3ja stiga uppskera í Árbænum
ÍBV vann verðskuldaðan sigur á Fylkismönnum í Árbænum í kvöld. Leikurinn var þó í jafnvægi í fyrri hálfleik. Afdrifaríkt atvik atvik varð eftir 30 mínútna leik, þegar Eiður Aron missti einn Fylkismanninn inn fyrir sig. Albert í markinu greip til örþrifaráða og fékk dæmt á sig víti og fékk einnig að líta rauða spjaldið, sem þýðir leikbann hjá honum gegn KR 12. sept. n.k. Elías Fannar fór fingurbrotinn í markið og Denis Sytnik fór útaf í staðinn. Fylkismenn skoruðu úr vítinu, 1-0. En fengu ekki lengi að njóta því á lokamínútu hálfleiksins jafnaði leikinn, sá mikli nagli, Þórarinn Ingi 1-1. Hann er einn alduglegasti leikmaðurinn í Pepsi deildinni, alltaf á fullu og var sárt saknað leiknum gegn Grindavík um síðustu helgi.

Nýjustu fréttir

Þór flutti sjúkling til Landeyjahafnar á hæsta forgangi
Setja frest á viðræður um sorpþjónustu
Glódís Dúna valin í lokahóp U17 fyrir undankeppni EM
Konunglegt drama í Sagnheimum
Neistinn úr Eyjum skilar árangri í Kópavogi 
Skáknámskeið fyrir byrjendur hefst í kvöld
Dýpkunin þjónar tveimur hafnarverkefnum – myndband
Látinna minnst í Landakirkju
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.