Norrköping spennt fyrir Gunnari

Gunnar Heiðar Þorvaldsson, knattspyrnumaður frá Vestmannaeyjum, skoraði eitt mark og lagði upp tvö fyrir sænska úrvalsdeildarliðið Norrköping í gær. Liðið vann þá sigur, 5:0, á varaliði spænska félagsins Real Mallorca en Gunnar er í æfingabúðum með Svíunum á Mallorca og dvelur þar með þeim til þriðjudags. (meira…)
Dýpkun Landeyjahafnar hafin aftur

Dæluskipið Skandia hóf að dýpka Landeyjahöfn á ný síðdegis. Rétt um mánuði eftir komu skipsins til landsins er sjólag og veður loks hentugt til að dæla úr höfninni í nokkra daga samfellt. Áhöfnin hefur þurft að bíða lengi eftir norðanáttinni sem er heppilegasta vindáttin til verksins. (meira…)
Boltarnir í beinni í Höllinni

Boltaunnendur hafa í nógu að snúast í kvöld þegar íslenska landsliðið í handbolta leikur gegn Þjóðverjum í undankeppni EM í Laugardalshöll. Auk þess verður stórleikur í Meistaradeildinni þegar Tottenham tekur á móti AC Milan í London og Schalke og Valencia leika í sömu keppni. Hægt verður að fylgjast með leikjunum í góðu yfirlæti í Höllinni […]
Fjör á öskudegi í Eyjum

Börn í Eyjum ganga nú á milli fyrirtækja og syngja fyrir viðstadda eins og venjan er á Öskudeginum. Í morgun var heljar mikið fjör í skólanum en þá tóku krakkarnir þátt í ýmiskonar stöðvavinnu áður en kötturinn var sleginn úr tunnunni. Eftir hádegi fara krakkarnir svo niður í bæ, syngja og fá smá glaðning fyrir. […]
Skandia fer væntanlega síðdegis að grafa

Nú er ölduhæð loksins komin undir tvo metra í Landeyjahöfn en öldudufl þar sýnir 1,5 metra ölduhæð. Til að dæluskipið Skandia geti athafnað sig í Landeyjahöfn verður ölduhæð að vera minni en tveir metrar. Skandia liggur þó enn við landfestar í Eyjum en skipið mun væntanlega sigla upp í Landeyjahöfn síðar í dag. (meira…)
Enn mikil sýking í síldinni

Nýjar mælingar Hafrannsóknarstofnunar staðfesta niðurstöðu fyrri mælinga um mikla sýkingu í síldarstofninum í Breiðafirði. Skip stofnunarinnar fóru í rannsóknaleiðangur 21.-25. febrúar sl. til að kanna ástand síldarstofnsins í Breiðafirði. Markmið rannsóknanna var fyrst og fremst að meta og fylgjast með þróun Ichthyophonus sýkingarinnar sem herjað hefur á stofninn frá árinu 2008 og valdið miklum afföllum […]
Theodór á æfingar með U-19 ára landsliðinu

Theodór Sigurbjörnsson, handknattleiksmaður úr ÍBV, hefur verið valinn til æfinga með landsliðinu skipað leikmönnum 19 ára og yngri. Liðið mun æfa um helgina í Reykjavík en þjálfari liðsins er Heimir Ríkharðsson. Theodór hefur vakið athygli fyrir vasklega framgöngu sína með meistaraflokki ÍBV en hann hefur talsvert fengið að spreyta sig með liðinu í vetur þrátt […]
Stofnfjáreigendur að stofna hagsmunasamtök?

Stofnfjáreigendur í Sparisjóði Vestmannaeyja hafa verið boðaðir á fund í fundarsal Sparisjóðsins í kvöld klukkan 18:00. Eina fundarefnið er stofnun hagsmunasamtök stofnfjáreigenda en fyrir liggur að um 10% af stofnfé sjóðsins sé í eigu einstaklinga og fyrirtækja. Áhugahópur um stofnun samtökin telja að þessir eigendur stofnfjár verði sterkari komi þeir fram sem sameiginlegur aðili, t.d. […]
Góður sigur á Selfyssingum

Eyjamenn unnu mikilvægan sigur á ungmennaliði Selfoss í kvöld þegar liðin áttust við í Eyjum. Það var kraftur í gestunum í upphafi leiks þegar þeir komust tveimur mörkum yfir strax í byrjun en Eyjamenn náðu fljótt tökum á leiknum. Reyndar var krafturinn fullmikill í hinu unga Selfossliði því sauma þurfti Grétar Þór Eyþórsson, leikmann ÍBV […]
Eyjamenn eiga harma að hefna

Í kvöld klukkan 19:30 munu Eyjamenn taka á móti ungmennaliði Selfoss í Eyjum í 1. deild karla í handbolta. Liðin hafa tvívegis leikið áður í vetur, ÍBV vann með einu marki á Selfossi, 25:26 en Selfyssingar gerðu sér lítið fyrir og unnu ÍBV í Eyjum með tveimur mörkum í hörkuleik, 28:30. Eyjamenn eiga því harma […]
Suðurlandssýning í Ráðhúsinu 19. mars

Laugardaginn 19. mars verður í Ráðhúsinu í Reykjavík Suðurlandssýning undir yfirskriftinni „Suðurland já takk“. Þar fylkja Sunnlendingar liði og kynna það sem er efst á baugi í fjórðungnum. Það eru Atvinnuþróunarfélag Suðurlands, menningarfulltrúi Suðurlands og Markaðsstofa Suðurlands sem leiða þetta verkefni ásamt fjölda annarra s.s. ferðamálafulltrúum, sveitarfélögum, handverkshópum, klösum og ferðaþjónustuaðilum á Suðurlandi. (meira…)
Sækja um frest vegna Sorpu

Á 100. fundi Framkvæmda- og hafnarráð Vestmannaeyja var m.a. fjallað um málefni Sorpeyðingarstöð Vestmannaeyja og þeim áformum Umhverfisstofnunnar að svipta stöðina starfsleyfi vegna rykmengunar frá stöðinni. Vestmannaeyjabær fer fram á frest á breytingum á starfseminni, vegna þess að niðurstöður mælinga sérfræðings Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands, sem framkvæmdar voru 2. mars, verða ekki tilbúnar fyrr en eftir nokkrar […]
Stórleikurinn í beinni í Hallarlundi

Í kvöld klukkan 19:45 verður líklega einn stærsti leikurinn í Meistaradeildinni í vetur, fyrir utan sjálfan úrslitaleikinn þegar tvö skemmtilegustu lið heims mætast í síðari umferð 16-liða úrslitum. Arsenal vann Barcelona 2:1 í fyrri leik liðanna í London en nú mætast þau að nýju í Barcelona. Leikurinn verður sýndur í beinni útsendingu í Hallarlundi og […]
Leikmaður ÍBV spilaði með Fram gegn ÍBV

Leikmaður ÍBV spilaði í gærkvöldi með Fram gegn ÍBV í N1 deild kvenna. Birna Berg Haraldsdóttir hefur leikið með Framliðinu í handbolta í vetur og verið einn af lykilmönnum liðsins. Hún hefur hins vegar samþykkt að spila með ÍBV í knattspyrnu í sumar þar sem hún kemur til með að verja mark Eyjaliðsins og hefur […]
Fram ekki í teljandi vandræðum með ÍBV

Nýkrýndir bikarmeistarar Fram voru ekki í teljandi vandræðum með ÍBV þegar liðin mættust í Eyjum í kvöld. Reyndar náðu Eyjastúlkur að stríða Framliðinu lengi vel en styrkleikamunurinn á liðunum var hins vegar of mikill til að úr yrði spennandi leikur. Lokatölur urðu 24:33 eftir að staðan í hálfleik var 11:16. (meira…)
Tveir gistu fangageymslur lögreglunnar um helgina

Tveir fengu að gista fangageymslur lögreglunnar í Vestmannaeyjum um síðustu helgi. Annar fékk var tekinn vegna ölvunar og óspekta en hinn gisti tvær nætur í röð í fangageymslunni auk þess sem lögregla þurfti að hafa afskipti af honum nokkrum sinnum vegna vandræða sem sköpuðust í kringum ástand hans. Þetta kemur fram í dagbókarfærslu lögreglunnar sem […]
Bikarmeistarar Fram á leið til Eyja með Herjólfi

Í kvöld klukkan 19:30 taka Eyjastúlkur á móti nýkrýndum bikarmeisturum Fram í N1 deild Íslandsmótsins. Leiknum átti upphaflega að fara fram á laugardaginn en samgöngur hafa verið tregar vegna veðurs og því var leiknum frestað bæði laugardag og sunnudag. Framstúlkur mættu hins vegar galvaskar í Þorlákshöfn í morgun og eru nú á leið til Eyja […]
Svanur þriðji í söngkeppni Samfés

Eyjapeyinn Svanur Páll Vilhjálmsson gerði sér lítið fyrir og varð þriðji í Söngkeppni Samfés sem fór fram á laugardaginn. Söngkeppnin er hluti af Samféshátíðinni sem fer fram í Laugardalshöll en þá koma saman unglingar úr félagsmiðstöðvum landsins og skemmta sér. Á föstudeginum var risadansleikur í Laugardalshöll en daginn eftir var svo söngkeppnin. (meira…)
Sighvatur kominn til Malaví

Heimsreisa Sighvatar Bjarnasonar heldur áfram en hann er nú staddur í Malaví í Afríku, á leið norður heimsálfuna áður en hann fer yfir til Asíu. Rútuferðirnar virðast vera æði sérstakar þarna suður frá. „Ferðin frá Harare í Zimbabwe til Blantyre í Malawi tók því 17 tíma, og af þeim var sami gospell diskurinn spilaður í […]
Dagur á úrtaksæfingu hjá U-16

Á heimasíðu ÍBV-íþróttafélags er sagt frá því að Dagur Arnarsson hafi verið valinn til þess að taka þátt í úrtaksæfingu með U-16 ára landsliðsins. Dagur er einn af efnilegri handboltastrákunum í Eyjum en hann hefur ekki langt að sækja hæfileikana því faðir hans er enginn annar en Arnar Pétursson, þjálfari og leikmaður meistaraflokks ÍBV. (meira…)