Kiwanisklúbburinn Eldfell safnar fyrir �?ór

Kiwanisklúbburinn Eldfell fagnaði á dögunum eins árs afmæli sínu. Af því tilefni var ákveðið að standa fyrir söfnun til að útbúa sjúkraklefa í varðskipinu Þór, glænýju varð­skipi okkar Íslendinga. Útbúa á sjúkraklefann með þeim tólum sem til staðar þurfa að vera, svo hægt sé með góðu móti að taka við slös­uðum eða veikum sjómönnum og […]

Sjómannadagsblaðið fjölbreytt að vanda

Sjómannadagsblað Vestmannaeyja árið 2012 er komið út en börn í 3. flokki ÍBV munu selja blaðið í dag, föstudag og um helgina. Á sunnudag verður svo hægt að nálgast blaðið í Skýlinu, Kletti, Olís og í Toppnum. Blaðið er að vanda afar efnisríkt en í ár er öryggismálum sjómanna gefinn sérstakur gaumur. Þannig er litið […]

Sr. Kristján komst í aðra umferð

Í gær voru talin atkvæði í kjöri til vígslubiskups á Hólum en sr. Kristján Björnsson, sóknarprestur í Vestmannaeyjum var einn þriggja sem gaf kost á sér til embættisins. Atkvæðin skiptust þannig að sr. Gunnlaugur Garðarson fékk 27 atkvæði, sr. Kristján 57 og sr. Solveig Lára Guðmundsdóttir 76. Enginn hlaut því hreinan meirihluta og verður valið […]

Nóg framundan um helgina

Það er nóg í boði fyrir Eyjamenn næstu þrjá daga Sjómannadagshelgarinnar en dagskrá helgarinnar í heild sinni má sjá hér að neðan. Þá er lokahnykkurinn á Vigtartorginu í dag og mun m.a. Grímur Kokkur gefa gestum og gangandi hádegismat í dag, auk þess sem tónlistarmenn munu troða upp á svæðinu í dag. Sérstök athygli er […]

Grímur kokkur býður í mat á morgun

Kl. 11:30 til 13:00 á morgun, föstudag, ætlar Grímur kokkur og hans fólk að bjóða öllum Vestmannaeyingum í mat niður á Vigtartorg, þar sem hann ætlar að kynna nýjung frá sér og gefa öllum fiskistangir, franskar og sósu og Ölgerðin ætlar að gefa gos til að skola þessu með. (meira…)

Vigtartorgið farið að taka á sig mynd

Nú standa yfir miklar framkvæmdir á nýja Vigtartorginu við smábátahöfnina en framkvæmdir ná hámarki í dag, fimmtudag og á morgun. Þá gefst Eyjamönnum, ungum sem öldnum, tækifæri til að mæta á svæðið, taka þátt við að smíða, mála eða gróðursetja, nú eða bara fylgjast með hinum vinna og gefa góð ráð. Stefnan er að klára […]

Skemmtun í hæsta gæðaflokki

Á morgun, föstudaginn 1. júní klukkan 18:00, verður sannkallaður stórleikur á Hásteinsvellinum. Þá munu lið ÍBV og Fylkis leiða saman hesta sína í Minningarleik Stein­gríms Jóhannessonar. Liðin verða skipuð gömlum leikmönnum félag­anna og leiktíminn verður 2×30 mínútur. Aðgangseyrir er aðeins 1.000 krónur en börn fá frítt á völlinn. Þá gefst fyrirtækjum og öðrum áhugasömu möguleiki […]

Sjómannadagurinn er ekki hátíð hafsins

Í Vestmannaeyjum er Sjómannadagurinn einn skemmtilegasti hátíðardagur ársins og við peyjarnir sem áttum sjómenn sem feður sem og aðra ættingja vorum svo sannarlega stoltir af því að tengjast þeim og þar með Sjómannadeginum. Þegar ég síðar gerði sjómennskuna að ævistarfi mínu, gerði ég mér fljótt grein fyrir því að þessi dagur er miklu meira en […]

Bikarleik frestað

ÍBV átti að sækja Víking Ólafsvík heim í næstu viku en leik liðanna hefur nú verið frestað til þriðjudagsins 12. júní. Þetta er gert þar sem þeir Abel Dhaira og Tonny Mawejje, leikmenn ÍBV eru að leika með úganska landsliðinu í knattspyrnu en leikmennirnir héldu af landi brott í gær. (meira…)

Varnaðarorð frá Stjörnufræðifélagi Vestmannaeyja um sólskoðun

Sólskoðun getur verið einstaklega ánægjuleg tilbreyting við stjörnuskoðun að nóttu til. Fyrir það fyrsta er sólskoðun stunduð að degi til þegar oftast er nokkuð hlýtt í veðri. Þar að auki er sólin mjög tilkomumikil og getur tekið sjáanlegum breytingum á nokkrum mínútum og klukkustundum. Aftur á móti er mjög mikilvægt að fara með gát og […]

Vignir Stefánsson í raðir Valsmanna

Valsmenn hafa fengið liðstyrk fyrir átökin í N1-deildinni í handbolta næsta vetur en Vignir Stefánsson, hornamaður úr Eyjum, hefur samið við liðið til þriggja ára. Vignir er 22 ára vinstri hornamaður sem hefur leikið með ÍBV allan sinn feril og verið viðloðandi yngri landslið Íslands. Hann skoraði 59 mörk í 20 leikjum með ÍBV í […]

Foreign Monkeys með tónleika á laugardag

Foreign Monkeys verða með dúndrandi tónleika uppi á vigtarhúsinu við hið nýja og glæsilega Vigtartorg nk. laugardag, 2. júní kl. 16:00. Tónleikarnir eru liður í dagskrá sjómannahelgarinnar. Foreign Monkeys eru á mikilli siglingu þessa dagana en nýjasta lag þeirra Zoology er í spilun á X-inu 977 og situr nú þegar þetta er ritað í 11. […]

Risarokktónleikar á morgun

Það stefnir í frábært kvöld í Höllinni á morgun, föstukvöldið 1. júní þegar Biggi í Gildrunni, Páll Rósinkrans, Magni og Eyþór Ingi ætla að þenja rokkraddböndin og taka alla helstu slagara rokksins síðustu áratugi. Með þeim verður eðalhljómsveit, skipuð einhverjum mestu rokkhundum Íslandssögunnar en þetta eru tónleikar sem enginn ætti að láta framhjá sér fara. […]

Lögregla hafði afskipti af stuðningsmönnum Stjörnunnar

Atvik á áhorfendapöllunum í leik ÍBV og Stjörnunnar setti frekar ljótan svip á annars ágætan leik. Stuðningsmenn Stjörnunnar höfðu, samkvæmt heimildum Eyjafrétta, látið illa, sungið miður fallega söngva sem beindust að markahróknum Tryggva Guðmundssyni. Þá var einn þeirra með veiðistöng og bjórflösku bundna á endann og sagðist ætla að veiða Tryggva. (meira…)

Viðgerð á skipalyftu ekki ríkisaðstoð

Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) hefur komist að þeirri niðurstöðu að 370 milljón króna fjárfesting Vestmannaeyjahafnar í viðgerðum á skipalyftu feli ekki í sér ríkisaðstoð. Fram kemur á heimasíðu ESA að stofnunin byggi niðurstöðu sína á upplýsingum frá Vestmannaeyjarhöfn þess efnis að greiða verði gjald fyrir notkun á skipalyftunni sem svara muni til markaðsverðs og að slíkt […]

Heppnir með veður í sjóstönginni

Sjóstangveiðifélag Vestmannaeyja hélt sitt árlega Hvítasunnumót um síðustu helgi. Þátttakendafjöldinn í ár var svipaður og verið hefur undanfarin ár en 34 keppendur röðuðu sér á níu báta. Heildaraflinn var um sjö tonn en veðrið báða keppnisdagana var einstaklega gott. Halldór B. Halldórsson var á staðnum og hér að neðan má sjá myndband hans þegar bátarnir […]

Margrét fer frá Potsdam

Þýsku meistararnir Turbine Potsdam leystu í gær Margréti Láru Viðarsdóttur, landsliðskonu í knattspyrnu, undan samningi en hún fagnaði með þeim þýska meistaratitlinum í fyrradag. Bernd Schröder þjálfari Potsdam staðfesti þetta við netmiðilinn Frauenfussball en ljóst er að þrálát meiðsli Margrétar eru ástæðan fyrir þessu. (meira…)

Skortur á svæfingarlæknum

Svæfingalækni vantar til starfa á Heilbrigðisstofnun Vestmannaeyja. Frá áramótum hefur gengið illa að manna stöðuna og hefur það komið niður á þjónustu við verðandi mæður í Eyjum. Undanfarin sumur hefur skurðstofu Heilbrigðisstofnunar Vestmannaeyja verið lokað í sex vikur. (meira…)

Stelpurnar aftur á beinu brautina

Kvennalið ÍBV sótti Aftureldingu heim í Mosfellsbæinn í kvöld en Afturelding er annar tveggja nýliða í deildinni. Eyjastúlkum hefur ekki gengið sem allra best í síðustu leikju en eftir góðan sigur á Val í 1. umferð, komu tveir tapleikir í röð, fyrst gegn hinum nýliðunum í FH í Hafnarfirði og svo á heimavelli gegn Breiðabliki. […]

Fyrsti sigurinn og Tryggvi bætti markametið

Eyjamenn sprungu loksins út í Íslandsmótinu þegar liðið tók á móti Stjörnunni á Hásteinsvelli í kvöld. Tryggvi Guðmundsson var í fyrsta sinn í byrjunarliðinu og stýrði sóknarleik Eyjaliðsins eins og herforingi. Það var við hæfi að þessi mikli markaskorari, bætti markamet í efstu deild með gullfallegu marki úr aukaspyrnu á 76. mínútu og kom ÍBV […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.