Stórsigur hjá stelpunum

Kvennalið ÍBV í knattspyrnu lék í gærkvöldi sinn fjórða leik í Lengjubikarnum. Leikið var gegn Grindavík og áttu Eyjastúlkur ekki í teljandi vandræðum með Grindvíkinga því lokatölur urðu 8:0. ÍBV er með fullt hús stiga í B-deild Lengjubikarsins og er í efsta sæti af sex. (meira…)

Sæþór Vídó í Hallarlundi

Hinn eini sanni Sæþór Vídó ætlar að gleðja augu og eyru með framkomu sinni í Hallarlundi á laugardagskvöld. Sæþór ætlar að byrja kvöldið snemma eða klukkan 22:00 og því tilvalið að kíkja í Hallarlund, fá sér eitthvað slakandi og njóta eðaltóna. Að sjálfsögðu verður frítt inn og opið fram eftir nóttu. (meira…)

Næsti vetur má ekki verða eins og þessi

Heill og sæll aftur Ögmundur minn. Ég þakka þér fyrir svarbréf þitt við ákalli um Landeyjahöfn. Verð þó að viðurkenna að heldur þótti mér það rýrt í roðinu að flestu leyti en þó ekki öllu. Þú segir „þó var það talið hæft til dýpkunarvinnu“ við aðstæður í Landeyjahöfn eins og komið hefur á „daginn“. Það […]

Lögregluembættið í Eyjum lagt niður

Innanríkisráðherra hefur lagt fram lagafrumvarp á Alþingi sem gerir ráð fyrir því að lögregluembættum verði fækkað úr 15 í 8. Fjármálaráðuneytið segir að ný og stærri embætti geti betur sinnt lögbundnum skyldum sínum og náð þeirri hagræðingarkröfu sem gerð hafi verið til þeirra á undanförnum árum. (meira…)

Sigríður Lára skoraði í stórsigri Íslands

Sigríður Lára Garðarsdóttir skoraði í stórsigri íslenska kvennalandsliðsins skipað leikmönnum 17 ára og yngri í dag í undankeppni Evrópumótsins. Leiknum lauk með 4:1 sigri Íslands en staðan í hálfleik var 2:0 og skoraði Sigríður annað af mörkum fyrri hálfleiks. Íslenska liðið hafði fyrir leikinn tryggt sér sæti í undanúrslitum Evrópumótsins en auk Sigríðar, er Svava […]

Seinni ferð Herjólfs seinkar

Seinni ferð Herjólfs á milli Vestmannaeyja og Þorlákshafnar sunnudaginn 17. apríl verður farin klukkustund síðar en vant er. Af þeim sökum mun brottför skipsins frá Vestmannaeyjum verða klukkan 16:00 og frá Þorlákshöfn klukkan 20:00. (meira…)

�?etta gengur ekki

Á sunnudaginn áttum við pant­að far með seinni ferð Herj­ólfs til Vest­manna­eyja, bæði fyrir okkur hjón­in og bílinn. Vegna veðurs var ekki farið og ekkert við því að gera enda vitlaust veður. En það var á mánudaginn sem vandræðin hófust þegar átti að reyna að ná sambandi við afgreiðslu Herjólfs. Hugmyndin var að komast heim […]

Bragi ekki meira með í vetur

Á heimasíðu ÍBV íþróttafélags er greint frá því að línumaðurinn sterki Bragi Magnússon muni ekki leika meira með ÍBV í vetur. Í læknisskoðun í gær kom í ljós að meiðslin eru alvarlegri en leit út í byrjun en meiðslin mun halda honum utan vallar næstu þrjá mánuði. Bragi hefur verið talsvert frá í vetur en […]

Opið bréf til bæjar­stjórnar

Ég undirrituð, íbúi í Vestmanna­eyjum, fer fram á það að bæjar­stjórn Vest­manna­eyja ­krefj­ist þess að við fáum ríkis­styrk aftur á flug­leiðina VEY-REY. Við höfum verið allt of þolinmóð gagnvart ríkisvaldinu vegna samgangna við Eyjarnar, frá ára­mótum hefur ekki verið hægt að sigla í Landeyjahöfn og það er nánast öruggt að svo verður líka næsta vetur, […]

Rör norðan Eiðis hafa skemmst

Frárennslisrör norðan Eiðis hafa skemmst nokkuð af völdum óveð­urs í vetur og fara verð­ur í viðgerðir og endurbætur fyrr en síðar. Þetta kom fram á síðasta fundi framkvæmda- og hafnarráðs þar sem Friðrik Björgvinsson og ­Ólafur Þ. Snorrason fóru yfir frum­tillögur að framtíðarlausn í frá­veitu norðan Eiðis. (meira…)

Eitt ár frá eldgosinu

Í nótt var eitt ár liðið frá því að gosið í Eyjafjallajökli hófst. Í því tilefni heldur Háskóli Íslands dagskrá um gosið milli 5 og sjö síðdegis. Þar verða fluttar stuttar tölur um gosið sjálft og áhrif þess á fólk og náttúru. Annað kvöld verður svo opnað safn um gosið á Þorvaldseyri. Bændur þar standa […]

Margt áhugavert að gerast

Frosti Gíslason hjá Nýsköpunar­mið­stöð Íslands sagðist vera ákaf­lega ánægður með þátttökuna á hádegisfundi á föstudag og á vinnu­fundum um helgina í kjölfarið. Yfirskrift þeirra var tækifæri atvinnulífsins í ferðaþjónustu, handverki, listiðnaði og hönnun. (meira…)

Stofnvísitala þorsks hækkar

Stofnvísitala þorsks hækkar fjórða árið í röð og er ástæðan sú að æ meira hefur fengist af stórum þorski. Fyrsta mat á 2010 árgangi þorsks hér við land bendir til að hann sé slakur en árgangarnir frá 2008 og 2009 mældust hins vegar meðalstórir. (meira…)

Endurmat samnings vegna dýpkunar

Innanríkisráðherra segir verktaka sem dýpkar Landeyjahöfn ekki hafa næga reynslu. Meta þurfi hvort segja eigi upp samningi við hann. Upphaflegur samningur Siglingastofnunar við Íslenska gámafélagið um dýpkun Landeyjahafnar gilti til 1. apríl síðastliðinn. Verktaki telst þó ekki hafa uppfyllt hann þar sem aðeins hefur tekist að fjarlægja um fimmtung þess magns sem samið var um. […]

Ekki útlit fyrir að Landeyjahöfn opni fyrir páska

Í ljósi veðurs og sjólags við suðurströnd Íslands frá því í janúar á þessu ári, hafa mun fleiri ferðir til og frá Landeyjahöfn fallið niður en fyrirfram var reiknað með. Oft hafa liðið vikur og nú mánuðir á milli þess sem hægt er að nýta hafnarmannvirkið fyrir siglingar Herjólfs. Þetta ástand hefur verið óviðunandi fyrir […]

Svar við ákalli

Heill og sæll Helgi Hjálmarsson Erfiðleikar við dýpkun Landeyjahafnar og þáttur dýpkunarskipsins Skandia hafa ekki farið framhjá neinum og aðgerðir til opnunar hafnarinnar sætt gagnrýni. Ég hef fylgst vel með málinu og farið reglulega yfir það með Siglingastofnun. Að hluta til er gagnrýni Eyjamanna réttmæt því dýpkun í og við höfnina hefur ekki gengið sem […]

Heiða gengin í raðir Fylkis

Heiða Ingólfsdóttir, sem lék með kvennaliði ÍBV í N1 deildinni í vetur, hefur ákveðið að söðla um og spila með Fylki næsta vetur. Heiðar skipti yfir í ÍBV fyrir síðasta tímabil en hún var búsett í höfuðborginni í vetur. Þá mun Guðbjörg Guðmannsdóttir ekki heldur spila með liðinu næsta vetur þar sem hún er ólétt. […]

Herjólfur tefst í dag

Allar ferðir Herjólfs í dag, þriðjudaginn 12. apríl, verða fyrir seinkun um eina og hálfa klukkustund. Ástæða tafanna er sú að farin var næturferð með fisk og aðra vöru sem ekki var hægt að koma í ferðirnar í dag, auk þess sem auglýstur viðhaldsdagur ferjunnar er á morgun, miðvikudag. (meira…)

Ísland komið í undanúrslit

Landslið Íslands í knattspyrnu, skipað stúlkum 17 ára og yngri vann í gær Pólland í Evrópumótinu 2:0. Sigurinn þýðir að íslenska liðið er komið í undanúrslit mótsins en tvær Eyjastúlkur eru í leikmannahópnum. Svava Tara Ólafsdóttir lék allan leikinn gegn Póllandi og Sigríður Lára Garðarsdóttir kom inn á á 60. mínútu.l (meira…)

�?riggja sólahringa lestarferð að baki

Nú er Sighvatur Bjarnason kominn til Kína en síðast þegar við sögðum frá honum, þá var hann á leiðinni frá Nepal til Tíbet. Þangað komst hann akandi á mótorhjóli og að lokum með flugi yfir Himalayafjöllin. Í höfuðborg Tíbetar, Lhasa mættu honum kínverskir lögreglumenn á herju strái. Eftir stutta dvöl þar tók við þriggja sólahringa […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.