Í dag hefst umspilskeppni karla um laust sæti í úrvalsdeild á næsta ári. Eyjamenn tryggðu sér sæti í keppninni með því að enda í fjórða sæti 1. deildar og mæta fyrir vikið næst neðsta liði úrvalsdeildarinnar, Aftureldingu. Leikurinn hefst klukkan 14:00 í Mosfellsbænum en tvo sigurleiki þarf til að komast áfram í úrslitaleikina.