Tinna, Elliði og Kristmann �?ór unnu fjórþraut í stærðfræði

Í tilefni af Degi stærðfræðinnar stóð Grunnskóli Vestmannaeyja fyrir fjórþraut fyrir nemendur á mið- og unglingastigi. Sett var fram ein þraut á dag, frá mánudeginum í síðustu viku og fram á fimmtudag en lausnum skiluðu nemendur á skrifstofu skólans. Í morgun voru svo veitt verðlaun fyrir besta árangurinn. (meira…)
Vegfarendur hvattir til að sáldra salti á göturnar

Bæjarbúar hafa undanfarið fengið að kynnst því hvernig það er að keyra í hálku. M.a. var illfært upp Strembugötuna í gær en Guðmundur Þ. B. Ólafsson, framkvæmdastjóri Þjónustumiðstöðvar Vestmannaeyjabæjar vill koma því á framfæri að víða í bænum eru gular saltkistur sem vegfarendur eru hvattir til að nota þegar ástæða er til. (meira…)
Myndi kyndingarkostnaður hækka um 29 þúsund á heimili

Sorpi er brennt í Vestmannaeyjum, sem kunnugt er. Hitinn sem fæst úr sorpbrennslunni er notaður til húsahitunar. Ólafur Snorrason framkvæmdastjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs Vestmannaeyjabæjar var með erindi á fundi í Kiwanisklúbbnum Helgafelli í síðustu viku. Þar kom m.a. fram hjá honum að HS orka kaupir þann hita sem myndast við sorpbrennsluna í Eyjum á 7 […]
Veður tefur sanddælingu

Ekki eru horfur á að sanddæluskipið Skandia geti farið að vinna við Landeyjarhöfn fyrr en um miðja vikuna. Í morgun sýndi dufl við Landeyjarhöfn 3,3 metra ölduhæð, en skipið getur ekki unnið ef ölduhæð fer yfir 2 metra. (meira…)
60 tonna krani skautaði niður Strembugötuna

Síðdegis í gær var talsverð hálka í Vestmannaeyjum. Ökumaður 60 tonna grindabómukrani fékk að kynnast því þegar hann var að keyra krananum upp Strembugötuna. Þegar kraninn var hálfnaður á leiðinni, komst hann ekki lengra sökum hálkunnar og byrjaði skömmu síðar að renna aftur á bak niður snarbratta götuna. (meira…)
�?tlar enginn að segja neitt?

Mér er eiginlega orða vant, aldrei þessu vant. Gjaldskrá Herjólfs til Þorlákshafnar liggur nú fyrir. Samgöngubót okkar Vestmannaeyinga er að engu orðin og betur heima setið en af stað farið ef þetta á að vera svona. Verð fram og til baka með Herjólfi til Þorlákshafnar fyrir tvo fullorðna með fólksbíl er kr. 13.782. Þetta verð […]
Einhugur í bræðslumönnum

Mikill einhugur er í samninganefnd bræðslumanna AFLs og Drífanda. Samninganefndin hittist á fundi síðdegis í gær og fór yfir stöðuna í viðræðum við SA og í ljósi frétta um viðræður ASÍ og SA á föstudag. Trúnaðarmenn félaganna í átta bræðslum sátu fundinn, en fundarmenn voru staðsettir víða um land og nýttu símtæknina við fundinn. Niðurstaða […]
Dæluskipið tilbúið fyrir dýpkun

Dæluskipið Skandia er tilbúið fyrir dýpkun Landeyjahafnar. Um helgina hefur verið unnið við skipið eftir komu þess til Vestmannaeyja á fimmtudagskvöld. Gera þurfti við olíudælu sem bilaði á siglingunni frá Danmörku, ásamt því sem sinna þurfti ýmsum viðhaldsverkum. Þá þurfti að koma dæluröri skipsins fyrir. (meira…)
Vandræði karlaliðsins halda áfram

Vandræði karlaliðs ÍBV halda áfram en liðið hefur ekki þótt spila vel undanfarnar vikur. Í dag tapaði liðið fyrir Víkingum 30:27 eftir að staðan í hálfleik hafði verið 15:9 Víkingum í vil. Síðan 6. nóvember hefur liðið aðeins unnið þrjá af níu leikjum. Af þessum þremur sigrum, var einn gegn botnliði Fjölnis á heimavelli og […]
Kári Kristján skoraði 5 gegn Löwen

Línumaðurinn Kári Kristján Kristjánsson skoraði 5 mörk fyrir Wetzlar sem gerði jafntefli gegn Íslendingaliðinu Rhein-Neckar Löwen 26:26 í þýsku 1. deildinni í handknattleik í dag. Kári var markahæstur hjá Wetzlar í leiknum. Ólafur Stefánsson lék á ný með liði Löwen og skoraði tvívegis. Róbert Gunnarsson komst ekki blað hjá Löwen og Guðjón Valur Sigurðsson var […]
Markmiðið er fimmta sætið

Ester Óskarsdóttir var markahæst hjá ÍBV í sigurleiknum gegn FH í kvöld en hún skoraði níu mörk og var mjög ákveðin á lokakaflanum fyrir ÍBV. Hún sagði í samtali við Eyjafréttir að markmiðið hjá ÍBV í vetur væri enn að ná í fimmta sætið, þó svo að liðið sitji nú í því fjórða enda megi […]
ÍBV upp í fjórða sætið

ÍBV er komið í fjórða sæti N1 deildarinnar eftir sigur á FH í hörkuleik. Leikurinn fór fram í Eyjum þrátt fyrir að ekki hafi verið flugfært í dag en Hafnafjarðarliðið og dómarapar leiksins kom með Herjólfi í dag. Lokatölur urðu 24:22 en staðan í hálfleik var 9:10 FH í vil. Þótt ÍBV sé komið í […]
Vinstri græn í Eyjum styðja ríkisstjórnina

Félagsfundur Vinstrihreyfingarinnar-græns framboðs í Vestmannaeyjum lýsir yfir fullum stuðningi við ríkisstjórn Vinstri grænna og Samfylkingarinnar. Fundurinn lýsir jafnframt yfir ánægju sinni með þann árangur sem náðst hefur á fjölmörgum sviðum þjóðmála við afar erfiðar aðstæður sem sýnir að ríkisstjórnin er á réttri leið. Þetta kemur fram í ályktun VG í Vestmannaeyjum sem má lesa hér […]
Frestað í körfunni

Körfuknattleikslið ÍBV átti að taka á móti Reyni frá Sandgerði á morgun klukkan 12:30 en leiknum hefur nú verið frestað um óákveðinn tíma. Reynismenn eru í öðru sæti B-riðils með 22 stig eftir 13 leiki á meðan ÍBV er í því þriðja með 18 stig eftir 10 leiki. Sigur myndi því koma sér vel fyrir […]
Seinni ferð Herjólfs aflýst

Herjólfur mun ekki fara seinni ferð dagsins í dag, laugardag enda spáir stormi við suðurströndina. Skipið tafðist í fyrri ferð og er núna að sigla inn til hafnar í Vestmannaeyjum um þrjú leytið, um klukkustund á eftir áætlun. (meira…)
Fundi með fjármálaráðherra frestað

Fyrirhuguðum fundi með Steingrími J. Sigfússyni, sem halda átti í Vestmannaeyjum í dag hefur verið frestað. Ráðherra var á leið til Eyja með flugi en vélin gat ekki lent í Eyjum og sneri því við. (meira…)
Stelpurnar taka á móti FH í dag

Kvennalið ÍBV tekur á móti FH í dag klukkan 18:00 í íþróttamiðstöðinni. Eyjastúlkur hafa verið á mikilli siglingu undanfarið og hafa unnið síðustu fimm leiki sína en með sigri í kvöld, gæti liðið stokkið upp í fjórða sæti deildarinnar, svo lengi sem Valur vinnur Fylki, eins og flestir búast við. Fjögur efstu liðin fara í […]
Nokkuð um pústra en enginn meiddist alvarlega

Skemmtanalíf í Vestmannaeyjum var fremur róstusamt í nótt, nokkuð var um pústra á skemmtistöðum bæjarins í nótt og þurfti lögreglan í bænum að hafa af því nokkur afskipti. Enginn mun þó hafa meiðst alvarlega í þessum pústrum. (meira…)
Fjármálaráðherra heimsækir Eyjamenn

Í dag laugardag verður almennur félagsfundur VG í Vestmannaeyjum kl. 12.00 á Kaffi Kró. Steingrímur J Sigfússon formaður flokksins ætlar að mæta og ræða við félagsmenn. Almennur fundur verður haldinn á sama stað kl. 13.00. Fundurinn er opinn öllum þeim sem hafa áhuga á stöðunni í íslenskum stjórnmálum og ekki síst þeim krefjandi og áhugaverðu […]
Forstjóri Hafró gestur á laugardagsfundi

Laugardagsfundur í Ásgarði laugardaginn 12. febrúar 2011 kl.11.00. Gestur fundarins verður Jóhann Sigurjónsson forstjóri Hafrannsóknarstofnunar. Allir velkomnir, kaffi á könnunni. (meira…)