Unnið að dýpkun Landeyjahafnar

Siglingastofnun hefur ekki tekið ákvörðun um opnun Landeyjahafnar en í gær var tilkynnt að höfnin yrði lokuð fram á skírdag. Dýpkunarskipið Skandia hefur verið við dælingu í höfninni síðastliðinn sólarhring með hléum en aðstæður eru erfiðar þar sem ölduhæð er yfir tveimur metrum. (meira…)
Tveir frá Crewe til ÍBV

Jordan Connerton og Kelvin Mellor munu leika með ÍBV í sumar en báðir koma þeir frá enska félaginu Crewe Alexandria. Connerton og Mellor fóru með ÍBV í æfingaferð til Spánar og munu leika með ÍBV út júlí samkvæmt heimasíðu enska félagsins. (meira…)
Stórleikur í kvöld

Í kvöld klukkan 19:00 verður sannkallaður stórleikur í Íþróttamiðstöðinni þegar karlalið ÍBV tekur á móti Aftureldingu í 2. umferð umspils N1 deildarinnar. Eyjamenn eiga harma að hefna eftir naumt tap í Mosfellsbæ þar sem vafasamir dómar bitnuðu mjög á Eyjaliðinu. Fari svo að ÍBV vinni leikinn, þá verður oddaleikur í Mosfellsbæ næstkomandi fimmtudag en ef […]
Vonast til að opna Landeyjahöfn 1. maí

Samkvæmt upplýsingum frá Siglingastofnun er kostnaður vegna dýpkunar Landeyjahafnar nokkurn veginn á því róli sem gert hafði verið ráð fyrir á þessu ári þrátt fyrir þá erfiðleika sem glímt hefur verið við í þeim efnum frá því síðastliðið sumar. Ástæða þess mun vera sú að gerðar voru vel rúmar kostnaðaráætlanir vegna dýpkunar hafnarinnar áður en […]
Herrakvöld Knattspyruráðs ÍBV föstudagskvöldið 29. apríl í Akóges

Nú er komið að því herramenn! Knattspyrnusumarið 2011 er að fara af stað og því ætla herramenn bæjarins að koma saman og þétta raðirnar fyrir komandi átök. Kári Fúsa og Hjalli ætla að kokka fram frábæra rétti eins og þeim einum er lagið ásamt helstu sjókokkum Eyjanna. Páll Magnússon verður veislustjóri og með honum í […]
Landeyjahöfn lokuð fram á skírdag

Landeyjahöfn verður lokuð fram á fimmtudag, skírdag en þetta kemur fram í vikulegri spá Siglingastofnunar sem er birt á vef hennar, www.sigling.is. Þar segir jafnframt að á morgun, þriðjudag muni liggja fyrir frekari upplýsingar um stöðu hafnarinnar en Landeyjahöfn hefur verið lokuð í rúma þrjá mánuði. (meira…)
Hnökkun á Dízó, Ellert Scheving og Vakning

Áttundi þáttur strákanna á Eyjar TV er kominn á vefinn en í þættinum er Bjarni Þór sendur í „hnökkun“ á Dizo, hárgreiðslustofunni en um leið fræddust þeir aðeins um fyrirtækið. Eyjapeyinn Ellert Scheving framleiddi á dögunum bráðfyndið myndband með Jóni Ársæli Þórðarsyni og er myndbandið sýnt í þættinum. Síðast en ekki síst er Hjalti Enok […]
Hentu björgunarhringjum á Herjólfi í sjóinn

Einhver eða einhverjir hafa tekið sig til og hent björgunarhringjum, sem eru á dekki Herjólfs í sjóinn. Ekki er vitað hver var þarna að verki og óskar lögreglan í Vestmannaeyjum eftir upplýsingum frá farþegum. Atvikið átti sér stað í fyrri ferð skipsins frá Þorlákshöfn 12. apríl síðastliðinn en atvikið er litið mjög alvarlegum augum enda […]
Fáum vonandi sóknarmann á næstu dögum

Heimir Hallgrímsson, þjálfari ÍBV, segist vera vongóður um að liðið bæti við sig framherja áður en keppni í Pepsi-deildinni hefst um næstu mánaðamót og vonandi strax í þessari viku. ÍBV varð fyrir áfalli þegar að Gunnar Heiðar Þorvaldsson, sem var þá nýbúinn að semja við liðið, ákvað að taka tilboði Norrköping í Svíþjóð og halda […]
Stuðningur áhorfenda skiptir öllu máli

Á morgun, þriðjudaginn 19. apríl tekur karlalið ÍBV í handbolta á móti Aftureldingu í mikilvægasta leik vetrarins. Liðin mættust í fyrstu umferð umspilsins í gær, sunnudag og hafði Afturelding að lokum nauman sigur. Sigurður Bragason, fyrirliði ÍBV svarar nokkrum spurningum á heimasíðu ÍBV-íþróttafélags og má sjá svörin hér að neðan. (meira…)
Eimskip styrkir ÍBV næstu fimm árin

ÍBV íþróttafélag og Eimskip skrifuðu nú um helgina undir 5 ára samstarfssamning. Samningur þessi er mjög mikilvægur fyrir ÍBV og rennur hann óskiptur til barna og unglingastarfs félagsins. ÍBV hefur á síðustu mánuðum lagt mikinn metnað í að styrkja barna- og unglingastarfið og létta undir með foreldrum sem eru með börn í íþróttum hjá félaginu. […]
Lundinn kominn til Eyja

Að margra mati er lundinn hinn eini sanni vorboði í Vestmannaeyjum og margir sem fylgjast með þegar fuglinn sest upp. Elías V. Jensson er einn þeirra en hann hefur séð til lunda á haffletinum neðan við Rauf í Stórhöfða um helgina. Elías segir að líklega vilji lundinn ekki setjast upp í brekkur út af mjög […]
Völlurinn er fljótur að taka við sér við réttar aðstæður

Þó að veðrið bendi ekki til þess, þá eru aðeins tvær vikur þangað til Íslandsmótið í knattspyrnu hefst. ÍBV byrjar á tveimur heimaleikjum, fyrst gegn Fram mánudaginn 2. maí og svo gegn Fylki laugardaginn 7. maí. Nú er hins vegar hvít jörð í Vestmannaeyjum, eins og víða annarsstaðar og talsvert í að Hásteinsvöllur verði leikfær. […]
Slys við Stafnes 14. apríl 1994

Þrír ungir drengir voru að leika sér í klöppunum norðaustan megin á Stafnesi. Þeir voru að hlaupa undan öldunum á sleipum klöppunum þarna. Tvær ungar stúlkur koma þarna að rétt áður en þetta skeði, sáu drengina en voru ekkert að fylgjast sérstaklega með þeim. Slys varð með þeim hætti að allt í einu kom stærri […]
Sighvatur fjórum dögum á eftir áætlun

Sighvatur er nú kominn fjórum dögum á eftir áætlun. Hann er staddur í hafinu milli Malasíu og Indónesíu en vandamálið er það að auglýstar siglingaleiðir eru ekki lengur til. Eina lausnin er þá að ferðast hraðar yfir. (meira…)
Lundadauði við Spán

Lundinn á erfitt uppdráttar víðar en í Vestmannaeyjum. Í febrúar og mars fundust óvenjulega mörg lundahræ á fjörum á Norður-Spáni. Menn vita ekki með vissu hvað veldur en grunar helst að þetta megi rekja til ætisskorts og vondra veðra á þessum slóðum í vetur. (meira…)
Opið bréf til Sigurðar Áss Grétarssonar

Sæll Sigurður og takk fyrir síðast. Ég var einn af fjölmörgum Eyjamönnnum sem mætti á bitlausan borgarafund Eyjamanna um stöðu Landeyjahafnar og Herjólfs. Reyndar stóðu framsögumenn sig mjög vel, upplýstu fundinn vel um stöðu mála, en betra hefði verið að spár um þróun mála hefðu gengið betur eftir. Í ljósi þess heyri ég fleiri og […]
Frábær seinni hálfleikur dugði ekki til

Frábær seinni hálfleikur Eyjamanna gegn Aftureldingu dugði ekki til þegar liðin áttust við í fyrstu umferð umspilsins í Mosfellsbæ í dag. Leikmenn Aftureldingar voru mun sterkari í fyrri hálfleik og í leikhléi munaði sex mörkum, 17:11. En hálfleiksræða Arnars Péturssonar, þjálfara ÍBV virkaði greinilega vel því Eyjamenn jöfnuðu 25:25 þegar skammt var til leiksloka. En […]
Umspilið hefst í dag

Í dag hefst umspilskeppni karla um laust sæti í úrvalsdeild á næsta ári. Eyjamenn tryggðu sér sæti í keppninni með því að enda í fjórða sæti 1. deildar og mæta fyrir vikið næst neðsta liði úrvalsdeildarinnar, Aftureldingu. Leikurinn hefst klukkan 14:00 í Mosfellsbænum en tvo sigurleiki þarf til að komast áfram í úrslitaleikina. (meira…)
Annarlegt ástand ofbeldismanns

Ölvuðun og mjög æstum manni sem hafði verið til vandræða var vísað út af skemmtistaðnum Lundinn í nótt. Kom hann sér strax í einhver áflog fyrir utan staðinn og þegar hann reyndi aftur að komast inn á staðinn var honum enn vísað frá af dyravörðum. (meira…)