Ekkert ætti að vera því til fyrirstöðu að Herjólfur sigli í Landeyjahöfn, að mati Sigurðar Áss Grétarssonar hjá Siglingastofnun. „Það er hins vegar skipstjóranna að ákveða það,“ segir Sigurður sem fullyrðir að nú fari að hilla undir að Landeyjahöfn opnist með tilliti til dýpis.