Stelpurnar leika til úrslita í dag

Í dag, klukkan 12:30 fer fram úrslitaleikur í 1. deild kvenna en þar mætast ÍBV og Þróttur. Bæði lið eru örugg með sæti í úrvalsdeild næsta sumar og því aðeins leikið um sigurverðlaunin í 1. deild. Leikurinn fer fram á Þorlákshafnarvelli og rétt að skora á alla þá Eyjamenn sem eiga möguleika á, að fara […]
Herjólfur komst bara eina ferð í dag
Herjólfur komst aðeins eina ferð í dag milli Eyja og Landeyjahafnar en í tilkynningu frá Eimskip kemur fram að skipið sigli ekki síðustu ferð sína í kvöld. Ferðin átti að fara frá Vestmannaeyjum klukkan 21:00 og frá Landeyjahöfn kl. 22:30. Næsta ferð skipsins er áætluð á morgun, sunnudag kl. 09:00 frá Eyjum og 10:30 frá […]
Ferðir Herjólfs falla niður
Ferð Herjólfs sem átti að fara frá Vestmannaeyjum kl.12:00 og frá Landeyjahöfn kl.13:30 fellur niður vegna veðurs. Miklar líkur eru á að næsta ferð á eftir sem á að fara frá Vestmannaeyjum kl.15:00 og frá Landeyjahöfn kl.16:30 falli einnig niður en ákvörðun um það verður tekin eftir hádegi. (meira…)
�?tlun Siglingastofnunar að hafa dæluskip tiltækt
Nú er hálfur annar mánuður síðan Landeyjahöfn var formlega opnuð fyrir siglingar Herjólfs milli lands og Eyja. Þegar hafa yfir 70 þúsund manns tekið sér far með Herjólfi, en það eru 170% fleiri en fóru á sama tíma í fyrra enda greiðir styttri tími á sjó leiðir Eyjamanna og ferðafólks mjög. Hafa siglingar gengið að […]
Minni kvóti til Eyja í ár
Í Fiskifréttum sem komu út í gær er farið yfir útlutun á kvóta í þorskígildistonnum á hverja útgerð fyrir sig. Tekin er saman úthlutun til 25 kvóthæstu útgerðanna og eru fjórar þeirra í Vestmannaeyjum. Vinnslustöðin hf. er í 9. sæti listans með 3,24% af heildarkvótanum eða 8.761 þorskígildistonn. Til samanburðar þá var VSV í 8. […]
Herjólfur fer 15:30 frá Eyjum

Ákveðið hefur verið að ferð Herjólfs sem átti að fara kl.10:30 úr Vestmannaeyjum og frá Landeyjahöfn kl.12:30 muni fara frá Vestmannaeyjum kl.15:30 og frá Landeyjahöfn kl.16:30. Öðrum ferðum í dag getur seinkað eitthvað vegna þessa en farþegar eru beðnir um að mæta samkvæmt upprunalegri áætlun því skipið verður losað og lestað eins og hratt og […]
Vetrarstarfið að hefjast aftur
Safnaðarstarf Landakirkju er að hefjast aftur eftir sumarið sunnudaginn 5. september með mikilli dagskrá fyrir alla hópa og söfnuðinn allan. Það er mikið um að vera í Landakirkju nær alla daga vikunnar, enda söfnuðurinn hátt í fjögur þúsund manns. Vonast prestar, sóknarnefnd og starfsfólk eftir góðri kirkjusókn í vetur og vona að hún hefjist vel […]
�?fingamót í handbolta hafið í Eyjum

Nú er hafið handboltamót í kvennahandbolta í Eyjum en þar mætast ÍBV, Fram, HK og Haukar. Fyrsti leikur mótsins var í gær þegar ÍBV tók á móti Fram en Eyjastúlkur leika á ný í úrvalsdeild næsta vetur. Leiknum var skipt upp í tvo hálftíma leiki og höfðu Framarar mikla yfirburði í fyrri leiknum og unnu […]
Athugun klukkan 14:00

Enn þarf að fresta ferð Herjólfs en skipið mun ekki sigla klukkan 13:00 eins og vonir stóðu til. Næsta athugun er klukkan 14:00. Í samtali við mbl.is segir Ívar Gunnarsson, skipstjóri að ferð skipsins sé ekki frestað vegna ölduhæðar, heldur vegna vinds en Herjólfur tekur mikinn vind á sig. Ívar segir ennfremur að hugsanlega verði […]
Bæjaryfirvöld funda með eftirlitsnefndinni

Eins og sagt var frá hér á Eyjafréttum gera bæjaryfirvöld alvarlegar athugasemdir við niðurstöðu Eftirlitsnefndar með fjármál sveitarfélaga en þar segir að Vestmannaeyjabær sé í 11. sæti yfir skuldsettustu bæjarfélög landsins. Fulltrúar bæjarins óskuðu eftir fundi með nefndinni til að fara yfir málið og leiðrétta þennan alvarlega misskilning. Fundurinn var áætlaður klukkan 13.15 en nú […]
Seinkun á ferð Herjólfs
Seinkun verður á ferð Herjólfs en skipið átti að sigla til Landeyjahafnar nú klukkan 10:30 en búið er að seinka ferðinni til klukkan 13:00. Talsverður vindur er í Eyjum þessa stundina en klukkan 10:00 var á Stórhöfða austan 25 metrar á sekúndu. Öldudufl við Landeyjahöfn sýndi 2,6 metra ölduhæð og eru aðstæður þannig að ekki […]
Margrét Lára skoraði gegn toppliðinu

Margrét Lára Viðarsdóttir virðist vera að ná sér af þeim meiðslum sem voru að stríða henni síðustu vikur. Margrét lék í gærkvöldi með liði sínu, Kristianstad gegn Malmö í sænsku úrvalsdeildinni. Leikurinn endaði með 5:3 sigri Malmö en Magrét Lára skoraði fyrsta mark leiksins en Kristianstad kom mjög á óvart með því að komast í […]
Gróska á flestum sviðum – Vandamálið er skrýtin ríkisstjórn

Annars má segja að flest hafi gengið okkur Eyjamönnum í haginn á árinu. Veðrið í sumar hefur verið frábært og stærsta þjóðhátíðin til þessa heppnaðist fantavel. Þar komu margir að verki sem unnu frábært starf. Afraksturinn verður undirstaðan undir rekstri ÍBV-íþróttafélags næsta árið sem nú horfir upp á bjartari tíð með lækkun ferðakostnaðar með tilkomu […]
Fjárhagsvandi Vestmannaeyjabæjar ekki til staðar
Í fréttum í fjölmiðlum hefur komið fram að Vestmannaeyjabær sé meðal þeirra sveitarfélaga sem fengið hafi aðvörun frá Eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga vegna skuldsetningar og/eða slæmrar rekstrarafkomu og er óskað eftir upplýsingum um það hvernig sveitarstjórn hyggist bregðast við fjárhagsvanda sveitarfélagsins. Vanda sem ekki er til staðar. Að gefnu tilefni vill Vestmannaeyjabær því taka af […]
Stórt skref í samgöngubótum

Í fréttatilkynningu sem send var á ritstjórn nú fyrir skömmu kemur fram að Vestmannaeyjabær og Eimskip hafi lokið og undirritað samkomulag um vetraráætlun Herjólfs. Samkomulagið gerir ráð fyrir að Vestmannaeyjabær og Eimskip skipti á milli sín 18 milljón króna kostnaði við fjórðu ferð Herjólfs þannig að Vestmannaeyjabær greiði 12 milljónir en Eimskip 6. Umfram tekjur […]
Búið að ákveða fjórar ferðir Herjólfs yfir vetrartímann

Samkvæmt heimildum Eyjafrétta er búið að ákveða að fjölga ferðum Herjólfs í fjórar ferðir alla daga vikunnar yfir vetrartímann. Samkvæmt vetraráætlun skipsins voru aðeins þrjár ferðir, fimm daga vikunnar en fjórar ferðir á föstudögum og sunnudögum. Vestmannaeyjabær og Eimskip buðust til að greiða fyrir fjórðu ferðina sameiginlega en ekki hafði fengist samþykki fyrir aukaferðinni. Hins […]
Vestmannaeyjar og Hvolsvöllur taka nú við hlutverki Selfoss

Já, það má segja að Landeyjahöfn hafi komið Vestmannaeyjum á kortið svo um munar en um leið hefur það gerst að miðja Suðurlands hefur færst austar. Líka hefur hið pólitíska litróf svæðisins breyst. Langar mig að gera orð Ólafs Eggertssonar að Þorvaldseyri undir Eyjafjölfum að mínum. Þau birtust í viðtali við Ólaf í Fréttum í […]
Viðræður um sameiningu ÍBV og KFR

ÍBV heimsækir í dag vini sína á Suðurlandinu í KFR en liðið hélt af stað frá Eyjum rétt áðan en heldur síðan á Hellu. Þar verða settar upp æfingabúðir með þjálfurum og leikmönnum ÍBV klukkan 14:00 en umsjón með æfingunum hafa þeir Jón Ólafur Daníelsson, þjálfari meistaraflokks kvenna hjá ÍBV og Heimir Hallgrímsson, þjálfari meistaraflokks […]
Styrkir vináttubönd

Ísólfur Gylfi Pálmason, sveitarstjóri Rangárþings eystra, vill treysta og efla samvinnu milli Rangárþings eystra og Vestmannaeyja. Hann segir umferð í gegnum sveitarfélagið hafa aukist verulega síðan Landeyjahöfn var opnuð. (meira…)
ÍBV í úrvalsdeild á ný

ÍBV er komið í úrvalsdeild á ný í kvennaknattspyrnunni en þar var liðið síðast sumarið 2005. Stelpurnar unnu Keflavík í dag 4:1 og samanlagt 8:1 í einvíginu og eru því vel að því komnar að spila meðal þeirra bestu að ári. Sigur ÍBV var aldrei í hættu og í raun var Keflavík aldrei líklegt til […]