ÍBV í úrvalsdeild á ný

ÍBV er komið í úrvalsdeild á ný í kvennaknattspyrnunni en þar var liðið síðast sumarið 2005. Stelpurnar unnu Keflavík í dag 4:1 og samanlagt 8:1 í einvíginu og eru því vel að því komnar að spila meðal þeirra bestu að ári. Sigur ÍBV var aldrei í hættu og í raun var Keflavík aldrei líklegt til […]
Meira trúarbrögð en vísindi
Nýtt kvótaár hófst í dag, 1. september. Í þeim bolfisktegundum sem skipta Eyjamenn hvað mestu máli er lækkun nema í þorskinum sem fer úr 150 þúsund tonnum í 160 þúsund. En þetta er sýnd veiði en ekki gefin því aukningin fer að mestu í strandveiðar. (meira…)
Ingó og Veðurguðirnir í Höllinni á laugardag

Ingó og Veðurguðirnir eru á leiðinni aftur til Eyja. Síðast þegar Guðirnir léku í Eyjum mættu hvorki fleirri né færri 18.000 manns og því ekki seinna vænna en að tryggja sér miða í Herjólf eða flug við fyrsta tækifæri. Mikil samgöngubót hefur orðið til Eyja með tilkomu hinnar nýju Landeyjarhafnar, og er því ekkert til […]
Tryggja stelpurnar sér sæti í úrvalsdeild í kvöld?

Kvennalið ÍBV í knattspyrnu getur í dag tryggt sér sæti í úrvalsdeild kvenna næsta sumar. Liðið tekur á móti Keflavík á Hásteinsvelli klukkan 17:00 í síðari leik liðanna í undanúrslitum 1. deildar. ÍBV vann leikinn í Keflavík nokkuð sannfærandi, 0:4 en sigurvegari einvígisins mætir til leiks í úrvalsdeildinni á næsta ári. Eyjastelpur mega því tapa […]
KFS tapaði annað sinn fyrir Árborg og er úr leik

KFS tapaði í annað sinn í kvöld fyrir Árborg en liðin mættust nú á gervigrasinu á Selfossi. Selfyssingar höfðu betur á Hásteinsvelli um helgina 0:2 og ljóst að róðurinn var ansi erfiður fyrir Eyjamenn. Ekki bætti úr skák að heimamenn komust í 1:0 í fyrri hálfleik og bættu svo við öðru marki sínu strax í […]
Hægt að fylgjast með KFS í beinni á netinu

Eins og áður hefur komið fram leika KFS og Árborg síðari leik sinn í kvöld í 8-liða úrslitum 3. deildar karla. Tvö lið komast upp í 2. deild en fyrri leik liðanna, sem fram fór á Hásteinsvellinum á laugardaginn, lauk með tveggja marka sigri Selfyssinga, 0:2. Fylgst verður með leik liðann í beinni textalýsingu á […]
Albert fékk eins leiks bann

Albert Sævarsson, markvörður ÍBV var dæmdur í eins leiks bann sem hann tekur sjálfkrafa út í næsta leik gegn KR. Leikurinn verður reyndar ekki fyrr en eftir tæpar tvær vikur en Albert var rekinn af velli í sigurleiknum gegn Fylki. Enginn annar leikmaður ÍBV verður í leikbanni gegn KR en Eyjamenn hafa hins vegar þurft […]
Skreppitúr en ekki ferðalag

Sennilega hefur fáa Eyjamenn órað fyrir þeirri breytingu sem orðin er með tilkomu Landeyjahafnar. Sjá má á götum þegar Herjólfur kemur úr sinni fyrstu ferð á morgnana. Allt í einu er Vestmannaeyjabær, sem hefur þótt heldur dauflegur í ágúst, orðinn iðandi af lífi frá því Herjólfur kemur úr sinni fyrstu ferð á morgnana þanngað til […]
�?órarinn Ingi valinn í U-21 árs landsliðið

Eyjólfur Sverrisson, landsliðsþjálfari U-21 árs landsliðsins í knattspyrnu hefur valið Þórarinn Inga Valdimarsson í leikmannahópinn fyrir næsta leik. Ísland leikur afar mikilvægan leik gegn Tékklandi í síðasta leik sínum í riðlakeppni Evrópukeppninnar en Ísland er sem stendur í öðru sæti riðilsins og hefur þegar tryggt sér sæti í umspili fyrir lokakeppnina. Ísland á reyndar enn […]
Seinni leikur KFS í kvöld

KFS og Árborg leika síðari leik sinn í kvöld í úrslitakeppni 3. deildar karla. Leikurinn fer fram á Selfossvelli klukkan 20:00 en Selfyssingar eru í nokkuð góðri stöðu eftir 0:2 sigur á Hásteinsvelli í fyrri leik liðanna. Það þýðir að KFS þarf að skora þrjú mörk til að eiga möguleika á því að komast áfram. […]
Vinnslustöðvarmótið hefst á föstudaginn
Vinnslustöðvarmótið í skák fer fram næstkomandi helgi en nú þegar hafa hátt í tuttugu keppendur skráð sig til leiks. Mótið hefst föstudaginn 3. september og lýkur svo daginn eftir en mótið er haldið í Skáksetrinu að Heiðarvegi í Vestmannaeyjum. Tefldar verða sjö umferðir og verður mótið blandað með at- og kappskákum. Enn er hægt að […]
James Hurst frá ÍBV í ensku úrvalsdeildina

James Hurst hefur verið seldur frá Portsmouth til enska úrvalsdeildarfélagsins WBA. Það var Tómas Ingi Tómasson, eyjamaður og þjálfari HK, sem greindi frá þessu í Pepsi-mörkunum á Stöð 2 Sport í kvöld. Hurst hefur leikið frábærlega með ÍBV í sumar en hann skoraði í kveðjuleiknum gegn Fylki um helgina. (meira…)
�?tivistartími barna breytist 1. september
Lögreglan í Vestmannaeyjum minnir á að 1. september næstkomandi breytast útivistareglur barna og styttist útivistatíminn um tvær klukkustundir. Þannig mega börn 12 ára og yngri, ekki vera á almannafæri eftir klukkan 20:00 nema í fylgd með fullorðnum. Börn á aldrinum 13 til 16 ára skulu ekki vera á almannafæri eftir klukkan 22:00, svo lengi sem […]
Mawejje valinn í úganska landsliðið

Tonny Mawejje, leikmaður ÍBV hefur verið valinn í úganska landsliðið sem leikur gegn Angóla 4. september næstkomandi í Afríkukeppninni. Næsti leikur ÍBV er ekki fyrr en 12. september þegar ÍBV tekur á móti KR og ætti Mawejje því ekki að missa af leiknum mikilvæga. Þess má til gamans geta að Úganda er í 69. sæti […]
Sæsteinsuga flutt á Fiska- og náttúrugripasafnið í Eyjum

Á föstudaginn var flutt til Eyja Sæsteinsuga til að koma fyrir á Fiska- og náttúrugripasafni Vestmannaeyja. Sæsteinsugan fannst á hundraðasta hvalinum sem Hvalur 8 RE 388 veiðir í ár. Sæsteinsugur hanga oftar en ekki á hákörlum og hvölum en hafa einnig fundist á háhyrningum. Fiskurinn er sníkjudýr sem sýgur blóð úr fórnarlömbum sínum og lifir […]
Bestu stuðningsmennirnir?

Það er mikil stemmning í fótboltanum í Eyjum um þessar mundir, sérstaklega hjá karlaliði ÍBV sem er efst í Pepsídeildinni. Oft fylgir góðu gengi, aukin stemmning en í síðustu tveimur útileikjum ÍBV, hafa stuðningsmenn liðsins verið fleiri hundruð talsins og stemmningin eftir því. Jón Óskar Þórhallsson er einn þeirra sem mætir á alla leiki og […]
Fyrsta pysjan fundin

Fyrsta lundapysjan kom í leitirnar í gær og var vigtuð í Fiska- og náttúrugripasafni Vestmannaeyja. Afkoma lundans hefur verið slæmt undanfarin ár en allt bendir til þess að afkoman sé í sögulegu lágmarki. Erpur Snær Hansen, sviðsstjóri vistfræðisviðs Náttúrustofu Suðurlands sagði í viðtali í Fréttum á dögunum að allar lundaholur sem fylgst hefði verið með, […]
Berjumst til enda um efsta sætið

„Það var ætlunin að koma rólega í þennan leik enda hafa Fylkismenn skorað átta mörk á fyrstu fimm eða sex mínútum leikja sinna. Tölfræðin segir manni að fara varlega í leiki á móti Fylki,“ sagði Heimir Hallgrímsson, þjálfari ÍBV, eftir sigurinn í Árbænum í gær þar sem hans menn lentu undir og voru manni færri […]
3ja stiga uppskera í Árbænum

ÍBV vann verðskuldaðan sigur á Fylkismönnum í Árbænum í kvöld. Leikurinn var þó í jafnvægi í fyrri hálfleik. Afdrifaríkt atvik atvik varð eftir 30 mínútna leik, þegar Eiður Aron missti einn Fylkismanninn inn fyrir sig. Albert í markinu greip til örþrifaráða og fékk dæmt á sig víti og fékk einnig að líta rauða spjaldið, sem […]
KFS í vondum málum

Staða KFS er ekki góð eftir fyrri leik liðsins gegn Árborg í fyrstu umferð 3. deildar. Leikur liðanna fór fram á Hásteinsvellinum í Eyjum við frábærar aðstæður og leikurinn var hin ágætasta skemmtun. Árborg náði hins vegar að nýta tvö af sínum færum á meðan KFS nýtti ekkert og lokatölur því 0:2 fyrir Árborg. Liðin […]