Vegna óvissu sem ríkir um ferðaáætlun Herjólfs og um ferðir milli lands og Eyja þá verður Hippahátíðin sem halda átti dagana 29. og 30. apríl blásin af. Við vorum víst óhóflega bjartsýn að ganga út frá því sem gefnu að Landeyjahöfn yrði opin á þessum tíma og var dagskrá og fjárhagsáætlun hátíðarinnar miðuð við siglingar frá Landeyjahöfn.