiks ÍBV og Vals í 1. umferð Pepsídeildar kvenna hefur verið breytt. Leikurinn átti upphaflega að fara fram klukkan 16:00 á morgun, sunnudag en leiknum hefur verið flýtt til klukkan 13:00. Leikurinn verður án efa mjög spennandi enda voru liðin tvö í toppbaráttu í fyrra og enduðu í öðru og þriðja sæti deildarinnar. (meira…)
Gunnar Karl fánaberi íslenska hópsins
Eyjapeyinn Gunnar Karl Haraldsson tekur þátt í Norðurlandamóti fatlaðra í boccia um helgina. Mótið fer fram í Laugardalshöll í dag en mótið hófst í morgun með sérstaktri setningarathöfn. Þar gengu keppendur þjóðanna inn hver á fætur annarri en Gunnar Karl var fánaberi íslenska hópsins. (meira…)
Arndís �?sk syngur lög Adele í kvöld

Ég hef verið einlægur aðdáandi Adele og hennar tónlistar síðan tónlistarferill hennar hófst. Það var því draumur minn að halda tónleika með lögunum hennar þar sem að ég segi einnig aðeins frá henni og hvernig hún samdi lögin. Einnig fannst mér röddin mín henta einstaklega vel í lögin hennar. Sá draumur varð að veruleika þegar […]
ÍBV Íþróttafélag fær gæðastimpilinn �??Fyrirmyndarfélag ÍSÍ�??

Íþróttasamband Íslands (ÍSÍ) er með ákveðið gæðakerfi sem snýr að því hvernig starfsemi íþróttafélaga er háttað. Ef félög óska eftir, geta þau látið ÍSÍ gera úttekt á starfsemi sinni með það fyrir augum að geta tekið upp gæðastimpilinn „Fyrirmyndarfélag ÍSÍ“. Til þess að standast kröfur ÍSÍ verða aðildarfélögin uppfylla ákvæði varðandi menntun þjálfara, unglingastarf, forvarnarstarf […]
Lengi lifir í gömlum glæðum

Þeir eru margir ungu drengirnir sem hafa átt sér þann draum að spila á hljóðfæri og komast í hljómsveit. Sumir hafa eljuna til að læra hljóðfæraslátt og kjark til að stíga á svið eftir mismunandi stífar æfingar í bílskúrnum hjá einhverjum pabbanum. Þarna hafa margir snillingar i tónlistinni stigið sín fyrstu skref, komist í gegnum […]
�?g horfi aldrei á �?tsvar

Ljóskan var að vinna hjá hinu opinbera. Það var komið að mánaðamótum, verkstjórinn gekk á milli starfsfólksins og afhenti því launaseðlana sína. Þegar sú ljóshærða fékk sinn launaseðilinn renndi hún yfir hann með augunum, en varð ekkert smá hissa, þegar hún sá að það var dregið af henni Útsvar. (meira…)
Herrakvöld knattspyrnudeildar í kvöld

Knattspyrnudeild ÍBV heldur sitt árlega Herrakvöld í kvöld, föstudag 11. maí. Að þessu sinni verður skemmtunin haldin í Höllinni, húsið opnað kl. 19 og hefst borðhald klukkutíma síðar. Veislukokkar verða þeir Kári Fúsa, Kristó, Hjalli ásamt Einsa Kalda og fleirum. Skemmtiatriðin verða rándýr en veislustjóri verður Afreksmaðurinn Sævar Helgi Geirsson. Ræðumaður kvöldsins er svo hinn […]
Byggðasafnið fagnar sumaropnun og lokadegi vertíðar

Árið 2012 er afmælisár í Safnahúsi því að Byggðasafnið fagnar 80 ára afmæli og Bókasafnið verður 150 ára. Samfelld dagskrá verður afmælisvikuna 30. júní til 8. júlí en Safnahúsið er í hátíðarbúningi allt árið og sýningar og viðburðir í öllum deildum hússins. Laugardaginn 12. maí hefst sumaropnun í Sagnheimum, byggðasafni með dagskrá kl. 14 en […]
Herdís heilsar upp á Eyjamenn

Herdís Þorgeirsdóttir sem er meðal átta frambjóðenda til forseta Íslands kom til Vestmannaeyja í gær og gerðist víðreist. Heilsaði upp á fólk í fyrirtækjum og mætti á völlinn í leik ÍBV og Breiðabliks á Hásteinsvelli. Herdís verður í Eyjum í allan dag og heldur áfram að heilsa upp á Eyjamenn. (meira…)
Markalaust jafntefli gegn Blikum

Eyjamenn gerðu markalaust jafntefli í kvöld þegar Breiðablik kom í heimsókn. Aðstæður voru allar hinar ákjósanlegustu í kvöld, ágætis veður, hæg gola og völlurinn kemur sérlega vel undan vetri. Leikurinn var ágætis skemmtun en mörkin vantaði sárlega. Eyjamenn voru í heildina sterkari aðilinn en Blikar hefðu vel getað stolið sigrinum undir lokin. (meira…)
Heilsugæslan senn tilbúin eftir endurbætur

Framkvæmdum við endurnýjun heilsugæslunnar í Eyjum miðar vel áfram og verður væntanlega lokið á tilsettum tíma, um mánaðamótin maí/júní. Okkar maður á staðnum, Halldór Halldórsson fór í rölt um heilsugæsluna með vídeóvélina sína tók þessar myndir af framkvæmdunum. (meira…)
Hátíð í Eyjum við komu Heimaeyjar

Heimaey VE 1, nýtt skip Ísfélagsins í Vestmannaeyjum, er væntanleg til Eyja um hádegi á þriðjudag. Síðdegis á þriðjudag er ráðgert að skipið verði sýnt bæjarbúum og gestum. Skipið var smíðað í Asmar, skipasmíðastöð sjóhersins í Talcahuano skammt frá Concepcion í Síle, og er fyrsta nýja uppsjávarskipið sem bætist í íslenska flotann í mörg ár. […]
Galdrakarlinn í Oz hjá LV í dag

Leikfélag Vestmannaeyja frumsýnir í dag barnaleikritið Galdrakarlinn í Oz í leikstjórn Zindra Freys Ragnarssonar. Leikritið er einstakt að því leytinu að það eru einungis börn á aldrinum 10 til 12 ára sem leika en það er í fyrsta sinn sem félagið setur slíka sýningu á fót. (meira…)
Boltinn í beinni í sumar

Ákveðið hefur verið að útvarpa beint frá leikjum ÍBV í Pepsideild karla í sumar en útvarpsstöðin Suðurland FM (Útvarp Suðurland) sér um þær útsendingar í samstarfi við fyrirtæki á svæðinu. Undanfarin ár hefur stöðin verið með leiki Selfossliðsins í beinni útsendingu en með stækkandi útsendingarsvæði og hækkandi sól, vilja þeir sína það og sanna í […]
Með aðkomu bæjarbúa gerist kraftaverkið

Nú hefur svokallað hafnartorg verið sett inn á nýtt deiliskipulag og samhliða því verður geymslusvæði smábáta flutt inn í slipp. Hugmyndin um hafnartorgið kom upp á íbúaþingi árið 2006 og nú er komið til móts við íbúana með því að koma henni á skipulag og síðan í framkvæmd. Torgið tengir hafnarsvæði og miðbæ og á […]
Herdís fyrsti frambjóðandinn til að heimsækja Vestmannaeyjar

Átta hafa boðið sig fram til forseta Íslands en kosið verður 30. júní nk. Kosningabaráttan er rétt að fara í gang og hefur fyrsti frambjóðandinn boðað komu sína, dr. Herdís Þorgeirsdóttir prófessor og lögmaður. Herdís kemur í fyrramálið og verður hér á morgun og á fimmtudaginn og mun heilsa upp á fólk vítt og breytt […]
Hreint bæjarfélag- betri bæjarbragur

Þegar sumarið er komið er mikilvægt að taka til eftir veturinn. Milli kl. 10 og 12.30 laugardaginn 12. maí nk. verður hreinsunardagur Vestmannaeyja. Að venju munu félagasamtök hreinsa fyrirfram ákveðin svæði, fyrirtæki eru hvött til að hreinsa í kringum fyrirtæki sín og ekki síst eru íbúar Vestmannaeyja hvattir huga að umhverfinu í kringum sín húsnæði. […]
ÍBV í þróttafélag verður útnefnt Fyrirmyndarfélag ÍSÍ 2012

Ársþing Íþróttabandalags Vestmannaeyja fyrir árið 2011, verður haldið í Týsheimilinu í kvöld, fimmtudag, kl. 20.00. Auk hefðbundinna starfa ársþinga, verður ÍBV íþróttafélag, útnefnt Fyrirmyndarfélag ÍSÍ 2012. Slíka útnefningu fá aðeins þau aðildarfélög ÍSÍ, sem uppfylla ákveðnar gæðakröfur sambandsins. (meira…)
Heilsuréttir fjölskyldunnar á toppnum

Heilsuréttir fjölskyldunnar eftir Berglindi Sigmarsdóttur var mest selda bókin í bókaverslunum 22. apríl-5. maí síðastliðinn. Í öðru sæti var bók Óttars Guðmundssonar, Hetjur og hugarvíl og í því þriðja Korter eftir Sólveigu Jónsdóttur. (meira…)
Undirbúningur Goslokahátíðar vel á veg kominn

Undirbúningur Goslokahátíðarinnar er vel á veg kominn. Að þessu sinni koma Birgir Nielsen, Kristín Jóhannsdóttir og Margrét Rós Ingólfsdóttir að undirbúningi hátíðarinnar, sem í ár ber upp á 5. – 8. júlí. Nú þegar er dagskráin farin að taka á sig mynd. Hátíðin hefst strax á fimmtudeginum með opnun á listasýningum. Margar listasýningar verða þessa […]