Misheppnuð vakning, Mamma Mia og áskorun

Þorgeir Þór Friðgeirsson leysir Hjalta Enok Pálsson af í 7. þættinum af EyjarTV en Hjörleifur Davíðsson er að sjálfsögðu á sínum stað. Strákarnir kíktu m.a. á Mamma Mia hjá Leikfélagi Vestmannaeyja, reyndu að vekja Þorgeir með látum en þegar það mistókst, var hann látinn taka áskorun þar sem uppblásið dekk kemur við sögu. En sjón […]

Poka með matvælum stolið

Vikan var með rólegra móti hjá lögreglu og engin alvarleg mál sem upp komu. Skemmtanahald helgarinnar fór ágætlega fram og þufti lögreglan ekki að hafa afskipti af gestum öldurhúsanna. Um hádegið þann 5. apríl sl. var lögreglu tilkynnt um að poka með matvælum hafi verið stolið þar sem pokinn stóð á gangstétt á Bárustíg fyrir […]

Efni mun bætast við í hafnarmynninu

Þrátt fyrir afleitt veður um helgina náði Skandia að dýpka lítillega í Landeyjahöfn. Framundan eru miklir umhleypingar og miðað við ölduspá verður ölduhæðin yfir 2 metra fram til 20. apríl. Í tilkynningu frá Siglingastofnun segir að gangi sú spá eftir, þá bætist við efni í hafnarmynninu og mun því þurfa fáeina daga við góðar aðstæður […]

Ekki tókst að mæla Landeyjahöfn fyrir helgi

Ekki tókst að mæla dýpi í og við Landeyjahöfn á föstudaginn eins og til stóð en Sigurður Áss Grétarsson hjá Siglingastofnun telur að hægt sé að sigla inn í Landeyjahöfn miðað við síðustu dýptarmælingu. Ekki er líklegt að hægt verði að mæla dýpi við höfnina í þessari viku enda er spáð roki við Suðurströndina fram […]

Mesta andstaðan var á Suðurlandi

Nú liggja fyrir lokatölur í talningu atkvæða í Suðurkjördæmi í þjóðaratkvæðagreiðslu um Icesave. Langmesta andstaðan við samningunum var í Suðurkjördæmi en 73% þeirra sem kusu, sögðu nei við Icesave. Kjörsókn var 75,5% en til samanburðar þá var kjörsókn 85,6% í síðustu alþingiskosningum árið 2009. Á kjörskrá í Suðurkjördæmi eru 32.955. Icesave samningarnir voru felldir en […]

Eyjamenn unnu Fram

Karlalið ÍBV í knattspyrnu lagði Fram að velli í síðasta leik liðanna í 2. riðli Lengjubikarsins. Lokatölur urðu 3:1 en Framarar komust reyndar yfir. Denis Sytnik, Tryggvi Guðmundsson og Matt Garner skoruðu hins vegar mörk ÍBV en öll mörk leiksins komu í fyrri hálfleik. Þar með endaði ÍBV í 3. sæti riðilsins með 11 stig […]

Helga Rún Ungfrú Suðurland 2011

Helga Rún Garðarsdóttir frá Hólmi í Austur-Landeyjum var valin fegurðardrottning Suðurlands 2011 á keppninni Ungfrú Suðurland á Hótel Selfossi í kvöld. Níu stúlkur kepptu um titilinn en í 2. sæti varð Hildur Rós Guðbjargardóttir frá Selfossi og Guðrún Birna Gísladóttir frá Hveragerði varð í þriðja sæti. Guðrún Birna var einnig kosin netstúlka sunnlenska.is. (meira…)

Allir sammála um Icesave

Á kaffistofu Hjólbarðaverkstæðisins eru oftar en ekki fjörugar umræður um allt milli himins og jarðar. Þar eru vandamál samfélagsins leyst umbúðalaust yfir einum kaffibolla. Það var því ekki hægt að finna betri stað til að taka púlsinn á Icesave kosningunum sem verða á laug­ardaginn. Og sá fáheyrði atburður átti sér stað að allir á kaffistofunni […]

Til stuðnings Írum, Grikkjum, Portúgölum og Spánverjum

Hvað er að gerast hjá íslenskri þjóð? Ég spyr aftur hvað er að gerast? Helmingur þjóðarinnar samhvæmt skoðanakönnunum vill að við borgum skuldir einkafyrirtækis. Ég keypti skuldabréf í Milestone árið 2007 fyrir nokkrar milljónir á svakalega góðum vöxtum. Öllu fögru var lofað af Milestone, sem blekktu Íslendinga og hreinlega hirtu af lífeyrisjóðum og hundruð Íslendinga […]

Magnús Kristleifur Kiwanismeistari í snóker

Í kvöld fór fram úrslitaleikur í Meistaramóti Kiwanisklúbbsins Helgafells í snóker. Þar mættust Magnús Kristleifur Magnússon og Guðmundur Jóhannsson. Báðir eru þeir meðal bestu snókerspilara klúbbsins og því búist við spennandi leik. En Magnús Kristleifur var á öðru máli og kláraði leikinn 3:0 en vinna þurfti þrjá ramma til að vinna leikinn. Með fréttinni fylgir […]

Eyjamenn enduðu í fjórða sæti

Karlalið ÍBV í handbolta endaði í fjórða sæti 1. deildar Íslandsmótsins í handbolta. Eyjamenn áttu enn möguleika á þriðja sætinu fyrir síðustu umferðina en þá þurftu þeir að vinna Stjörnuna á útivelli en Garðbæingar voru fyrir síðustu umferðina í þriðja sæti með tveggja stiga forskot á ÍBV. En Stjarnan hafði betur í kvöld 30:26. (meira…)

Tónleikum Selmu frestað

Söngkonan Selma Björnsson ætlaði að halda tónleika í kvöld á skemmtistaðnum Volcano Cafe. Hins vegar neyðist hún til að fresta tónleikunum um óákveðin tíma þar sem að í Eyjum er svarta þoka og ekki flugfært. Hins vegar mun framherjahrellirinn Elías Fannar Stefnisson halda uppi stuðinu á staðnum í kvöld af sinni alkunnu snilld. (meira…)

Ungfrú Suðurland valin í kvöld

Í kvöld kemur í ljós hvaða stúlka mun bera titilinn Ungfrú Suðurland 2011 en alls taka níu stúlkur af Suðurlandinu þátt. Keppnin fer fram á Hótel Selfossi en fjórar Eyjastúlkur taka þátt í keppninni í ár, þær Kristrún Hlynsdóttir, Guðný Ósk Ómarsdóttir, Fjóla Sif Ríkharðsdóttir og Brynhildur Helgadóttir. Enn er hægt að taka þátt í […]

�?egar öðruvísi fer að en ætlað er!

Alveg er það merkilegt hvað sumir geta verið óheppnir, – og að einmitt þá skuli nú einhverjir myndatökumenn endilega vera á staðnum að mynda. Hér er stutt myndband, um ófarir annarra sem eru dálítið fyndnar. – Miklu fyndnari en þegar maður lendir sjálfur í slíku. – Góða skemmtun. (meira…)

Já – Nei – Já – Nei – Já – Kýs ekki

Vikublaðið Fréttir leituðu til nokkurra aðila og spurðu hvort þau hefðu kynnt sér Icesavesamninginn sem kosið verður um á morgun, laugardag. Einnig hvort þeir hafi tekið afstöðu og hvort já eða nei verður ofan á. Þrír af sex sem leitað var til ætla að segja já, tveir nei og einn ætlar ekki að kjósa. (meira…)

Seinni ferð seinkar á sunnudag

Seinni ferð Herjólfs frá Vestmannaeyjum sunnudaginn 10. apríl næstkomandi verður seinkað um klukkustund og verður því farin klukkan 16:00. Að sama skapi seinkar seinni ferð skipsins frá Þorlákshöfn til klukkan 20:00. (meira…)

Guðmundur í Brimi orðinn stærsti eigandi Vinnslustöðvarinnar!

Guðmundur Kristjánsson eigandi Brims, útgerðarfélags er orðinn stærsti eigandinn í Vinnslustöðinni hf. eftir að hafa keypt 4,2% hlut í fyrirtækinu af Horni, dótturfélagi Landsbankans. Þetta kemur fram í Viðskiptablaðinu sem kom út í vikunni. Er Guðmundur kominn með 32% hlut í Vinnslustöðinni. Fram kom að þessi hlutur Landsbankans var ekki auglýstur opinberlega til sölu. (meira…)

Hljómsveitin Ný dönsk í Höllinni á morgun

Ein albesta og ein alvinsælasta hljómsveit síðustu áratugina kemur til Eyja á morgun og skemmtir Eyjamönnum og gestum þeirra á tónleikum og dansleik. Hljómsveitina þarf ekkert að kynna fyrir Eyjamönnum, enda hefur hún margoft komið til Eyja og ávallt verið vel tekið og að sjálfsögðu hefur hún komið fram á Þjóðhátíð í Herjólfsdal. Á morgun […]

Tveggja nátta ferð fyrir handboltaleik

ÍBV leikur gegn Stjörnunni í íþróttahúsinu Mýrinni í Garðabæ föstudagskvöld kl.19:30. Þar sem ekki má treysta á flug í síðustu tveimur umferðunum ákvað Arnar Pétursson að liðið færi í dag fimmtudag með Herjólfi. Þeir gista því tvær nætur í Reykjavík og koma heim á laugardag. (meira…)

Rauða svæðið er þar sem dýpið er ekki nægt

Í yfirgripsmikilli yfirlýsingu frá Eimskip sem birt var hér á Eyjafréttum í gær fylgdu tvær skýringamyndir, annars vegar af djúpristu Herjólfs og hins vegar af dýpinu í og við Landeyjahöfn. Með myndinni af dýpinu fylgdi skýring þar sem sagt væri að rauð svæði sýndu hvar dýpi væri nægt en annarsstaðar væri of grunnt. Þarna var […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.