Jón Vídalín VE tekur þátt í vorrallinu

Stofnmæling botnfiska á Íslandsmiðum, eða svokallað vorrall, hófst 1. mars og stendur yfir næstu þrjár vikurnar. Fimm skip taka þátt í verkefninu; togararnir Bjartur, Ljósafell og Jón Vídalín og rannsóknaskipin Árni Friðriksson og Bjarni Sæmundsson. (meira…)

Herrakvöld handboltans 18. mars

Föstudagskvöldið 18 mars næstkomandi mun hið rómaða Herrakvöld handknattleiksdeildar ÍBV fara fram í Akóges. Að venju verður mikið um dýrðir, um matinn sér Kári „Hlölli“ Fúsa að sinni alkunnu snilld ásamt aðstoðarmönnum en þar verður galdrað fram ótrúlegt bragð. Veislustjóri og skemmtikraftur er engin annar en Sólmundur Hólm sem skrifaði bókina um Gylfa Ægis en […]

Myndband af marki Hemma

Eyjamaðurinn Hermann Hreiðarsson fór fyrir sínu liði í góðum sigri á Sheffield United í ensku B-deildinni á laugardag. Hermann þótti einn besti leikmaður vallarins enda skoraði hann sigurmark Portsmouth í 1:0 sigri liðsins. Portsmouth siglir nokkuð lygnan sjó um miðja deild en gæti með smá heppni blandað sér í baráttuna um umspilssæti í vor. Myndband […]

Fékk lúgu á höfuðið við löndun

Betur fór en á horfðist í Vestmannaeyja-höfn í morgun þegar löndunarmaður fékk lúgu í höfuðið. Maðurinn vann ásamt öðrum við að landa loðnu úr loðnuskipinu Júpíter, þegar vindhviða skellti lúgunni á höfuð mannsins. (meira…)

Gunnar Heiðar til reynslu hjá Nörrköping

Gunnar Heiðar Þorvaldsson, sem nýverið skrifaði undir fjögurra ára samning við ÍBV, hefur verið kallaður til reynslu hjá sænska úrvalsdeildarliðinu Nörrköping. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá ÍBV-íþróttafélagi en þar segir ennfremur að það liggi fyrir að félagið muni ekki standa í vegi fyrir því að Gunnar fengi aftur tækifæri til að fara erlendis í […]

Enn frestað hjá stelpunum

Það ætlar að reynast íþróttaliðum Fram erfitt að komast til Eyja. Nýkrýndir bikarmeistarar Fram í handbolta kvenna áttu að koma í gær og spila við heimastúlkur en þá reyndist vera ófært. Í dag er veðrið lítið skárra og því sitja Framstúlkur sem fastast í höfuðborginni. Leiknum hafði verið frestað til 13:00 í dag en nú […]

Obbó-síí með Eyjakvöld á meginlandinu

Söng og skemmtisveitin Obbó-síí frá Eyjum er um helgina að túra um Suðurlandið og í gærkvöldi hélt hún Eyjakvöld í Hvíta húsinu á Selfossi. Í kvöld verður hún í Heimalandi undir Eyjafjöllum. Árni Johnsen, alþingismaður verður sérlegur gestur sveitarinnar í kvöld. (meira…)

Klukka sett upp í Eimskipshöllinni

Á fundi fjölskyldu- og tómstundaráðs á miðvikudaginn, lá m.a. fyrir erindi frá ÍBV íþróttafélagi um að fá að setja upp klukku í nýju Eimskipshöllinni. Er hún ætluð annars vegar til upplýsinga fyrir iðkendur á æfingum og hins vegar til að mæla tíma í keppni þegar æfingamót eru í gangi. (meira…)

Ellefu marka tap gegn ÍR hjá strákunum

Karlalið ÍBV steinlá í dag á útivelli gegn ÍR. ÍR-ingar eru í öðru sæti 1. deildar á meðan ÍBV er í því fjórða en lokatölur í leik liðanna urðu 33:22 eftir að staðan í hálfleik hafði verið 17:12. Sigurður Bragason varð markahæstur með fimm mörk og Einar Gauti Ólafsson skoraði fjögur. (meira…)

Eyjamenn í öðru sæti

Um helgina fer fram síðari umferð í Íslandsmóti Skákfélaga en mótið fer fram í Reykjavík. Sveit Taflfélags Vestmannaeyja var fyrir síðari umferðina í öðru sæti og er þar enn, eftir tap gegn Hellismönnum í gærkvöldi, 4½-3½ eftir háspennuviðureign. Tvær umferðir eru eftir í síðari umferð Íslandsmótsins og hófst sú fyrri í dag klukkan 11. (meira…)

Margrét óstöðvandi með íslenska landsliðinu

Margrét Lára Viðarsdóttir virðist vera óstöðvandi á Algarve mótinu í knattspyrnu en íslenska landsliðið hefur nú unnið tvo fyrstu leiki sína í mótinu. Andstæðingarnir hafa ekki verið af verri endanum, Svíþjóð voru lagðir af velli 2:1 í fyrsta leik og í gær lagði íslenska liðið það kínverska að velli með sömu markatölu. Margrét Lára hefur […]

Stelpurnar taka á móti nýkrýndum bikarmeisturum

Klukkan 13:00 taka stelpurnar í ÍBV á móti nýkrýndum bikarmeisturum í Fram en þetta er fyrsti leikur Safamýrarliðsins eftir sigurinn í bikarkeppninni. Framarar eru jafnframt í harðri baráttu við Val um efsta sætið í N1 deildinni en Fram vann einmitt Val í bikarnum. Eyjastúlkur eru einnig í harðri baráttu í deildinni því þær eiga enn […]

Erna gestur laugardagsfundar

Gestur Laugardagsfundar 5. mars, verður Erna Jóhannesdóttir fræðslufulltrúi og ræðir faglegan þátt skólamála í Vestmannaeyjum og stöðu grunnskólans á landsvísu. Kaffi og meðlæti. (meira…)

Fyndnasti brandari í heimi

Breskir vísindamenn sögðu fyrir skömmu frá fyndnasta brandara í heimi, þegar lokið var umfangsmestu rannsókn sem gerð hefur verið á kímnigáfu. Undanfarið ár hefur fólki hvarvetna í heiminum gefist kostur á að greiða atkvæði um brandara á Netinu með því að nota þar til gerðan „hláturmæli“, auk þess að leggja sjálft fram brandara. (meira…)

�?lduhæð enn of mikil í Landeyjahöfn

Ekki er útlit fyrir að dýpkunarskipið Skandia geti hafið vinnu í Landeyjahöfn næstu daga. Ölduhæð hefur undanfarið verið yfir þeim mörkum sem skipið getur athafnað sig við og allt fram á miðvikudag eru ölduspár andsnúnar slíkri vinnu. (meira…)

�?g man ferðalög

Ég man að þegar heyskapi var lokið var öllum helstu nauðsynjum pakkað inní Rússajeppann hans afa og land lagt undir fót. Í þessum reisum var oftar en ekki gjarnan komið við á stöðum sem voru ekki í alfaraleið og myndu seint teljast til hefðbundinna ferðamannastaða, þó vissulega hafi hefðbundnir áfangastaðir líka verið sóttir heim. Á […]

Kominn til Simbabwe

Heimsreisa Sighvatar Bjarnasonar gengur vel en hann er nú staddur í Simbabwe. Síðast þegar við sögðum frá ferð hans var hann í Höfðaborg í S-Afríku en eftir 28 klukkustunda lestarferð og 12 klukkustunda rútuferð, náði hann til Bulawayo í Simbabwe. Á leiðinni kom hann við í Jóhannesarborg en þar er glæpatíðni afar há og þurfti […]

Eivör komin til Eyja

Eivör Pálsdóttir, færeyska söngkonan er komin til Eyja en hún mun syngja á tónleikjum í Landakirkju í kvöld. Örfáir miðar eru eftir á tónleikana en forsölu miðanna er að ljúka núna í Pennanum en ef einhverjir miðar verða eftir, verða þeir seldir við innganginn í kvöld. Tónleikarnir hefjast klukkan 20:00 en Eivör sagði við komuna […]

Berglind Björg kölluð inn til Portúgal

Berglind Björg Þorvaldsdóttir, leikmaður ÍBV í knattspyrnu hefur verið kölluð inn í íslenska A-landsliðshópinn en liðið tekur þátt í Algarve-mótinu í Portúgal þessa dagana. Berglind tekur sæti Kristínar Ýrar Bjarnadóttur úr Val sem meiddist og er á heimleið. Þar með eru þrjár stelpur frá Vestmannaeyjum í landsliðshópnum, skytturnar þrjár mætti kannski segja enda eru þær […]

Unnu FH þrátt fyrir að spila 10 gegn 11 lengst af

Kvennalið ÍBV bar í gærkvöldi sigurorð af FH í fyrsta leik liðanna í Lengjubikarkeppninni en leikurinn fór fram á gervigrasinu í Laugardal. Danka Podovac kom ÍBV yfir snemma leiks en á 25. mínútu fékk Kolbrún Stefánsdóttir að líta rauða spjaldið fyrir að brjóta á sóknarmanni FH sem var að sleppa í gegn. En þrátt fyrir […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.