Tveggja nátta ferð fyrir handboltaleik

ÍBV leikur gegn Stjörnunni í íþróttahúsinu Mýrinni í Garðabæ föstudagskvöld kl.19:30. Þar sem ekki má treysta á flug í síðustu tveimur umferðunum ákvað Arnar Pétursson að liðið færi í dag fimmtudag með Herjólfi. Þeir gista því tvær nætur í Reykjavík og koma heim á laugardag. (meira…)

Rauða svæðið er þar sem dýpið er ekki nægt

Í yfirgripsmikilli yfirlýsingu frá Eimskip sem birt var hér á Eyjafréttum í gær fylgdu tvær skýringamyndir, annars vegar af djúpristu Herjólfs og hins vegar af dýpinu í og við Landeyjahöfn. Með myndinni af dýpinu fylgdi skýring þar sem sagt væri að rauð svæði sýndu hvar dýpi væri nægt en annarsstaðar væri of grunnt. Þarna var […]

Hagur allra aðila er að höfnin opnist sem fyrst

Mikil umræða hefur spunnist um siglingar til og frá Landeyjarhöfn og vandræðagang við dýpkun hafnarinnar. Misvísandi upplýsingar og yfirlýsingar frá Siglingamálastofnun hafa valdið óþarfa reiði meðal íbúa Vestmannaeyja og farþega Herjólfs. Af því tilefni vill Eimskipafélagið koma eftirfarandi á framfæri. (meira…)

Vöndum málflutning okkar

Sjósamgöngur okkar Vestmannaeyinga hafa meira og minna verið í miklum ólestri í vetur. Við höfum því eðlilega verið pirruð og svekkt, sérstaklega þar sem svo miklar væntingar voru bundnar við opnun Landeyjahafnar síðastliðið sumar. Ég ætla ekki að kenna einum frekar en öðrum um hvernig ástandið hefur verið í vetur en ef fyllstu sanngirni er […]

Áhættumat og að gefnu tilefni

Áhættumat er kannski það orð sem heyrist oftast þessa dagana, bæði varðandi Landeyjahöfn og Icesave. Það er svolítið furðulegt að hugsa til þess að á sínum tíma voru lagðir talsverðir peningar í það að fá hingað erlent áhættumats fyrirtæki, til þess að meta muninn á siglingaleiðinni Vestmannaeyjar – Þorlákshöfn, Vestmannaeyjar – Landeyjahöfn út frá áhættu […]

Svona getur lífið nú verið skrítið, sérstaklega í moldviðri.

Mig undiritaðan langar til að benda á nokkur atriði í sambandi við yfirlýsingu meirihluta sjálfstæðismanna frá 6. apríl 2011. Í yfirlýsingunni er ein alvarleg rangfærsla eða bara hrein ósannindi, en þar segir “Beiðni okkar um að sérleyfi Herjólfs til siglinga í Landeyjahöfn verði aflétt hefur aldrei snúist um sérstök skip eða báta “. (meira…)

Síðasta hefðbundna Eyjakvöld vetrarins í kvöld

Síðasta Eyjakvöldið á Kaffi Kró verður haldið í kvöld, fimmtudag. Reyndar er eitt Eyjakvöld eftir, sem verður haldið föstudaginn 6. maí en þá ætlar hópurinn að flytja sig upp í Höll og enda veturinn með pompi og prakt. Þá verður boðið upp á mat og gerð heljarinnar veisla úr öllu saman. En fyrst ætlar tónlistarhópurinn […]

Stærsti Sparisjóður landsins

Tímamót urðu í sögu Sparisjóðs Vestmannaeyja á aðalfundi hans fyrir árið 2010 sl. fimmtudaginn. Þá komu inn í stjórn þrír fulltrúar Bankasýslu ríkisins sem fer með 55 pró­senta hlut ríkisins í Sparisjóðn­um. Aðrir stofnfjáreigendur eiga tvo fulltrúa í stjórn. Segja má að þetta sé lokahnykkurinn í uppstokk­un á eignarhaldi og fjárhagslegri endurskipulagningu Sparisjóðsins með aðkomu […]

Landeyja­höfn opin?

Ekkert ætti að vera því til fyrir­stöðu að Herjólfur sigli í Landeyjahöfn, að mati Sigurðar Áss Grétarssonar hjá Siglinga­stofnun. „Það er hins vegar skipstjóranna að ákveða það,“ segir Sigurður sem fullyrðir að nú fari að hilla undir að Landeyjahöfn opnist með tilliti til dýpis. (meira…)

�?ryggið skiptir öllu

Að sjálfsögðu kemur aldrei til greina að gefa afslátt af öryggiskröfum við Landeyjahöfn. Öryggi sjófarenda þarf ætíð að vera í fyrirrúmi sama til hvaða hafnar er siglt. Ekki verður séð hvert bæjarfulltrúar V-listans sækja þann ótta sinn að til standi að draga úr kröfum um öryggi. (meira…)

Vilja engan afslátt á öryggiskröfum við Landeyjahöfn

Að gefnu tilefni viljum við undirrituð fulltrúar Vestmannaeyjalistans í bæjarstjórn Vestmannaeyja koma eftirfarandi á framfæri. Undirrituð munu ekki undir neinum kringumstæðum samþykkja að afsláttur verði veittur á öryggiskröfum varðandi siglingar í Landeyjahöfn. Farþegaflutningar á erfiðu hafsvæði verða að lúta ítrustu öryggiskröfum, það er ekki tilviljun að strangar kröfur séu gildi við suðurströnd Íslands. Sigling á […]

Herjólfur og Sæfari mega sigla til Landeyja

Siglingastofnun segir að skip sem sigli með farþega milli Vestmanna-eyja og Landeyjahafnar þurfi að uppfylla ströng skilyrði. Í umfjöllun um mál þetta í Morgunblaðinu í dag kemur fram, að einungis tvö íslensk skip hafi verið tekin út með tilliti til þessara reglna og fengið fullgilt leyfi til siglinga á þessu hafsvæði: Herjólfur og Grímseyjar-ferjan Sæfari. […]

Aðstæður varasamar í Landeyjahöfn

Siglingastofnun segir, að með tilliti til öryggissjónarmiða og þess rysjótta tíðarfars, sem nú ríki, geti stofnunin ekki fallist á opna Landeyjahöfn fyrir farþegasiglingum annarra skipa en Herjólfs. Elliði Vignisson, bæjarstjóri Vestmannaeyja, hefur sent Ögmundi Jónassyni, innanríkisráðherra, og Hermanni Guðjónssyni, siglingamálastjóra, bréf þar sem farið er fram á að sérleyfi Herjólfs til siglinga í Landeyjahöfn verði […]

Landeyjahöfn áfram lokuð

Siglingastofnun segir að útlit sé fyrir að dæluskipinu Skandia takist í dag að ljúka lágmarksdýpkun í Landeyjahöfn svo hægt sé að opna höfnina. Hins vegar verði ekki hægt að mæla dýpið fyrr en veður gengur niður og það gerist væntanlega ekki fyrr en um næstu helgi. Muni þá koma í ljós hvort dýpið sé nægjanlegt […]

�?tigangsmaðurinn farinn frá Eyjum

Undanfarnar vikur hefur erlendur karlmaður þrætt göturnar í Vestmannaeyjum. Sá hefur ekki haft húsnæði til umráða en samkvæmt heimildum Eyjafrétta hafði hann m.a. hallað höfði sínu í Herjólfsbæ. Í dagbókarfærslu lögreglunnar segir að lögreglan hafi þurft að hafa afskipti af erlendum ríkisborgara sem hafi verið á vappi um Heimaey undanfarnar vikur, vegna ölvunar. Var hann […]

Dröfn valin í æfingahóp í fyrsta sinn

Eyjastelpan Dröfn Haraldsdóttir, sem hefur leikið undanfarið með HK, hefur verið valin í æfingahóp íslenska kvennalandsliðsins í handbolta. Dröfn hefur leikið afar vel í vetur og er vel að því komin að vera valin í landsliðshópinn. Guðbjörg Guðmannsdóttir, leikmaður ÍBV gaf hins vegar ekki kost á sér að þessu sinni en Guðbjörg hefur verið lykilmaður […]

Netkosning hafin í Ungfrú Suðurland

Keppnin Ungfrú Suðurland fer fram á Hótel Selfossi á föstudagskvöld en fjórar Eyjastúlkur taka þátt í keppninni. Alls eru keppendur níu talsins og verða fjölmörg verðlaun veitt eftir keppnina. Meðal annars er sérstök netkosning á gangi nú á Sunnlenska.is þar sem hægt er að velja Netstúlku keppninnar. (meira…)

Skandia strandaði í Landeyjahöfn

Dæluskipið Skandia strandaði í Landeyjahöfn í gær. Lóðsinn frá Vestmannaeyjum losaði skipið og hófst dæling úr höfninni aftur í morgun. Að sögn Guðjóns Egilssonar hjá Íslenska gámafélaginu fékk skipið á sig brot í hafnarmynninu og rak upp í sand inni í höfninni og festist. Ekki varð tjón á skipinu og Lóðsinn var fenginn til að […]

Perlunni snúið við á laugardag

Dæluskipið Perlan átti að taka þátt í dýpkunarframkvæmdum við Landeyjahöfn og lagði af stað frá Ísafirði á föstudaginn. Skipinu var hins vegar snúið við á laugardagsmorgun í Faxaflóa. „Það var mat okkar og Björgunar að Perlan gæti aðeins dýpkað í skamman tíma þar sem ölduspáin hafði versnað frá því á föstudeginum,“ sagði Sigurður Áss Grétarsson, […]

DV biður Guðbjörgu afsökunar

Í frétt í DV miðvikudaginn 30. mars 2011 var sagt frá því að Guðbjörg Matthíasdóttir, útgerðarkona úr Vestmannaeyjum, hefði selt tæplega 7,4 milljónir hluta í Glitni sem hún átti persónulega. Verðmæti umræddra hlutabréfa var í kringum 130 milljónir. Þessi frétt DV var ekki rétt. Sannleikurinn er sá að Guðbjörg á ennþá umrædd hlutabréf í Glitni. […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.