Allar ferðir til �?orlákshafnar

Herjólfur mun í dag eingöngu sigla til og frá Þorlákshöfn en þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Eimskip. Í tilkynningunni segir að það sé gert vegna veðurs og öldugangs í Landeyjahöfn en siglt var frá Vestmannaeyjum klukkan 7:30 og frá Þorlákshöfn verður farið 11:15. Þá verður siglt síðdegis frá Eyjum klukkan 15:00 og frá Þorlákshöfn […]
Áfram siglt í Landeyjahöfn

Herjólfur mun sigla áfram í Landeyjahöfn fram yfir helgi en farið verður eftir sjávarföllum, öldufari og veðri, eins og kemur fram í fréttatilkynningu frá Eimskip. Farnar verða þrjár ferðir á dag og er búið að opna fyrir bókanir í þessar ferðir. Farþegar eru hvattir til að mæta tímanlega og vera tilbúnir með farmiða sína. (meira…)
�??Semjum ekki við náttúruöflin�??

„Við ætlum að leysa þetta mál eftir því sem frekast er kostur, en við verðum og erum nauðbeygð til þess að gefa málinu tíma. Vegna þess við verðum að sjá hver framvindan verður í náttúrunni, og síðan taka mið af því,“ sagði Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra, á Alþingi um Landeyjahöfn. Árni Johnsen, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, hóf utandagskrárumræðu […]
Trúnaðarbrestur varð 1994

Fátt hefur verið um meira rætt í þjóðfélaginu en orð Páls Schevings, formanns þjóðhátíðarnefndar á kynningarfundi um þjóðhátíð í Höllinni í síðustu viku. Þar sagði hann, að því miður virðist nærvera Stígamóta magna upp það vandamál sem kynferðisleg valdbeiting er. Þarna er hann svara spurningu um samskiptin við Stígamót á fundinum. Orðrétt svarar Páll: „Það […]
Bæjó-arnir mættust í matarslag

Í nýjasta þætti strákanna á Eyjar TV mætast þeir Guðjón Hjörleifsson, fyrrum bæjarstjóri og betur þekktur sem Gaui bæjó og Elliði Vignisson, núverandi bæjarstjóri eða Elliði bæjó í matarkeppni hjá Einsa Kalda. Í keppninni fengu þeir félagar 25 mínútur til að elda löngu og risotto en sjón er sögu ríkari. Þáttinn má sjá hér að […]
Landeyjahöfn aftur opin

Landeyjahöfn var opnuð aftur í gær, miðvikudag, í fyrsta sinn í sléttar 16 vikur. Síðast sigldi Herjólfur í Landeyjahöfn miðvikudaginn 12. janúar. Þótt ekki sé búið að ná fullri dýpt í og við höfnina er þungu fargi létt af Eyjamönnum enda hafa samgöngur eftir áramót færst áratugi aftur í tímann með tilheyrandi afleiðingum. Samkvæmt […]
Áfram siglt í Landeyjahöfn á morgun

Herjólfur mun sigla áfram í Landeyjahöfn á morgun fimmtudag. Siglt verður með tilliti til sjávarfalla og verða farnar þrjár ferðir. Fyrsta ferð er frá Eyjum 7:30 og frá Landeyjahöfn 8:45. Næsta ferð er svo 17:00 frá Eyjum og 18:30 frá Landeyjahöfn. Síðasta ferð dagsins er svo frá Eyjum klukkan 20:00 og frá Landeyjahöfn klukkan 21:30. […]
Perlan á leið frá Landeyjahöfn

Dýpkunarskipið Perlan er á leið frá Landeyjahöfn en samkvæmt upplýsingum frá Siglingastofnun gat skipið ekki athafnað sig sem skildi í hafnarmynninu og því talið ástæðulaust að hafa skipið á staðnum. Skandia mun hins vegar halda áfram en dýpkun í hafnarmynninu gengur hægt enda aðstæður erfiðar, vindasamt og sterkur straumur við höfnina. (meira…)
Dælurör brotnaði í Landeyjahöfn

Fjögurra klukkustunda töf varð á dýpkun Landeyjahafnar í nótt eftir að dælurör brotnaði. Dýpkað er við erfiðar aðstæður í mynni hafnarinnar en hún verður opnuð í dag eftir fjögurra mánaða lokun. Bæjaryfirvöld í Vestmannaeyjum hafa þrýst á opnun Landeyjahafnar og bent á hagsmuni fyrirtækja í verslun og þjónustu. Um þúsund manns áttu bókað far til […]
Áætlun fyrir fimmtudaginn gefin út á morgun miðvikudag

Breytingar verða á áætlun Herjólfs á morgun miðvikudaginn 4. maí 2011. Fyrsta ferð Herjólfs frá Vestmannaeyjum er klukkan 7:30 og siglt verður til Þorlákshafnar og aftur til Vestmannaeyja frá Þorlákshöfn klukkan 11:15. Önnur ferð Herjólfs verður farin frá Vestmannaeyjum klukkan 16:00 í Landeyjahöfn og aftur til Vestmannaeyja klukkan 17:40. Þriðja og síðasta ferð Herjólfs fer […]
Landeyjahöfn opnuð á morgun

Rúmum klukkutíma eftir að tilkynnt hafði verið um að Herjólfur myndi áfram sigla til Þorlákshafnar á morgun hefur verið ákveðið að sigla fyrstu ferð þangað en fara tvær ferðir til Landeyjahafnar á meðan sjávarföll leyfa. Fyrri ferð til Landeyjahafnar verður farin klukkan 16 og til Eyja aftur klukkan 17:40. Seinni ferðin til Landeyjahafnar verður farin […]
�?urfa að sæta sjávarföllum

„Það er ljóst samkvæmt þeim mælingum sem voru teknar í dag að ef Herjólfur á að sigla inn í Landeyjahöfn á morgun, þá verður hann að sigla eftir sjávarföllum,“ sagði Sigurður Áss Grétarsson hjá Siglingastofnun í samtali við Eyjafréttir. Vonir voru bundnar við að skipið myndi sigla inn í Landeyjahöfn í fyrramálið en dýpkunarframkvæmdir síðasta […]
Leikskólakennarar vilja að uppsögn leikskólafulltrúa verði dregin til baka

Leikskólakennarar í Vestmannaeyjum skora á bæjaryfirvöld að draga uppsögn á leikskólafulltrúa til baka. Þeir harma þá ákvörðun fræðslu- og menningarráðs að fella niður stöðuna og segja leikskólafulltrúa vera bakhjarl leiskólastarfsfólks og foreldra leikskólabarna. Þetta kemur fram í ályktun frá leikskólakennurum sem má lesa hér að neðan. (meira…)
Perlan búin að dæla upp 5000 rúmmetrum

Í hádeginu var greint frá því að dæluskipið Perlan hefði lítið sem ekkert getað dælt upp sandi í Landeyjahöfn. Heimildir Eyjafrétta reyndust ekki réttar því Perlan hefur frá því klukkan 11 í gærmorgun, dælt upp rúmlega 5000 rúmetrum af efni í og við höfnina. Perlan á ekki að geta athafnað sig í meira en eins […]
Dýpi við Landeyjahöfn mælt aftur í dag

Dæluskipið Skandia var við dýpkunarframkvæmdir í Landeyjahöfn í nótt og í morgun. Perlan hefur gat hins vegar ekki athafnað sig þar á sama tíma en Perlunni var ætlað að aðstoða við dýpkunarframkvæmdir, til að flýta fyrir opnun hafnarinnar. Samkvæmt heimildum Eyjafrétta verður dýpi við höfnina mælt í dag og ætti því að liggja fyrir síðdegis […]
Skömmuðumst okkar fyrir fyrri hálfleikinn

„Ég var mjög ósáttur við fyrri hálfleikinn, eins og reyndar örugglega allir þeir sem voru að horfa á leikinn. Við vorum bara drullulélegir og eiginlega enginn sem stóð upp úr í fyrri hálfleik. Við skömmuðumst okkar í hálfleik. Seinni hálfleikurinn var allt annar, miklu betri fótboltalega og við pressuðum á þá. Framarar sköpuðu sér í […]
Tryggvi skoraði sigurmarkið á lokasekúndunni

Tryggvi Guðmundsson sá til þess að Eyjamenn fögnuðu sigri gegn Fram í kvöld á Hásteinsvelli. Síðustu tvö ár hafa þessi tvö lið mæst í fyrstu umferð Íslandsmótsins, reyndar í bæði skiptin á Laugardalsvelli og í bæði skiptin hafa Framarar haft betur. En í þetta sinn voru það Eyjamenn sem höfðu betur en Tryggvi skoraði sigurmarkið […]
Elliði óskar eftir því að siglingar í Landeyjahöfn hefjist á miðvikudag

Elliði Vignisson, bæjarstjóri segist hafa óskað eftir því að siglingar hefjist í Landeyjahöfn á miðvikudaginn og að í versta falli, yrði siglt eftir sjávarföllum og ferðum sleppt á háfjöru eða þeim hnikað til. Eftir miklu er að slægjast fyrir Eyjamenn því á fimmtudaginn hefst gríðarfjölmennt blakmót öldunga í Eyjum með um eitt þúsund þátttakendur auk […]
�?fing hjá 8 flokki ÍBV fellur niður

Vegna leiks ÍBV og Fram í meistaraflokki í fótbolta á Hásteinsvelli kl. 18:00 í kvöld hefur verið ákveðið að æfing hjá 8. flokki ÍBV falli niður í dag. Mætum þó hress og glöð á leikinn og hvetjum ÍBV til sigur. (meira…)
Ágjöf Hrafnhildar Ingu

Hrafnhildur Inga Sigurðardóttir opnaði málverkasýninguna Ágjöf í Einarsstofu, í Safnahúsinu í Vestmannaeyjum á föstudaginn 29. apríl. Á sýningunni eru olímálverk, einkum sjávarmyndir af brimi, úfnum sjó og öldugangi. Hrafnhildur Inga hefur haldið fjölda einkasýninga og tekið þátt í samsýningum hér og í útlöndum. Sýningin stendur til 8. maí og er opin á sama tíma og […]