Nagladekkin undan bílunum

Vikan var frekar tíðindalítil hjá lögreglunni í Vestmannaeyjum og engin alvarleg mál sem komu upp. Einn fékk þó að gista fangageymslu lögreglunnar vegna ölvunar og óspekta. Þá þurfti lögreglan að stilla til friðar við einn af skemmtistöðum bæjarins en engin eftirmál urðu af því. Lögreglan vill beina því til eigenda bifreiða að láta taka nagladekkin […]

Opnar Landeyjahöfn í vikunni?

Samkvæmt heimildum Eyjafrétta verður dýpi í Landeyjahöfn mælt í dag. Sömu heimildir herma að dæling hafi gengið vel um helgina þannig að ef mæling komi vel út í dag, gæti farið svo að höfnin opni í vikunni. Dýpi í og við höfnina hefur verið nægilegt ef frá er skilið haft í hafnarmynninu sem tekið var […]

Opnunarleikur Íslandsmótsins í Eyjum klukkan 18:00

Í dag klukkan 18:00 tekur ÍBV á móti Fram í fyrsta leik Pepsídeildarinnar. Opnunarleikur Íslandsmótsins átti að fara fram í gær en þar sem snjór var yfir öllu í höfuðborginni, var leik Breiðabliks og KR frestað til morguns. Leikur ÍBV og Fram hefst á Hásteinsvelli klukkan 18:00 en aðrir leikir dagsins hefjast allir klukkan 19:15. […]

Starf Stígamóta verðskuldar virðingu

Undirritaður vill taka skýrt fram að grasrótarsamtökin Stígamót vinna bæði þarft og gott starf. Það er ekki síst fyrir tilstilli Stígamóta að varpað hefur verið ljósi á hversu stórt, algengt og alvarlegt mein kynferðislegt ofbeldi er í íslensku samfélagi. Starf þeirra verðskuldar virðingu en er ekki hafið yfir gagnrýni. Ummæli mín á borgarafundi í Vestmannaeyjum […]

Týr 90 ára í dag

Í dag, 1. maí er Knattspyrnufélagið Týr 90 ára. Af þessu tilefni settu nokkrir Týrarar merki félagsins utan á klúbbhús ÍBV. Aðalstjórn ÍBV þakkar fyrir gjöfina og mun í framhaldi funda um málið. Aðalstjórn ÍBV minnir á í þessari umræðu að félagið er runnið undan rifjum tveggja félaga og munum við ekki mismuna þeim á […]

Ef tilmælum þrýstihópsins verður ekki hlýtt, mun þrýstihópurinn beina spjótum sínum að stjórnvöldum

Með þessu bréfi vil ég tilkynna ykkur að ég hyggst stofna þrýstihóp ogundirskriftarsöfnun til stuðnings Stígamóta á Þjóðhátíð. Markmið þrýstihópsog undirskriftarsöfnunar eru að:1. Stígamót fái viðeigandi aðstöðu í Herjólfsdal, eða þar sem við á, á meðanÞjóðhátíð í Vestmannaeyjum stendur. (Sambærileg þeirri sem hjúkrunarfólkfær)2. Að starfskonur Stígamóta greiði ekki fyrir aðgang að hátíðinni ogferðakostnaður og uppihald […]

KFS með fyrsta sigurinn á þessu tímabili

KFS varð í dag fyrst liða til að tryggja sér sæti í 2. umferð í Valitorbikarkeppninni en í dag unnu Eyjamenn Álftanes 2:0. Leikurinn átti upphaflega að fara fram á morgun, 1. maí en vegna vallarskilyrða á Bessastaðavelli, var leikurinn færður inn í Kórinn og fram um einn dag. Þetta var jafnframt fyrsti leikur tímabilsins […]

Krefjast þess að Stígamót verði boðin velkomin á �?jóðhátíð og fái viðunandi aðstöðu

Stofnuð hefur verið facebooksíða, sem er ætlað að þrýsta á þjóðhátíðarnefnd að fá Stígamót á Þjóðhátíð, eða eins og forsvarsmaðurinn segir á síðunni: Til að forðast neikvætt umtal og frekari aðgerðir þrýstihópsins mælist ég til þess að Þjóðhátíðarnefnd bjóði starfskonum Stígamóta opinberlega að koma á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum, þar sem þeirra býður viðeigandi aðstaða. Og […]

�??�?g stýri ekki náttúruöflunum�??

Bæjarstjórn Vestmannaeyja samþykkti í gær ályktun þar sem þess er krafist að samgönguyfirvöld svari fyrir um til hvaða úrræða verði gripið til að ljúka framkvæmdum við Landeyjahöfn. Ögmundur Jónasson, innanríkisráðherra, segir að ráðuneytið hafi gert það sem í þeirra valdi stendur. (meira…)

Fannar tryllir lýðinn í Hallarlundi á morgun

Hinn einni sanni Elías Fannar Stefnisson, trúbador mun trylla lýðinn í Hallarlundi á morgun, laugardag. Sama kvöld verður lokahóf í sjóstangveiðimóti SJÓVE og má því búast við lífi og fjöri í húsinu. Samkvæmt áræðanlegum heimildum hefur Fannar lofað að fara úr að ofan ef stemmningin verður þannig en sömu heimildir herma að það sé eitthvað […]

Sérstök forsala fyrir þjóðhátíð hefst 6. maí

Ein af þeim nýjungum sem kynntar voru á borgarafundi um þjóðhátíð í gærkvöldi var forsala á hátíðina. Þjóðhátíðarnefnd tilkynnti að miðaverð yrði hækkað í ár frá því í fyrra enda hefur miðaverð haldist það sama undanfarin ár. Hins vegar verður sérstök forsala nú í byrjun maí, nánar tiltekið frá 6. til 13. maí en forsalan […]

Landeyjahöfn er ekki fullbyggð

Frá því að Landeyjahöfn opnaði sumarið 2010 hafa frátafir á siglingum um höfnina, meðal annars vegna uppsöfnunar sands í hafnarmynninu, verið langt um fram það sem ásættanlegt getur talist. Enn sér ekki fyrir endann á vandræðunum. Fyrirtæki í Vestmannaeyjum og almennir íbúar hafa ekki einungis orðið fyrir miklum óþægindum heldur einnig gríðarlegum fjárhagslegum skaða vegna […]

Innanfélagsmót Sjóve um helgina

Innanfélagsmót Sjóstangaveiðifélags Vestmannaeyja verður haldið nú um helgina, nánar tiltekið laugardaginn 30. apríl, en ekki 30. maí eins og misritaðist í Fréttum í gær. Mótssetningin verður á Lundanum í kvöld, föstudag kl. 20. 30. Í fyrramálið verður síðan haldið til veiða í kringum Eyjar. Veðurspá er ágæt fyrir morgundaginn og ekki ætti að væsa um […]

Hippabandið með tónleika

Hippabandið ætlar að halda tónleika næstkomandi laugardagskvöld 30. apríl í Vinaminni kaffihús. Tónleikarnir byrja stundvíslega klukkan 21 og verða til 23 en aðgangur er ókeypis. „Við ætlum að halda ótrauð áfram og undirbúa Hippahátíð sem verður um miðjan oktober. Sjáumst með blóm í hári, með ást og friði í sál og sinni í Vinaminni,“ segir […]

Páll �?skar semur þjóðhátíðarlagið 2011

Páll Óskar Hjálmtýsson mun semja þjóðhátíðarlagið í ár. Þetta var tilkynnt á fjölmennum borgarafundi í Höllinni í kvöld þar sem fjallað var um málefni þjóðhátíðarinnar og framtíðarsýn þjóðhátíðarnefndar. Auk þess var glæsileg dagskrá hátíðarinnar í ár kynnt en fundargestir klöppuðu vel þegar höfundur þjóðhátíðarlagsins var kynntur til leiks. (meira…)

Krefjast þess að lokið verði við Landeyjahöfn

Bæjarstjórn Vestmannaeyja lýsir yfir þungum áhyggjum af stöðu mála í Landeyjahöfn. Lokun hafnarinnar í vetur hefur valdið samfélaginu í Vestmannaeyjum og víðar á suðurlandi gríðarlegum búsifjum. Fjárhagslegt tjón samfélagsins nemur hundruðum milljóna og jafvel milljörðum. Öllum má ljóst vera að jafnvel þótt höfnin opnuð á næstu dögum þá hefur þar með eingöngu verið sett undir […]

Stelpunum spáð fimmta sætið

Kvennaliði ÍBV er, eins og karlaliðinu, spáð fimmta sæti í Pepsídeildinni í árlegri spá forráðamanna liðanna. Samkvæmt spánni mun Valur verða Íslandsmeistari, Þór frá Akrureyri og Stjarnan fengu jafn mörg stig í öðru og þriðja sæti og í því fjórða er Breiðablik. Grindavík og Þrótti er hins vegar spáð falli. Spánna má sjá hér að […]

Eyjamönnum spáð fimmta sæti

ÍBV endar í fimmta sæti ef marka má árlega spá forráðamanna liðanna í Pepsídeild karla. FH-ingar endurheimta Íslandsmeistaratitilinn og ótrúlegt en satt, þá er nýliðum deildarinnar, Þór og Víkingi spáð falli. KR er spáð öðru sæti og Íslandsmeistarar Breiðablik enda í þriðja sæti samkvæmt spánni, sem má sjá í heild sinni hér að neðan. (meira…)

Vestmannaeyjar með 9,9 prósent af heildarverðmæti landaðs fiskafla

9,9 prósent af heildaraflaverðmæti sjávarafla var landað i Vestmannaeyjum á árinu 2010. Eru Eyjar í öðru sæti hvað landaðs sjávarafla, mestu er landað í Reykjavík eða 16,7 prósent. – Er verðmæti sjávaraflans í Eyjum að verðmæti 13,7 milljarðar króna. Þetta kemur fram í Fiskifréttum sem út komu í dag. (meira…)

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.