Elliði Vignisson, bæjarstjóri segist hafa óskað eftir því að siglingar hefjist í Landeyjahöfn á miðvikudaginn og að í versta falli, yrði siglt eftir sjávarföllum og ferðum sleppt á háfjöru eða þeim hnikað til. Eftir miklu er að slægjast fyrir Eyjamenn því á fimmtudaginn hefst gríðarfjölmennt blakmót öldunga í Eyjum með um eitt þúsund þátttakendur auk fylgdarliðs.