Hrikalega svekkjandi

Eyjamenn spila áfram í 1. deild karla næsta vetur. ÍBV tapaði fyrir Aftureldingu á heimavelli í seinni leik liðanna en lokatölur urðu 22:23 eftir að staðan í hálfleik hafði verið 13:12. Eyjamenn voru yfir nánast allan tímann og leiddu með þremur mörkum þegar um það bil fimm mínútur voru til leiksloka. En þá gerðu leikmenn […]

Hætt við Hippahátíð vegna samgangna

Vegna óvissu sem ríkir um ferðaáætlun Herjólfs og um ferðir milli lands og Eyja þá verður Hippahátíðin sem halda átti dagana 29. og 30. apríl blásin af. Við vorum víst óhóflega bjartsýn að ganga út frá því sem gefnu að Landeyjahöfn yrði opin á þessum tíma og var dagskrá og fjárhagsáætlun hátíðarinnar miðuð við siglingar […]

�?tla að draga úr heildarlosun allra mengandi efna um 60%

Fyrr í morgun funduðu fulltrúar Vestmannaeyjabæjar og Umhverfisstofnunar m.a. vegna niðurstöðu mengunarmælinga í Sorporkustöð Vestmannaeyja sem unnin var í mars 2011 af Nýsköpunarmiðstöð Íslands. Einnig var rætt um mælingar á díoxsíni í sauðfé sem unnin var af Matvælastofnun Íslands og starfsleyfi Sorporkustöðvar Vestmannaeyja. (meira…)

Er í okkar höndum

Eyjamenn taka á móti Aftureldingu í 2. umferð umspils N1 deildarinnar í kvöld klukkan 19:00. Grétar Eyþórsson, leikmaður ÍBV segir að það sé undir leikmönnum ÍBV komið hvernig viðureignin endar. „Þetta er í okkar höndum. Við erum með betri liðsheild og erum klárlega að fara taka þetta í kvöld. Svo er þetta bara undir okkur […]

Unnið að dýpkun Landeyjahafnar

Siglingastofnun hefur ekki tekið ákvörðun um opnun Landeyjahafnar en í gær var tilkynnt að höfnin yrði lokuð fram á skírdag. Dýpkunarskipið Skandia hefur verið við dælingu í höfninni síðastliðinn sólarhring með hléum en aðstæður eru erfiðar þar sem ölduhæð er yfir tveimur metrum. (meira…)

Tveir frá Crewe til ÍBV

Jordan Connerton og Kelvin Mellor munu leika með ÍBV í sumar en báðir koma þeir frá enska félaginu Crewe Alexandria. Connerton og Mellor fóru með ÍBV í æfingaferð til Spánar og munu leika með ÍBV út júlí samkvæmt heimasíðu enska félagsins. (meira…)

Stórleikur í kvöld

Í kvöld klukkan 19:00 verður sannkallaður stórleikur í Íþróttamiðstöðinni þegar karlalið ÍBV tekur á móti Aftureldingu í 2. umferð umspils N1 deildarinnar. Eyjamenn eiga harma að hefna eftir naumt tap í Mosfellsbæ þar sem vafasamir dómar bitnuðu mjög á Eyjaliðinu. Fari svo að ÍBV vinni leikinn, þá verður oddaleikur í Mosfellsbæ næstkomandi fimmtudag en ef […]

Vonast til að opna Landeyjahöfn 1. maí

Samkvæmt upplýsingum frá Siglingastofnun er kostnaður vegna dýpkunar Landeyjahafnar nokkurn veginn á því róli sem gert hafði verið ráð fyrir á þessu ári þrátt fyrir þá erfiðleika sem glímt hefur verið við í þeim efnum frá því síðastliðið sumar. Ástæða þess mun vera sú að gerðar voru vel rúmar kostnaðaráætlanir vegna dýpkunar hafnarinnar áður en […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.