Herjólfi seinkar í dag

Seinni ferð Herjólfs í dag, fimmtudaginn 28. apríl mun seinka vegna veðurs um tvær klukkustundir. Herjólfur mun því leggja af stað frá Eyjum klukkan 17:00 og frá Þorlákshöfn klukkan 21:00. Meðalvindhraði á Stórhöfða klukkan 12:00 var 35 metrar á sekúndu. (meira…)

Vignir með ÍBV næsta vetur

Hornamaðurinn sterki, Vignis Stefánsson hefur gert nýjan tveggja ára samning við ÍBV. Þetta kemur fram á heimasíðu ÍBV en Vignir þótti spila mjög vel í vetur enda varð hann markahæsti leikmaður 1. deildar. Vignir er 21 árs og hefur ávallt leikið með ÍBV en auk þess lék hann með U-21 árs landsliðinu í vetur. (meira…)

Undirbúningur Goslokahátíðar hafinn

Nú er undirbúningur Goslokahátíðar 2011 hafinn en sérstök undirbúningsnefnd vinnur að dagskrá hátíðarinnar. Í fréttatilkynningu frá nefndinni kemur fram að hápunktur hátíðarinnar í ár verður sýning á listaverkum Sigmundar, stórtónleikar með tónlist Oddgeirs Kristjánssonar og að sjálfsögðu gleðin í Skvísusundi. Sem fyrr eru allar ábendingar um innlegg í dagskrána vel þeganar. (meira…)

Opinn borgarafundur um þjóðhátíð í kvöld í Höllinni

kvöld, fimmtudag, klukkan 20:00 heldur þjóðhátíðarnefnd opinn borgarafund í Höllinni um hátíðina. Í auglýsingu um fundinn segir að nefndin telji brýnt að koma sínum sjónar­miðum á framfæri um framtíð og framkvæmd þjóðhátíðar en auk þess verði dagskrá hátíðarinnar í ár kynnt. Í lok fundar verða svo leyfðar fyrirspurnir úr sal þar sem bæjarbúar geta komið […]

Aukaflug á föstudaginn

Flugfélagið Ernir hefur bætt við aukaferðum til Eyja á föstudaginn en alls eru ferðirnar orðnar fjórar og ekki útilokað að enn verði bætt við. Í tilkynningu frá félaginu kemur fram að lausum sætum fari ört fækkandi og er fólk hvatt til að bóka sem fyrst á heimasíðu félagsins, www.ernir.is. (meira…)

Langþreyttir Eyjaskeggjar

„Ég efast ekkert um það að höfnin opnar í vikunni, en það leysir ekki vandann. Við verðum að tryggja það að næsti vetur verði ekki eins og þessi var,“ segir Elliði Vignisson bæjarstjóri í Vestmannaeyjum í samtali við blaðamann DV. (meira…)

Eyjamenn höfðu betur gegn Stjörnunni

Karlalið ÍBV hafði betur gegn Stjörnunni í síðasta æfingaleik liðanna fyrir Íslandsmótið en liðin mættust á Helgafellsvellinum í Eyjum síðdegis í dag. Varla hefði verið hægt að velja betri dag veðurfarslega fyrir leikinn en leikurinn bar þess öll merki að leikmenn beggja liða eru óvanir að spila á grasi. Eyjamenn voru talsvert sterkari í fyrri […]

Hárrétt viðbrögð áhafnar björguðu mannslífum

Ekki mátti tæpara standa þegar þrír af skipsverjum Hugins VE urðu fyrir eitrun þegar þeir unnu við að skipta um loka í dælurými skipsins sl. miðvikudag. Tveir mannanna voru að losa lokann við mjög erfiðar aðstæður niður í kili skipsins og þriðji maðurinn var þeim til að­stoðar á palli fyrir ofan þegar gas komst inn […]

ÍBV og Eyjatölvur semja

Í morgun undirrituðu fulltrúar ÍBV, Eyjatölva og Flugger samstarfssamning út árið 2012. Flugger og áður Harpa og ÍBV hafa átt í löngu og góðu samstarfi, ekki verður breyting á því næstu árin. Þá eru Eyjatölvur umboðsaðili fyrir Flugger í Eyjum. (meira…)

Setur upp hvolpasvipinn og húkkar sér far

Það er byrjað að hausta í Ástralíu en þar eru einnig páskar og samgöngur því stopular. Sighvatur tekur járnbrautalest yfir þvera Ástralíu og suður með sjó. Hann setur síðan upp hvolpasvipinn og reynir að komast á puttanum síðustu 800 kílómetrana til Melbourne. Það gengur ekki sem skyldi og hann rétt nær til borgarinnar fyrir flugið […]

Spila gegn Stjörnunni í dag

Í dag, miðvikudag mun karlalið ÍBV leika sinn árlega æfingaleik í Eyjum fyrir Íslandsmótið. Bjarni Jóhannsson, fyrrum þjálfari ÍBV kemur þá með lærisveina sína í Stjörnunni í heimsókn en leikurinn fer fram á Helgafellsvelli og hefst um fimmleytið. Þetta er síðasti æfingaleikur ÍBV-liðsins fyrir átökin í Íslandsmótinu enda er fyrsti leikur Íslandsmótsins næstkomandi mánudag þegar […]

Uppsjávarskip til dýpkunar

Óvíst er hvenær Landeyjahöfn verður opnuð aftur en ólíklegt er að hægt verði að dýpka mikið næstu daga vegna veðurs og sjólags við höfnina. Siglingastofnun hefur óskað eftir því að Vinnslustöðin leggi til eitt af sínum uppsjávarskipum til dýpkunar. (meira…)

Nóg að gera hjá lögreglunni í vikunni

Lögreglan hafði í nógu að snúast í vikunni sem leið enda páskar og oft á tíðum hefur lögreglan verið önnum kafinn vegna hinna ýmsu verkefna. Töluverður fjöldi fólks var að skemmta sér á öldurhúsum bæjarins yfir páskahelgina og fór nokkur tími lögreglunnar í að sinna fólki sem ekki gat bjargað sér sökum ölvunar. (meira…)

Ekkert óeðlilegt að okkur sé spáð fimmta sætinu

„Mér finnst ekkert óeðlilegt að þið spáið okkur fimmta sæti. Við ætlum alltaf að gera betur en í fyrra og það er markmiðið. Við vitum samt alveg að Vala Flosadóttir ætlaði alltaf að hoppa hærra en hún náði því ekki alltaf þó að hún hafi stefnt að því,“ sagði Heimir Hallgrímsson þjálfari ÍBV um spá […]

Fótbolti.net spáir ÍBV fimmta sætinu

Sérfræðingar vefsins Fótbolti.net spá ÍBV fimmta sætinu í Íslandsmótinu í knattspyrnu í sumar. Vefurinn hefur verið að birta spá sína síðustu daga, eitt lið í einu en hér að neðan má sjá hvernig sérfræðingarnir raða liðunum upp. (meira…)

Hermann lék 500. leikinn

Hermann Hreiðarsson, landsliðsfyrirliði í knattspyrnu, náði stórum áfanga á löngum ferli á laugardaginn þegar hann lék með Portsmouth gegn Swansea í ensku 1. deildinni. Hermann spilaði þar sinn 500. deildaleik á löngum og farsælum ferli og varð með því aðeins þriðji íslenski knattspyrnumaðurinn í sögunni sem nær þeim leikjafjölda. (meira…)

�?treikningar Siglingamálastofnunar varðandi Landeyjahöfn rangir?

Eins og kemur fram í fyrirsögnini, þá hef ég oft sinnis velt því upp og spurt mig þeirrar spurningar, og svarað, hvort og þá hversvegna útreikningar Siglingamálastofnunnar séu rangir? Fjöl margir Eyjamenn hafa spurt mig að þessu, flestir reyndar tekið undir með mér, en sumir beðið mig um að útskýra mál mitt í grein. Hingað […]

Lúðrasveit Vestmannaeyja bæjarlistamaður 2011

Lúðrasveit Vestmannaeyja var á Sumardaginn fyrsta valin sem bæjarlistamaður Vestmannaeyja árið 2011. Lúðrasveitin tekur við af Jónu Heiðu Sigurlásdóttur, listakonu en Jóna Heiða afhenti Jarli Sigurgeirssyni, stjórnanda sveitarinnar farandgrip sem bæjarslistamaðurinn hlýtur ár hvert. Hildur Sólveig Sigurðardóttir, formaður fræðslu- og menningarráðs Vestmannaeyja hélt utan um athöfnina en ræðu hennar má lesa hér að neðan. (meira…)

Svaf undir berum himni í Ástralíu

Sighvatur er nú kominn til Norður-Ástralíu og byrjar dvöl sína í heimsálfunni með því að sofa undir berum himni úti í óbyggðum. Hann fær sér bílaleigubíl og keyrir frá Darwin inn í mitt land, til Alice Springs, og fær ástralska þjóðvegastemmningu beint í æð. (meira…)

Er þetta ekki örugglega markvörður?

Nú styttist í fyrsta leik karlaliðs ÍBV í knattspyrnu en mánudaginn 2. maí tekur liðið á móti Fram á Hásteinsvellinum. Strákarnir hafa hitað upp með myndböndum sem hafa birst á heimasíðu ÍBV en nýjasta myndbandið hefur vakið verðskuldaða athygli. Þar leikur úganski markvörðurinn Abel Dhiara listir sínar með knöttinn en kappinn hefur betri knatttækni en […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.