Í kvöld klukkan 19:00 verður sannkallaður stórleikur í Íþróttamiðstöðinni þegar karlalið ÍBV tekur á móti Aftureldingu í 2. umferð umspils N1 deildarinnar. Eyjamenn eiga harma að hefna eftir naumt tap í Mosfellsbæ þar sem vafasamir dómar bitnuðu mjög á Eyjaliðinu. Fari svo að ÍBV vinni leikinn, þá verður oddaleikur í Mosfellsbæ næstkomandi fimmtudag en ef Afturelding hefur betur, þá eru þeir komnir áfram. Það dugir því ekkert minna en sigur í kvöld.