Ingó og Veðurguðirnir eru á leiðinni aftur til Eyja. Síðast þegar Guðirnir léku í Eyjum mættu hvorki fleirri né færri 18.000 manns og því ekki seinna vænna en að tryggja sér miða í Herjólf eða flug við fyrsta tækifæri. Mikil samgöngubót hefur orðið til Eyja með tilkomu hinnar nýju Landeyjarhafnar, og er því ekkert til fyrirstöðu að skella sér á ball í Vestmannaeyjum og upplifa hvernig Eyjamenn skemmta sér á böllum.