Siglingastofnun segir að skip sem sigli með farþega milli Vestmanna-eyja og Landeyjahafnar þurfi að uppfylla ströng skilyrði. Í umfjöllun um mál þetta í Morgunblaðinu í dag kemur fram, að einungis tvö íslensk skip hafi verið tekin út með tilliti til þessara reglna og fengið fullgilt leyfi til siglinga á þessu hafsvæði: Herjólfur og Grímseyjar-ferjan Sæfari.