Vill að stjórnvöld innkalli kvótann

Nýti útvegsmenn ekki þær aflaheimildir sem þeim hefur verið úthlutað af ríkinu um þessar mundir ætti ríkisstjórnin þegar að hefjast handa við að innkalla þær heimildir og úthluta til annarra. Samhliða því ætti að skoða hvort ekki ætti að efla strandveiðar við landið. (meira…)

Pétur í raðir Kristiansund

Besti leikmaður ÍBV í vetur í handboltanum, línumaðurinn Pétur Pálsson, hefur ákveðið að yfirgefa félagið og leika með norska handknattleiksliðinu Kristiansund. Þetta kemur fram á mbl.is en Pétur gerir tveggja ára samning við norska liðið. Hann er annar leikmaður ÍBV sem yfirgefur liðið en áður hafði Vignir Stefánsson skipt yfir í Val. (meira…)

�?ruggur sigur á Fylki

ÍBV vann nokkuð sannfærandi sigur á Fylki í 5. umferð Pepsídeildar kvenna í kvöld en liðin áttust við á Hásteinsvellinum. Kristína Erna Sigurlásdóttir kom ÍBV yfir á 28. mínútu og var það eina markið í fyrri hálfleik. Eyjastúlkur áttu ein þrjú skot sem höfnuðu í stöng áður en Anna Þórunn Guðmundsdóttir skoraði annað marki úr […]

�?rjú fíkniefnamál komu upp í vikunni

Það var töluverður erill hjá lögreglu í vikunni sem leið og þá sérstaklega um helgina, enda töluvert um að vera í bænum í tilefni Sjómannadagsins. Skemmtanahald helgarinnar fór þokkalega fram en eitthvað var um pústra og kvartanir vegna hávaða, bæði frá einkasamkvæmum á heimilum sem og frá skemmtistöðum. Þrjú fíkniefnamál komu upp í vikunni en […]

Frumvörpin aðför að kjörum og stórt skref aftur á bak fyrir Vestmannaeyjar

Um 400 manns, sjómenn og landverkafólk, mætti á samstöðufund sem haldinn var í Höllinni í Vestmannaeyjum í dag. Fundinn héldu stéttarfélög sjómanna og landverkafólks en á fundinum var samþykkt ályktun þar sem fram kemur, að fyrirhuguð frumvörp ríkisstjórnarinnar komi til með að rýra kjör sjómanna og landverkafólks. Þá er tekið undir þá skoðun að auðlindagjald […]

Kvótafrumvörp ríkisstjórnarinnar skaða Vestmannaeyjar

Yfir okkur Eyjamönnum og öðrum sem lifa á sjávarútvegi vofa nú yfir frumvörp sem koma til með að skaða samfélag okkar verði þau lögfest. Þrátt fyrir fögur fyrirheit hafa áhrif þeirra ekki verið milduð og skollaeyrum hefur verið skellt við þeim tuga álita sem sérfræðingar hafa skilað inn til atvinnuveganefndar. Hvað frumvarp um veiðigjald varðar […]

Bylgja VE fékk viðurkenningu frá Slysavarnafélagi Landsbjargar

Áhöfnin á Bylgju VE 75 fékk viðurkenningu frá Slysavarnafélaginu Landsbjörg fyrir að hafa sýnt öðru fremur góða öryggisvitund á námskeiðum Slysavarnaskóla sjómanna. Afhendingin fór fram á Sjómannadaginn en skipstjóri Bylgju VE, Óskar Matthíasson, tók við viðurkenningunni fyrir hönd áhafnarinnar. Viðurkenningin er veitt árlega og er farandbikar sem er afhentur til varðveislu um borð í viðkomandi […]

Einstakur stjarnfræðilegur viðburður

Næstkomandi þriðjudag, 5. júní höfum við einstakt tækifæri að fylgjast með afar sjaldgæfum stjarnfræðilegum atburði, sem við fáum ekki tækifæri að sjá aftur. Að kvöldi þriðjudags mun reikistjarnan Venus, sem gengur um sólina og er innan við jörð­ina, ganga fyrir sólu frá okkur séð og tekur það Venus tæpa 7 tíma að haltra framhjá sólunni. […]

Samstöðufundur sjómanna og landverkafólks í sjávarútvegi í dag

Í dag, mánudaginn 4. júní, verður haldinn opinn fundur í Höllinni en fundarefnið er kvótafrumvörp ríkisstjórnarinnar. Fundurinn hefst klukkan 13:00 en að honum standa sjómannafélögin í Vestmannaeyjum, Skipstjóra- og Stýrimannafélagið Verðandi, Sjómannafélagið Jötunn, Vélstjóradeild VM í Vestmannaeyjum og svo stéttarfélagið Drífandi. (meira…)

Hvers vegna þáðum við ekki far með gullvagni bræðranna frá Rifi?

Hluthafar í Vinnslustöðinni hf. (VSV), bræðurnir Guðmundur og Hjálmar Kristjánssynir, birtu öðrum hluthöfum og Eyjamönnum öllum opið bréf í Fréttum í síðustu viku og kölluðu það „hina hliðina á deilum innan VSV“. Nokkur atriði þar kalla á athugasemdir af hálfu okkar, fyrr­verandi og núverandi stjórnarmanna og framkvæmdastjóra VSV, önnur ekki. Ekkert er til dæmis að […]

�?urftu að aflýsa æfingu vegna sjúkraflugs

Hætta þurfti við fyrirhugaða æfingu Björgunarfélags Vestmannaeyja og þyrlu Landhelgisgæslunnar sem fyrirhuguð var í dag. Ástæðan var að gæslan þurfti að sinna sjúkraflugi og sækja slasaðann sjómann um borð í norskum togara sem er statt um 220 mílur utan við Reykjaneshrygg. Skipið mun sigla til móts við þyrlurnar en tvær þyrlur fara saman í svona […]

KFS lagði Ísbjörninn að velli

Í gær sótti KFS lið Ísbjarnarins heim á gervigras Kórsins í K’opavogi. Ísbirnirnir virtust eiga erfitt uppdráttar í sumarblíðunni því Eyjamenn fór á kostum og unnu 1:6, eftir að staðan í hálfleik hafði verið 0:4. Hjalti Kristjánsson, þjálfari liðsins kom inn á, á 80. mínútu leiksins og varð þar með elsti leikmaðurinn sem spilað hefur […]

Hið þekkta Björgvinsbelti gengið í endurnýjun lífdaga

Hinn margreyndi björgunarbúnaður, Björgvinsbeltið svokallaða, sem upprunalega var hannað fyrir rúmum tveimur áratugum af Björgvini Sigurjónssyni, Kúta, sjómanni í Vestmannaeyjum, hefur verið endurhannað með tilliti til nútímakrafna í björgunarmálum og hefur Slysavarnafélagið Landsbjörg (SL) fengið einkaleyfi á sölu þess á öllum Norðurlöndunum og Bretlandseyjum. Fyrsta nýja Björgvinsbelið var í gær afhent Bjarna Sighvatssyni, útgerðarmanni í […]

Flotinn ekki til veiða eftir sjómannadag

Vegna þeirrar alvarlegu stöðu sem blasir við íslenskum sjávarútvegi verði frumvörp til laga um stjórn fiskveiða og veiðigjöld sem nú eru til meðferðar á Alþingi að lögum er því beint til félagsmanna að halda skipum sínum ekki til veiða eftir sjómannadag. Útvegsmenn munu í næstu viku funda með starfsfólki, sveitarstjórnum og fjölmörgum aðilum sem byggja […]

Athuga með leigu á öðrum farþegabát

Bæjaryfirvöld í Eyjum vilja skoða þann möguleika að fá til landsins farþegabát sem hægt væri að nota til siglinga í Landeyjahöfn næsta vetur, þegar Herjólfur þarf að sigla til Þorlákshafnar. Í umfjöllun í Morgunblaðinu í dag kemur fram, að bæjarstjórinn hefur óskað eftir því við vegamálastjóra að fá faglegan stuðning við athugun á þessum möguleika. […]

Magnaðir rokktónleikar

Í kvöld var boðið upp á hreint magnaða rokktónleika í Höllinni þegar sveitin Tyrkja-Gudda steig á svið ásamt söngvurunum Bigga úr Gildrunni, Páli Rósinkrans, Magna og Eyþóri Inga. Húsið var troðfullt af rokkþyrstum Eyjamönnum á öllum aldri og þeir fengu sko sannarlega sitt, því tónlistarmennirnir fóru hreinlega á kostum þegar þeir tóku alla helstu rokkslagarana, […]

Léttleikinn í fyrirrúmi

Það var skemmtileg stemmning á Hásteinsvelli í dag þegar eldri leikmenn ÍBV og Fylkis áttust við í Minningarleik Steingríms Jóhannessonar. Þótt flestir leikmennirnir séu nokkrum kílóum þyngri en þeir voru þegar þeir voru upp á sitt besta, var léttleikinn í fyrirrúmi enda allir mættir til að skemmta sér og heiðra minningu Steingríms. Fjölmargir áhorfendur voru […]

Líf og fjör á glæsilegu Vigtartorgi

Síðustu tvo sólarhringa hefur verið líf og fjör við hið nýja Vigtartorg við smábátabryggjuna í Eyjum. Sjálfboðaliðar á öllum aldri hafa lagt hönd á plóg þannig að úr verður glæsilegt útivistarsvæði við lífæð samfélagsins, höfnina. Í morgun komu leikskólabörn með fiska sem þau höfðu föndrað til að skreyta í sjálfu vigtarhúsinu en svæðið er allt […]

Selja flottar ÍBV-húfur til styrktar fjölskyldu Steingríms

Í dag, klukkan 18:00 verður stórleikur á Hásteinsvellinum þegar lið gamalla kempa úr ÍBV og Fylki munu leiða saman hesta sína í Minningarleik Steingríms Jóhannessonar, sem lést eftir erfið veikindi á árinu. Allur ágóði leiksins rennur til fjölskyldu Steingríms en nokkrar knattspyrnukonur úr ÍBV ætla að bæta um betur og selja flottar ÍBV-húfur á leiknum. […]

Heim eftir hátt í fjörtíu ár

Landinn gægist undir hrauniði í Heimaey á sunnudagskvöldið kemur. Í þættinum er Gerði Sigurðardóttur, fyrrverandi íbúa og eiganda einbýlishússins Gerðisbraut 10, fylgt eftir þegar hún fær að líta inn í húsið sem grófst undir fimmtán metra þykkt vikurlag í gosinu 1973. Húsið stendur uppi en vikurinn flæddi inn um hurðir og glugga. Þótt tæplega fjörtíu […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.