Eyjamenn taka á móti Aftureldingu í 2. umferð umspils N1 deildarinnar í kvöld klukkan 19:00. Grétar Eyþórsson, leikmaður ÍBV segir að það sé undir leikmönnum ÍBV komið hvernig viðureignin endar. „Þetta er í okkar höndum. Við erum með betri liðsheild og erum klárlega að fara taka þetta í kvöld. Svo er þetta bara undir okkur komið hvernig þetta fer. Ef við spilum okkar leik, spilum þétta vörn og skynsaman sóknarleik, þá vinnum við,“ sagði Grétar.