Skortur á svæfingarlæknum

Svæfingalækni vantar til starfa á Heilbrigðisstofnun Vestmannaeyja. Frá áramótum hefur gengið illa að manna stöðuna og hefur það komið niður á þjónustu við verðandi mæður í Eyjum. Undanfarin sumur hefur skurðstofu Heilbrigðisstofnunar Vestmannaeyja verið lokað í sex vikur. (meira…)
Stelpurnar aftur á beinu brautina

Kvennalið ÍBV sótti Aftureldingu heim í Mosfellsbæinn í kvöld en Afturelding er annar tveggja nýliða í deildinni. Eyjastúlkum hefur ekki gengið sem allra best í síðustu leikju en eftir góðan sigur á Val í 1. umferð, komu tveir tapleikir í röð, fyrst gegn hinum nýliðunum í FH í Hafnarfirði og svo á heimavelli gegn Breiðabliki. […]
Fyrsti sigurinn og Tryggvi bætti markametið

Eyjamenn sprungu loksins út í Íslandsmótinu þegar liðið tók á móti Stjörnunni á Hásteinsvelli í kvöld. Tryggvi Guðmundsson var í fyrsta sinn í byrjunarliðinu og stýrði sóknarleik Eyjaliðsins eins og herforingi. Það var við hæfi að þessi mikli markaskorari, bætti markamet í efstu deild með gullfallegu marki úr aukaspyrnu á 76. mínútu og kom ÍBV […]
TG9 byrjar í kvöld

Tryggvi Guðmundsson er greinilega heill heilsu því hann verður í byrjunarliði ÍBV í kvöld þegar liðið tekur á móti Stjörnunni. Tryggvi hefur ekki enn spilað fyrir ÍBV í sumar en hann var frá í byrjun tímabils vegna blóðtappa í kálfa. Hann hefur hins vegar getað æft en hefur þurft að forðast átök vegna þeirra lyfja […]
Búið að sekta nokkra á nagladekkjum

Vikan var með rólegra móti hjá lögreglu og engin alvarleg mál sem upp komu. Skemmtanahald helgarinnar fór ágætlega fram en þó var eitthvað um útköll vegna mála sem tengdust ölvunarástandi fólks. Tvö umferðaróhöpp voru tilkynnt til lögreglunnar í vikunni sem leið og var í báðum tilvikum um minniháttar óhöpp að ræða og engin slys á […]
Sónötukvöld í Safnaðarheimilinu

Kitty Kovács, píanóleikari, og Balázs Stankowsky, fiðluleikari, halda tónleika í kvöld 29. maí í Safnaðarheimili Landakirkju. Verkin eru sónötur eftir Mendelshon-Bartholdy, Chopin, Kreiser og Elgar. Tónleikarnir hefjast kl. 20:00. (meira…)
Eyjamenn taka á móti Stjörnunni í dag

Eyjamenn taka á móti Stjörnunni á Hásteinsvelli í dag í Pepsídeild karla en leikur liðanna hefst klukkan 18:00. Þetta er sjötti leikur liðanna í Íslandsmótinu en eins og allir vita, hafa Eyjamenn ekki byrjað Íslandsmótið sérlega vel, eru aðeins með tvö stig eftir fyrstu fimm leikina eftir jafntefli gegn Breiðabliki og Fylki á heimavelli. Tveir […]
Margrét Lára þýskur meistari með Potsdam

Potsdam, lið markadrottningarinnar Margrétar Láru Viðarsdóttur, varð í dag Þýskalandsmeistari í knattspyrnu fjórða árið í röð er liðið vann stórsigur á botnliði Leipzig, 8:0, í lokaumferðinni. Margrét Lára skoraði sjöunda mark meistaranna í dag eftir að hafa komið inná sem varamaður. (meira…)
Mikilvægt að hafa kjölfestuverkefni frá ríkinu

Rekstrarframlag ríkisins og mótframlag Vestmannaeyjabæjar duga ekki fyrir rekstri Náttúrustofu Suðurlands. Bæjarráð Vestmannaeyja hefur af þessu miklar áhyggjur og hefur skipað þriggja manna stýrihóp sem á að skila tillögum að framtíðarfyrirkomulagi stofunnar á næsta fundi ráðsins. (meira…)
Upptökur á �?jóðlaginu í Höllinni í dag

Í dag, klukkan 16:00 fara fram upptökur í Höllinni á Þjóðlaginu. Lagið er samið af Fjallabróðurnum Halldóri Gunnari Pálssyni, sem einmitt semur einnig þjóðhátíðarlagið í ár. Hann sagði í samtali við Fréttir að hann vilji fá sem flesta Eyjamenn í upptökurnar, líka þá sem telji sig ekki geta sungið, sem er dálítið skemmtilegt. (meira…)
KFS tekur á móti Berserkjum í dag
Í dag, klukkan 14:00 tekur KFS á móti Berserkjum í 2. umferð A-riðils í 3. deild Íslandsmótsins. Leikurinn fer fram á Helgafellsvellinum en KFS hefur farið sérlega vel af stað í sumar því liðið er komið í 32ja liða úrslitum í bikarkeppninni og svo vann liðið Ægi í 1. umferð Íslandsmótsins. (meira…)
Tækifæri fyrir skemmtilegar hugmyndir

Þann 31. maí og 1. júní er fyrirhugað að ráðast í umfangsmiklar breytingar á hafnarsvæðinu þar sem óskað er eftir þátttöku allra Vestmannaeyinga sem geta lagt verkefninu lið. (meira…)
Gylfi �?gis á Café Varmó

„Ég verð á Café Varmó í Eyjum um hvítasunnuna, föstudag, laugardag og sunnudag,“ sagði Gylfi Ægisson, tónlistar- og myndlistarmaður. „Ég verð þar með tónleika og uppistand sem ég kalla Á frívaktinni. Þar syng ég lög eftir mig og fer með gamanmál. Tónleikarnir eru kl. 22.00 til 24.00 öll kvöldin. (meira…)
Hin hliðin á deilum innan VSV

Þegar við bræður komum að Vinnslustöðinni hf. (VSV) fyrir tæpum 10 árum þá var búið að ganga á ýmsu hjá félaginu. Ein meginástæða þess að við komum að félaginu var að til okkar var leitað af núverandi framkvæmdarstjóra félagsins og nokkrum Eyjamönnum sem spurðu hvort við værum til í að hjálpa þeim að kaupa hlutabréf […]
Alltaf logn í Vestmannaeyjum

Á vefnum Fótbolti.net er reglulega liður sem nefnist Á heimavelli en þar sjá leikmenn liðanna í Pepsídeild karla um að kynna sitt nánasta umhverfi. Í dag var komið að ÍBV og sáu þeir Þórarinn Ingi Valdimarsson og Guðmundur Þórarinsson um að kynna Heimaey fyrir lesendum vefsins. Sjón er sögu ríkari. (meira…)
�?essar taka þátt í Sumarstúlkukeppninni 2012

Sumarstúlkukeppnin verður haldin í Höllinni 16. júní næstkomandi en framkvæmdastjóri keppninnar í ár er Emma Bjarnadóttir. Stúlkurnar eru þegar farnar að undirbúa keppnina en 12 stúlkur taka þátt í henni í ár. (meira…)
�?rjár úr ÍBV í U-18 landsliðið

Þrjár Eyjastúlkur, þær Berglind Dúna Sigurðardóttir, Drífa Þorvaldsdóttir og Svava Tara Ólafsdóttir hafa allar verið valdar í æfingahóp U-18 ára landsliðs Íslands í handbolta. Íslenska liðið undirbýr sig undir opna Evrópumótið sem fer fram í Gautaborg 2. til 6. júlí en æfingar liðsins fara fram nú um helgina í Reykjavík. (meira…)
Hótel enn í skoðun

„Hásteinsgryfjan er í skipulagsferli og Fosshótel er að fara yfir það sem snýr að Fiskiðjunni,“ sagði Elliði Vignisson, bæjarstjóri, þegar hann var spurður um hvað líður hugmyndum um hótel í Hásteinsgryfju og í Fiskiðju. (meira…)
Upptökur �?jóðlaginu á sunnudag

Fjallabróðirinn Halldór Gunnar Pálsson þeysist nú landshorna á milli til að taka upp söng þjóðarinnar fyrir lag sitt, Þjóðlagið. Nú þegar hafa um sjö þúsund manns sungið viðlag Þjóðlagsins en Halldór segir að markmiðið sé að fá 10% þjóðarinnar til að syngja undir. (meira…)
Eyjamenn enn án sigurs

Eyjamenn eru enn án sigurs í Pepsídeildinni en liðið situr enn í fallsæti ásamt Grindavík, með aðeins tvö stig af fimmtán mögulegum. Liðið tapaði í kvöld gegn Keflavík í Keflavík en samkvæmt lýsingum voru Eyjamenn sterkari aðilinn í leiknum. Það fæst hins vegar lítið fyrir það, mörkin telja og í leiknum skoruðu Keflvíkingar eina markið […]