Aukasýning á Mamma Mia í dag

Vegna mikillar aðsóknar hefur Leikfélag Vestmannaeyja ákveðið að hafa aukasýningu á söngleiknum Mamma Mia í dag klukkan 16:00. Eins og greint var frá hér á Eyjafréttum hefur var uppselt á fyrstu átta sýningar söngleiksins og því gripið til þess ráðs að taka niður pantanir á biðlista. Til að svara eftirspurninni var því ákveðið að hafa […]
Aðsúgur gerður að lögreglunni í Eyjum

Aðfaranótt skírdags 21 apríl s.l. var gerður aðsúgur að lögreglumönnum er voru við skyldustörf í Vestmannaeyjabæ. Var þar um að ræða ungmenni er voru fyrir utan skemmtistaðinn Prófastinn í Vestmannaeyjum en þar fór fram dansleikur á vegum Framhaldsskóla Vestmannaeyja. Hugðust lögreglumennirnir taka áfengi af 16 ára unglingi er ólæti byrjuðu. (meira…)
Uppselt á fyrstu átta sýningar Mamma Mia!

Það er óhætt að segja að viðtökur leiksýningar Leikfélags Vestmannaeyja hafi farið fram úr björtustu vonum en uppselt er á fyrstu átta sýningar Mamma Mia. Söngleikurinn hefur fengið frábærar viðtökur í Eyjum en nú er búið að sýna verkið fimm sinnum og þrjár sýningar eru næstu þrjá daga. Uppselt er á allar sýningarnar en forráðamenn […]
�??�?g er til í eitt ár í viðbót�??

„Þetta eru sem betur fer engin meiðsli sem heitir getur. Ég er smáaumur en ég stefni á að spila á laugardaginn,“ sagði landsliðsfyrirliðinn Hermann Hreiðarsson, leikmaður enska 1. deildar liðsins Portsmouth, við Morgunblaðið í gær. (meira…)
Svör við opnu bréfi Bjarna �?lafs

Hinn 7. apríl sl. birtist í Fréttum opið bréf til undirritaðs. Þar var óskað skýringa á því hvers vegna PH Viking og Ribsfari mega sigla um Eyjar með farþega en ekki til Landeyjahafnar. Hvers vegna Landeyjahöfn er lokuð öðrum skipum en Herjólfi og hvort Skandia sé nógu vel útbúin til að dýpka. Það eru aðrir […]
Fluttur til Reykjavíkur

Upphaflega barst tilkynning um að tveir skipverjar hefðu orðið fyrir eitrun, en á daginn kom að þeir voru þrír. Mennirnir höfðu verið að störfum í vélarrúm Hugins VE í Vestmannaeyjahöfn þegar losnaði um tank og kolsýringur gaus upp. (meira…)
Tveir misstu meðvitund í Vestmannaeyjum

Svo virðist vera sem kolsýruleki hafi komið upp í skipi í Vestmannaeyjahöfn í dag. Áhöfnin var um borð í bátnum þegar slysið varð. Tveir menn voru að vinna í vélarrúmi bátsins við þröngar aðstæður þegar kolsýran losnaði. Þeir misstu báðir meðvitund. Annar þeirra fékk meðvitund fljótlega og var fluttur strax á sjúkrahús þar sem hann […]
Uppsjávarskipið Ísleifur VE dælir í Landeyjahöfn

Samkvæmt heimildum Eyjafrétta hefur Siglingastofnun farið þess á leit við Vinnslustöðina að fá uppsjávarskipið Ísleif VE til dýpkunarframkvæmda í Landeyjahöfn. Kristján Óskarsson viðraði þá hugmynd að fá uppsjávarskip til að dæla upp sandi í höfninni og hafði meðal annars borið hugmyndina undir Siglingastofnun. Það hefur nú borið þann árangur að gera á tilraun með að […]
12 dagar í fyrsta leik

Nú eru aðeins 12 dagar í fyrsta leik karlaliðs ÍBV í knattspyrnu en mánudaginn 2. maí taka Eyjamenn á móti Fram á Hásteinsvellinum. Leikmenn og forráðamenn treysta eins og alltaf á góðan stuðning á vellinum í sumar, bæði á Hásteinsvelli og á útivöllum landsins og til að hita stuðningsmenn liðsins upp, munu birtast reglulega myndbönd. […]
Leikskólastjórar ósáttir

Gert er ráð fyrir að leggja niður stöðu leikskólafulltrúa og deildarstjóra í Grunnskólanum og skerpt verður á útdeilingu kennslustunda. Með þessum aðgerðum er áætlað að sparist í kringum 14 milljónir króna. Þetta var samþykkt á síðasta fundi fræðslu- og menningarráðs. (meira…)
�?ljóst hvað Skandia dælir lengi

Ekki hefur verið tekin ákvörðun um hvort óskað verður eftir að sanddæluskipið Skandia haldi áfram sanddælingu í maí, en í verksamningi við Íslenska gámafélagið, sem gerir skipið út, er miðað við að ekki sé dælt sandi í sumar. (meira…)
Sumardagurinn fyrsti haldinn hátíðlegur á morgun

Á morgun, fimmtudag er Sumardagurinn fyrsti og verður fjölbreytt hátíðahöld í Vestmannaeyjum við það tækifæri. Klukkan 11:00 verður tilkynnt hver er Bæjarlistamaður Vestmannaeyja 2011 í Listaskóla Vestmannaeyja. Klukkan 13:45 verður lagt af stað í skrúðgöngu við Ráðhúsið en gengið verður upp í Íþróttamiðstöðina þar sem tekur við sumargleði. Nánari dagskrá má sjá hér að neðan. […]
Landeyjahöfn ekki opnuð fyrir páska

Landeyjahöfn verður ekki opnuð fyrir páska. Í sameginlegri tilkynningu frá Siglingastofnun, Vegagerðinni, Eimskipafélaginu og Vestmannaeyjabæ kemur fram að siglingar Herjólfs um páskana verði til og frá Þorlákshöfn. Ekki verði hægt að sigla í Landeyjahöfn vegna veðurs og ölduhæðar. Dýpi er ekki tilgreint sem ástæða í tilkynningunni en dæling úr höfninni hefur gengið ágætlega undanfarið þó […]
Brotist inn á veitingastað í Eyjum

Lögreglan í Vestmannaeyjum handtók mann í nótt sem er grunaður um að hafa brotist inn á veitingastað og stolið þaðan áfengi. Vitni tilkynnti að tveir menn væru að reyna að brjótast inn á staðinn og var annar þeirra á svæðinu þegar lögregla kom að, hinn fannst hins vegar ekki. (meira…)
Langtíma lausn er ný sorpbrennsla

Langtíma lausn í sorpmálum Eyjamanna er að endurnýja sorpbrennsluna, segir bæjarstjóri Vestmannaeyja. Bærinn þarf að skila inn tillögum til úrbóta til Umhverfisstofnunar fyrir páska eftir að í ljós hefur komið að ryk og díoxín er enn mikið í útblæstri stöðvarinnar. (meira…)
Markið sem var næstum því tekið af ÍBV

Sérstak atvik átti sér stað í leik ÍBV og Aftureldingar í gærkvöldi. Í stöðunni 15:14 sóttu Eyjamenn og Sigurður Bragason skaut laglegu undirhandaskoti í gólfið og upp í markvinkilinn. Eyjamenn fögnuðu innan vallar og utan en boltinn endaði fyrir utan markið og dómarapar leiksins töldu að boltinn hefði farið framhjá og dæmdu því markkast. (meira…)
Hrikalega svekkjandi

Eyjamenn spila áfram í 1. deild karla næsta vetur. ÍBV tapaði fyrir Aftureldingu á heimavelli í seinni leik liðanna en lokatölur urðu 22:23 eftir að staðan í hálfleik hafði verið 13:12. Eyjamenn voru yfir nánast allan tímann og leiddu með þremur mörkum þegar um það bil fimm mínútur voru til leiksloka. En þá gerðu leikmenn […]
Hætt við Hippahátíð vegna samgangna

Vegna óvissu sem ríkir um ferðaáætlun Herjólfs og um ferðir milli lands og Eyja þá verður Hippahátíðin sem halda átti dagana 29. og 30. apríl blásin af. Við vorum víst óhóflega bjartsýn að ganga út frá því sem gefnu að Landeyjahöfn yrði opin á þessum tíma og var dagskrá og fjárhagsáætlun hátíðarinnar miðuð við siglingar […]
�?tla að draga úr heildarlosun allra mengandi efna um 60%

Fyrr í morgun funduðu fulltrúar Vestmannaeyjabæjar og Umhverfisstofnunar m.a. vegna niðurstöðu mengunarmælinga í Sorporkustöð Vestmannaeyja sem unnin var í mars 2011 af Nýsköpunarmiðstöð Íslands. Einnig var rætt um mælingar á díoxsíni í sauðfé sem unnin var af Matvælastofnun Íslands og starfsleyfi Sorporkustöðvar Vestmannaeyja. (meira…)
Er í okkar höndum

Eyjamenn taka á móti Aftureldingu í 2. umferð umspils N1 deildarinnar í kvöld klukkan 19:00. Grétar Eyþórsson, leikmaður ÍBV segir að það sé undir leikmönnum ÍBV komið hvernig viðureignin endar. „Þetta er í okkar höndum. Við erum með betri liðsheild og erum klárlega að fara taka þetta í kvöld. Svo er þetta bara undir okkur […]