Heimir Hallgrímsson, þjálfari ÍBV, segist vera vongóður um að liðið bæti við sig framherja áður en keppni í Pepsi-deildinni hefst um næstu mánaðamót og vonandi strax í þessari viku. ÍBV varð fyrir áfalli þegar að Gunnar Heiðar Þorvaldsson, sem var þá nýbúinn að semja við liðið, ákvað að taka tilboði Norrköping í Svíþjóð og halda aftur í atvinnumennskuna. Heimir segir forgangsmál að fá framherja en liðið fór nýlega í æfingaferð til Spánar þar sem þrír enskir leikmenn voru til reynslu hjá félaginu.