Erlingur ræðir við ÍBV

Erlingur Richardsson, annar þjálfara nýkrýndra Íslandsmeistara HK í handbolta karla, er í viðræðum við ÍBV um að taka við þjálfun liðsins og starfa við hlið Arnars Péturssonar. Erlingur staðfesti þetta í samtali við Morgunblaðið í gær. (meira…)
Starf yngri flokka ÍBV í handbolta

Við hjá ÍBV Íþróttafélagi erum mjög stolt af unglingastarfi okkar í handboltanum. Starfsemin hefur vaxið mikið hjá okkur síðustu tvo vetur og teljum við okkur nú vera komin í fremstu röð í öllum flokkum bæði hvað varðar árangur og iðkendafjölda. (meira…)
�??�?að eru allir að leita að fólki�??

„Ég er búin að prófa að auglýsa í bæjarblaðinu, Facebook og leita víða. Það hefur hangið auglýsing í glugganum hjá mér í rúman mánuð en það er ekki einu sinni spurt. Ég er líka búin að hringja og tala við fólk og búin að nota allar krókaleiðir en það er bara ómögulegt að fá fólk,“ […]
Vestmannaeyjabær, Umhverfisstofnun og Hótel Vestmannaeyjar vinna saman að Eldheimum

Í dag var haldinn blaðamannafundur á Hótel Vestmannaeyjum þar sem kynnt voru áform um byggingu Eldheima í Vestmannaeyjum, safns sem ætlað verður að mynda umgjörð um sýningar tengdar Heimaeyjagosinu og Surtseyjagosinu. Á blaðamannafundinum kom fram að fyrirhugað er að grafa upp og byggja yfir rústir af Gerðisbraut 10 sem fór undir ösku og hraun 1973 […]
Fleiri stútar í ár en á sama tíma í fyrra

Eins og undanfarnar vikur þá var rólegt hjá lögreglu og engin alvarlega mál sem upp komu. Rólegt var í kringum skemmtistaði bæjarins um helgina og fór skemmtanahaldið ágætlega fram. Einn ökumaður var stöðvaður í vikunni vegna gruns um að vera undir áhrifum áfengis við aksturinn. Hafa þá 6 ökumenn verið stöðvaðir á árinu vegna gruns […]
Fór holu í höggi á par-4 braut

Kylfingur vikunnar að þessu sinni er Örylgur Grímsson, vallarstjóri á Vestmannaeyjavelli. Hann hóf störf á Vestmannaeyjavelli árið 1996 og hefur unnið öll sumur síðan og tók við starfi vallarstjóra árið 2004. Hann starfar sem sjómaður fyrir vetratímann frá Vestmannaeyjum. Örlygur er trúlofaður Kolbrúnu Stellu Karlsdóttur og saman eiga þau sonin Karl Jóhann sem er átta […]
Erlingur fyrsti Eyjaþjálfarinn sem verður Íslandsmeistari karla

Það ríkti sannkölluð sigurgleði í Kópavoginum í gærkvöldi þegar heimamenn í HK tryggðu sér Íslandsmeistaratitilinn í handbolta. Liðið gerði það á eftirminnilegan hátt, lagði Hauka 3:0 í undanúrslitum og svo FH 3:0 í úrslitunum. Við stjórnvölinn hjá HK er Eyjamaðurinn Erlingur Richardsson og með honum er maður sem Eyjamenn kannast vel við, Kristinn Guðmundsson en […]
Sanngjarn sigur Selfyssinga

Eyjamenn riðu ekki feitum hesti frá viðureign sinni gegn nýliðum Selfoss í dag þegar liðin áttust við á glæsilegum Selfossvelli. Selfyssingar voru allt í öllu í fyrri hálfleik og voru verðskulda 2:0 yfir í hálfleik. Í raun hefðu Selfyssingar getað skorað fleiri mörk því þeir áttu m.a. hörkuskot í slá og skot naumlega framhjá. Síðari […]
Enginn númer 11 í sumar hjá ÍBV

ÍBV spilar sinn fyrsta leik í dag gegn Selfossi á Selfossvelli Pepsídeild karla. Eyjamenn hafa ákveðið að heiðra minningu Steingríms Jóhannessonar, mesta markaskorara félagsins frá upphafi, með því að leggja búning númer 11 til hliðar í sumar en Steingrímur lék ávallt með það númer á bakinu. Steingrímur lék lengst af með ÍBV en einnig með […]
ÍBV og Selfoss mætast í fyrsta leik Íslandsmótsin

Nú er knattspyrnusumarið rétt handan við hornið en klukkan 18:00 í dag mun ÍBV mæta nýliðum Selfoss á Selfossvelli. Selfyssingum er í flestum spám spáð falli á meðan ÍBV er yfirleitt spáð um miðja deild. Það verður því mikilvægt fyrir bæði lið að byrja vel í Íslandsmótinu því bæði lið ætla sér meira en spárnar […]
Eyjaskeggjar nær og fjær!

Nú styttist í að Pepsi deildin byrji að fullum krafti. Ætlum við hjá www.ibvfan.com að útvarpa leikjum ÍBV beint í sumar í gegnum internetið, heima sem útileikjum. Hugmyndin er sú að vera með smá upphitun 15 mínútum fyrir leik, þar sem verður farið yfir liðin, viðtöl, ofl. Þar að auki verða skrifaðar greinar og liðskynningar […]
Aukaferð Herjólfs á sunnudag

Ákveðið hefur verið að setja inn aukaferð Herjólfs á morgun sunnudag frá Eyjum 14:30 og frá Landeyjahöfn 16:00. Herjólfur siglir því fimm ferðir milli Vestmannaeyja og Landeyjahafnar, sunnudaginn 6. maí. (meira…)
Bjarni Rúnar tryggði KFS sigur á lokamínútunum

KFS er komið í 2. umferð bikarkeppni KSÍ eftir nauman sigur á utandeildarliði Ármanns í dag. Reyndar leikur liðið undir nafninu Hjörleifur í utandeildinni en leikur undir nafni Ármanns í bikarkeppni KSÍ. Gestirnir voru nokkuð sprækir og ullu Eyjamönnum nokkrum vandræðum. Lokatölur urðu hins vegar 2:1 en sigurmark KFS kom úr vítaspyrnu á lokamínútunum. (meira…)
Fyrsti leikur sumarsins í Eyjum

Í dag, laugardag, fer fram fyrsti opinberi knattspyrnuleikur sumarsins þegar KFS tekur á móti Ármanni í fyrstu umferð bikarkeppni KSÍ. Leikurinn fer fram á Helgafellsvelli og hefst klukkan 14:00. KFS gekk ágætlega í vetrarleikjum en liðið lék í undanúrslitum C-deildar Lengjubikarsins á dögunum eftir að hafa endaði í efsta sæti í sínum riðli. (meira…)
Nokkur sæti laus á Selfossleikinn

Karlalið ÍBV leikur fyrsta leik sinn í Pepsídeildinni á sunnudaginn þegar Eyjamenn sækja Selfyssinga heim í Suðurlandsslag Íslandsmótsins. Stuðningsmenn ÍBV bíða spenntir eftir sumrinu og munu vafalaust fjölmenna á leikinn. Þeir sem eru hins vegar í vandræðum með að redda sér fari til og frá Landeyjahöfn, geta komið við á skrifstofu ÍBV í Týsheimilinu klukkan […]
ÍBV semur við Georgetu

ÍBV hefur samið við Georgetu Grigore að spila með liðinu næsta tímabil. Leikmaðurinn kom inn til liðsins í lok október í fyrra og lék með liðinu til enda tímabilsins. Georgeta reyndist hinn mesti liðstyrkur og lék vel með liðinu í úrslitakeppninni. (meira…)
Taka á móti Selfossi á morgun

Kvennalið ÍBV leikur síðasta æfingaleik sinn fyrir Íslandsmótið á morgun, laugardag. Þá tekur liðið á móti nýliðum í Pepsídeild kvenna, Selfossi en leikur liðanna hefst klukkan 11:45 á Helgafellsvellinum. Stuðninsgmenn liðsins eru hvattir til að kíkja á stelpurnar og sjá hvernig liðið kemur undan vetri. (meira…)
Minningarleikur Steingríms Jóhannessonar um Sjómannadagshelgina

Föstudaginn 1. júní, um Sjómannadagshelgina, verður sannkallaður stórleikur á Hásteinsvellinum þegar ÍBV og Fylkir mætast. Um er að ræða sérstakan minningarleik Steingríms Jóhannessonar, sem einmitt vann titla með báðum liðum en lengst af lék hann auðvitað með ÍBV. Liðin í leiknum verða skipuð gömlum leikmönnum félaganna, sem flestir léku með Steingrími en þar sem um […]
Lag sem fjallar um hafið sem umlykur Vestmannaeyjar verður frumflutt

Þær eru nokkrar hljómsveitirnar sem Eyjamenn hafa tekið ástfóstri við og eru Stuðmenn ofarlega í þeim hópi. Eftirminnilegar eru þjóðhátíðirnar 1982, þegar vinsælasta mynd Íslandssögunnar, Með allt á hreinu varð til. Eru atriðin í Vestmannaeyjum meðal hápunkta hennar. Svo var það stóra þjóðhátíðin 1986 sem sló öll met í aðsókn. Í næstu viku, föstudaginn 24. […]
Á skaki með Dóra og Einari

Í dag er fallegur vordagur í Eyjum, varla skýhnoðri á himni. Við slíkar aðstæður er gaman á sjó. Halldór Halldórsson, húsvörður á Sjúkrahúsinu brá sér á skak með Einari Hallgrímssyni, að áliðnu sumri á síðasta ári í veðri eins og nú er. Á myndbandinu sem hér fylgir sjáum hvernig þeim félögum gekk. (meira…)