Kvennalið ÍBV í knattspyrnu lék í gærkvöldi sinn fjórða leik í Lengjubikarnum. Leikið var gegn Grindavík og áttu Eyjastúlkur ekki í teljandi vandræðum með Grindvíkinga því lokatölur urðu 8:0. ÍBV er með fullt hús stiga í B-deild Lengjubikarsins og er í efsta sæti af sex.