Eyjamenn spila áfram í 1. deild karla næsta vetur. ÍBV tapaði fyrir Aftureldingu á heimavelli í seinni leik liðanna en lokatölur urðu 22:23 eftir að staðan í hálfleik hafði verið 13:12. Eyjamenn voru yfir nánast allan tímann og leiddu með þremur mörkum þegar um það bil fimm mínútur voru til leiksloka. En þá gerðu leikmenn ÍBV sig seka um nokkur mistök sem einfaldlega kostuðu liðið sigurinn og um leið úrvalsdeildarsætið. Mosfellingar voru hins vegar klókir á lokakaflanum og fögnuðu vel og innilega í leikslok.