Ekki siglt í Landeyjahöfn í dag

Herjólfur siglir ekki til Landeyjahafnar í dag en þetta er þriðji dagurinn í röð sem ekki er hægt að sigla til hafnarinnar nýju. Skipið sigldi í morgun til Þorlákshafnar til að flytja bæði fólk og vörur til Eyja en verulega er farið að vanta nauðsynjavörur í Eyjum. Fyrirhugað var svo að fylgja ferðinni til Þorlákshafnar […]

Lóðsinn sat fastur í Landeyjahöfn

Nú er Herjólfur á leið til Eyja en skipið sigldi til Þorlákshafnar í morgun. Áætlað er að Herjólfur verði kominn til Eyja upp úr eitt en tæplega hundrað farþegar eru um borð. Áætlað var að Herjólfur myndi sigla síðdegis upp í Landeyjahöfn en Hallgrímur Hauksson, stýrimaður um borð telur litlar líkur á því. „Lóðsinn var […]

Herjólfur siglir á ný til �?orlákshafnar

Áætlað er að Herjólfur sigli á ný til sinnar gömlu hafnar í Þorlákshöfn í fyrramálið. Ferjan leggur af stað klukkan sex og fer síðan til baka til Eyja klukkan tíu. Síðar á morgun er ráðgert að miðað verði við bráðabirðgaáætlun sem gengur út frá að við að hægt verði að sigla til Landeyjahafnar en það […]

Herjólfur siglir ekki í dag

Herjólfur siglir ekki milli lands og Eyja í dag, annan daginn í röð en ferðir skipsins hafa verið stopular síðan á föstudag. Eins og áður hefur komið fram er farið að bera á vöruskorti í Eyjum, m.a. er enga mjólk að fá í Vestmannaeyjum. Flugfélagi Ernir heldur þó uppi áætlunarflugi milli lands og Eyja og […]

Reynt að koma til móts við farþega Herjólfs

Í fréttatilkynningu frá Sterna, sem sér um rútuferðir til og frá Landeyjahöfn, kemur fram að reynt verði að koma til móts við farþega Herjólfs í breyttri áætlun. Á morgun, miðvikudaginn 8. september verður rúta í Landeyjahöfn þegar Herjólfur fer í sína fyrstu ferð en ekki verður farið frá Hvolsvelli fyrr en klukkan 9:00 samkvæmt áætlun. […]

Aukaferð hjá Flugfélaginu Erni

Aukaferð verður í dag hjá Flugfélaginu Erni. Ferðinni er bætt við reglubundna áætlun félagsins til Eyja vegna mikillar eftirspurnar og verður brottför úr Reykjavík klukkan 15:00 og 15:40 úr Eyjum. Vegna þessarar ferðar gætu í kjölfarið losnað sæti í síðdegisferðinni sem fer frá Reykjavík 16:30 og frá Eyjum klukkan 17:15. (meira…)

Herjólfur fer ekki 15:30

Enn er ekki fært með Herjólfi upp í Landeyjahöfn en skipið hefur ekki enn farið ferð í dag. Herjólfur fór ekki heldur í gær og er nú farið að bera á vöruskorti, m.a. var sagt frá því á vef Ríkisútvarpsins að mjólkurlaust væri í Vestmannaeyjum. Áætlað var að skipið myndi sigla 15:30 en nú hefur […]

Fyrsta ferð felld niður

Fyrstu ferð Herjólfs í dag, þriðjudaginn 7. september féll niður vegna veðurs. Á Stórhöfða voru 22 metrar á sekúndu klukkan 7:00 í morgun en ölduhæð við Landeyjahöfn var 3,0 metrar á sama tíma. Næsta ferð skipsins er áætluð frá Vestmannaeyjum klukkan 14:30 og frá Landeyjahöfn klukkan 16:00. (meira…)

Einn gisti fangageymslu vegna ölvunar

Það er ekki hægt að segja annað en liðin vika hafi verið róleg eins og reyndar undanfarnar vikur og rólegt í tengslum við skemmtanahald helgarinnar þrátt fyrir nokkurn fjölda sem var að skemmta sér. Einn fékk að gista fangageymslu lögreglu eftir skemmtanahald helgarinnar en hann gat ekki gert grein fyrir sér sökum ölvunar og fékk […]

Fyrirstaða við annan hafnargarðinn

Samkvæmt fyrstu mælingum í Landeyjahöfn í dag hefur myndast rif við annan hafnargarðinn sem truflar siglingar Herjólfs um höfnina. Áætlun skipsins tekur nú mið af sjávarföllum og verða farnar þrjár ferðir á dag það sem eftir er vikunnar. (meira…)

�?rjár ferðir á dag út vikuna

Nú liggur fyrir áætlun Herjólfs næstu daga en samkvæmt henni verða sigldar þrjár ferðir á dag fram á föstudag en einungis tvær ferðir á laugardag. Guðmundur Nikulásson, framkvæmdastjóri innanlandsdeildar hjá Eimskip segir að um tímabundna ráðstöfun sé að ræða en bæði hefur grynnkað í höfninni og vindátt og vindstyrkur verið óhagstæð. Áætlun skipsins miðast við […]

Herjólfur siglir eftir sjávarföllum

Siglingastofnun vinnur nú að endurskoðaðri áætlun Herjólfs fyrir næstu daga með tilliti til sjávarfalla í Landeyjahöfn. Skipstjóri Herjólfs aflýsti ferðum í morgun eftir að skipið tók tvívegis niður í nýju höfninni í gær. Talið er að gosefni frá Eyjafjallajökli sem hafa borist fram með Markarfljóti hafi safnast saman við austari hafnargarðinn og veldur það vandræðum […]

Fundur um Herjólf stendur yfir

Boðað var til fundar klukkan eitt um hvort Herjólfur siglir aftur í dag. Fundurinn stendur enn yfir en að honum loknum verður ljóst hvenær þeir sem hugðust fara með Herjólfi komast á áfangastað. Ferð Herjólfs, sem fara átti frá Vestmannaeyjum til Landleyjahafnar klukkan hálf átta í morgun, var frestað um óákveðinn tíma, jafnvel einhverja daga, […]

Skipstjóri Herjólfs tekur enga sénsa

Skipstjóri á Herjólfi segist hafa fellt niður ferðir skipsins í morgun eftir að það tók niðri í Landeyjahöfn tvívegis í gær. Starfsmaður Siglingastofnunar hefur kannað aðstæður í nýju höfninni í morgun en óvíst er með framhald siglinga þangað. Siglingastofnun, Vegagerðin og Eimskip ræða nú framhald mála og dýpkunarskipið Perlan bíður þess í Reykjavík að veður […]

Fjárhagsstaða Vestmannaeyjabæjar er traust

Eins og greint var frá á dögunum fékk Vestmannaeyjabær aðvörun frá Eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga eftir úttekt á heildarskuldum sem hlutfall af heildartekjum. Eftir úttekt nefndarinnar var greint frá því að Vestmannaeyjabær væri í 11. sæti yfir skuldsettustu bæjarfélög landsins en þessu mótmælti Elliði Vignisson, bæjarstjóri harðlega. Nú hefur Eftirlitsnefndin sent frá sér fréttatilkynningu þar […]

Dýpkunarskip bíður færis

Dýpkunarskipið Perlan er í Reykjavík og fer í Landeyjarhöfn til þess að dæla sandi úr innsiglingunni um leið og veður leyfir. Þórhildur Elín Elínardóttir, upplýsingafulltrúi Siglingastofnunar, segir að vegna eldgossins í Eyjafjallajökli í vor hafi mikið gosefni safnast saman og það geti borist inn í Landeyjarhöfn í óhagstæðum vindáttum. Mælingar hafi sýnt að meira sé […]

Ekki með öllu ófært til og frá Eyjum

Flugfélagið Ernir á enn laus sæti til og frá Eyjum í dag og næstu daga. Einnig mun ferðum bætt við ef á þarf að halda og eftirspurn það mikil. Flogið er tvisvar á dag til Eyja alla daga vikunnar og til að mæta mikilli eftirspurn er reynt að bæta við ferðum eftir þörfum hverju sinni. […]

Lóðsinn á leiðinni upp í Landeyjahöfn til að mæla dýpið

Guðmundur Nikulásson, framkvæmdastjóri Eimskips innanlands segir að verið sé að skoða hjá Siglingastofnun og Vegagerðinni til hvaða ráðstafana verði gripið í ljósi stöðu siglinga til Landeyjahafnar. Hann segir Lóðsinn vera á leiðinni í Landeyjahöfn til dýptarmælinga og í framhaldi af því munu hlutir vonandi skýrast með siglingar Herjólfs til Landeyjahafnar. (meira…)

Herjólfur getur ekki lengur siglt til Landeyjarhafnar

Vestmannaeyjaferjan Herjólfur getur ekki lengur siglt til Landeyjarhafnar, að mati Ívars Gunnlaugssonar skipstjóra, þar sem höfnin er orðin of grunn vegna framburðar á sandi og gosefnum, sem berst inn í höfnina. Í síðustu ferð í gær, kenndi skipið grunns bæði á innleið og útleið og dró heldur úr ferð þess í annað skiptið. (meira…)

ÍBV vann 1. deildina

ÍBV hafði betur í úrslitaleik 1. deildar kvenna í dag en stelpurnar léku gegn Þrótti í úrslitaleik á Þorlákshafnarvelli. Markalaust var í hálfleik en ÍBV tókst að skora þrívegis í síðari hálfleik á meðan Þrótti tókst aðeins að svara einu sinni. Bæði lið leika í úrvalsdeild næsta sumar. (meira…)

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.