Krefjast þess að Stígamót verði boðin velkomin á �?jóðhátíð og fái viðunandi aðstöðu
Stofnuð hefur verið facebooksíða, sem er ætlað að þrýsta á þjóðhátíðarnefnd að fá Stígamót á Þjóðhátíð, eða eins og forsvarsmaðurinn segir á síðunni: Til að forðast neikvætt umtal og frekari aðgerðir þrýstihópsins mælist ég til þess að Þjóðhátíðarnefnd bjóði starfskonum Stígamóta opinberlega að koma á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum, þar sem þeirra býður viðeigandi aðstaða. Og að Þjóðhátíðarnefnd biðji viðskiptavini Þjóðhátíðar í Eyjum, fórnarlömb nauðgana og kynferðisofbeldis á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum, sem og landsmenn alla, formlega afsökunar á ummælum sem látin voru falla um Stígamót, nauðganir og kynferðisofbeldi á borgarfundi og í fjölmiðlum nú á dögunum.