KFS í vondum málum

Staða KFS er ekki góð eftir fyrri leik liðsins gegn Árborg í fyrstu umferð 3. deildar. Leikur liðanna fór fram á Hásteinsvellinum í Eyjum við frábærar aðstæður og leikurinn var hin ágætasta skemmtun. Árborg náði hins vegar að nýta tvö af sínum færum á meðan KFS nýtti ekkert og lokatölur því 0:2 fyrir Árborg. Liðin […]
Eyjastelpur komnar með aðra löppina í úrvalsdeild

Kvennalið ÍBV er komið með aðra löppina upp í úrvalsdeild eftir glæsilegan 0:4 sigur á Keflavík í dag. Leikurinn var sá fyrri af tveimur í undanúrslitum 1. deildar en sigurvegari einvígisins vinnur sér sæti í úrvalsdeild næsta sumar. Liðin mætast á nýjan leik næsta miðvikudag á Hásteinsvelli. (meira…)
�?sispennandi lokasprettur framundan

Nú er baráttan um Íslandsmeistaratitilinn orðin fjögurra liða keppni. KR og Breiðablik eru nú jöfn í öðru sæti, tveimur stigum á eftir ÍBV sem er í því efsta með 33 stig. Skammt undan eru svo sjálfir Íslandsmeistararnir í FH með 29 stig. KR og ÍBV hafa það í hendi sér hvort þau vinna Íslandsmótið eða […]
Móbergshellurnar fluttar til baka

Grjótnám Árna Johnsen á dögunum vakti talsverða athygli en hafði þingmaðurinn sótt nokkrar móbergshellur úr barðinu ofan við Höfðavík við Stórhöfða og fært heim að heimili sínu, Höfðabóli. Í morgun voru svo stórtækar vinnuvélar að störfum við heimili Árna þar sem hellurnar voru fjarlægðar en fyrirhugað er að koma þeim fyrir á sama stað aftur. […]
KFS tekur á móti Árborg á morgun

Á morgun, laugardag mun KFS taka á móti Árborg í fyrstu umferð úrslitakeppni 3. deildar karla. KFS endaði í öðru sæti í B-riðli á meðan Árborg vann A-riðil mjög örugglega, tapaði aðeins einum leik í sumar, gerði eitt jafntefli og má því búast við erfiðum róðri hjá Eyjamönnum. En þeir þekkja það manna best að […]
Fulltrúi samgönguráðuneytisins mætti ekki

Eins og Eyjafréttir.is greindu frá á miðvikudaginn liggur ekki enn fyrir hvort farnar verða þrjár eða fjórar ferðir á dag í vetraráætlun Herjólfs. Auglýst vetraráætlun gerir ráð fyrir því að Herjólfur sigli einungis þrjár ferðir á dag, alla virka daga sem og á laugardögum. Í umfjöllun á miðvikudaginn sagðist Elliði Vignisson bæjarstjóri ítrekað hafa óskað […]
�?tlum okkur upp í úrvalsdeild

Eins og áður hefur komið fram, leikur kvennalið ÍBV gegn Keflavík á morgun, laugardag í undanúrslitum 1. deildar kvenna. Leikið verður heima og heiman og er fyrri leikur liðanna í Keflavík en liðin mætast svo aftur í Eyjum á miðvikudag. Í hinni viðureigninni eigast við Þróttur og Selfoss og fara leikir þeirra fram á sama […]
Múrbúðin opnar í Eyjum

Múrbúðin, sem rekur byggingavöruverslanir í Reykjavík, Reykjanesbæ, Akureyri og Húsavík, opnar verslun í Vestmannaeyjum á næstu vikum. Þar verða í boði allar almennar byggingavörur og eigandinn óttast ekki samkeppni við verslanir sem fyrir eru. Múrbúðin verður til húsa að Flötum 29 þar sem Geisli var áður. (meira…)
Hvetja Eyjamenn til að fjölmenna til Keflavíkur

Kvennalið ÍBV leikur mikilvægasta leik sinn til þessa þegar stelpurnar sækja Keflavík heim í umspili um laust sæti í úrvalsdeild á laugardag. Leikið er heima og heima og er þetta fyrri leikur liðanna. Búast má við jöfnum og skemmtilegum leik en leikurinn hefst klukkan 14:00. Forráðamenn ÍBV óska eftir því að stuðningsmenn liðsins fjölmenni til […]
Með smyril í fóstri

Jarl Sigurgeirsson hefur hýst smyril sem hann keyrði fram á í Grímsnesinu fyrir rúmri viku síðan. Hann er meiddur á væng og vonar Jarl að meiðslin séu ekki alvarleg og hægt verði að sleppa smyrlinum einhvern næstu daga. „Ég var að keyra í Grímsnesinu þegar ég sá smyrilinn standa á veginum. Hann var svolítið vankaður […]
Gandí bilaður

Jón Vídalín VE var að draga Gandí VE til hafnar í Hafnarfirði í gær, miðvikdag en tveir stimplar fóru í vél skipsins þegar það var við makrílveiðar austan við land. „Það verður farið yfir vélarnar og vonandi kemst skipið á sjó aftur um miðjan september,“ sagði Sigureir Brynjar Kristgeirsson, framkvæmdastjóri Vinnslustöðvarinnar. (meira…)
Stendur ekki á Eimskip

Guðmundur Nikulásson, framkvæmdastjóri Eimskip innanlands sagði í samtali við Fréttir að hann sæi ekki neitt því til fyrirstöðu að bæta fjórðu ferðinni inn í vetraráætlun Herjólfs, frá 1. október til 30. apríl. „Það er reyndar ekki Eimskip sem ákveður það heldur Vegagerðin, sem aftur heyrir undir samgönguráðuneytið. Allir aðilar sem að þessu koma munu funda […]
Margrét Lára með tvö í stórsigri

Margrét Lára Viðarsdóttir skoraði tvö mörk í stórsigri íslenska kvennalandsliðsins í knattspyrnu en liðið lék gegn Eistlandi ytra í dag. Lokatölur urðu 0:5 Íslandi í vil en þetta var síðasti leikur liðsins í undankeppni HM. Ísland hefur lokið leik, liðið endaði í öðru sæti riðilsins á eftir Frökkum sem fara í umspil um fjögur laus […]
�?rjár eða fjórar ferðir í vetur?

Enn liggur ekki fyrir hvort ferðir Herjólfs verði þrjár eða fjórar yfir vetrartímann. Samkvæmt núverandi áætlun er gert ráð fyrir fjórum ferðum alla daga vikunnar til 1. október. Þá verða þrjár ferðir mánudaga til fimmtudags og laugardag en fjórar ferðir föstudag og sunnudag. Bæjaryfirvöld og Eimskip gerðu samkomulag þess efnis að greiða fyrir aukaferðir, þannig […]
Leitað að fulltrúum Vestmannaeyjabæjar fyrir �?tsvar

Nú er hafin leit að fulltrúum Vestmannaeyja fyrir spurningaþáttinn Útsvar sem verður á dagskrá Ríkissjónvarpsins næsta vetur. Þeir sem áhuga hafa á þátttöku eða þekkja til ákjósanlegra fulltrúa eru beðnir að hafa samband sem allra fyrst og eigi síðar en 31. ágúst í síma 488 2000 eða á postur@vestmannaeyjar.is. (meira…)
�?murleg aðkoma að spröngunni

Lesandi Eyjafrétta sendi inn þessar myndir en þær sýna aðkomuna að spröngunni í gærmorgun. Einhverjir óprúttnir einstaklingar höfðu gert sér það að leik að velta um bekk og hengt upplýsingaskilti í sjálfa sprönguna. Ferðamenn sem komu að spröngunni og vildu prófa þessa fyrrum þjóðaríþrótt Eyjamanna störðu furðulostnir á skemmdaverkin. (meira…)
Ferjan annar ekki eftirspurn og bæjaryfirvöld óska eftir aukaferð

Bæjaryfirvöld í Vestmannaeyjum hafa óskað eftir því að bætt verði við aukaferðum Herjólfs næstkomandi laugardag. Sprenging hefur orðið í fólksflutningum milli lands og Eyja en Herjólfur hefur frá 21. júlí síðastliðnum, flutt yfir 60 þúsund farþega. Til samanburðar má geta þess að allt síðasta ár flutti Herjólfur 127 þúsund farþega. Nú þegar er orðið fullt […]
Leikfélagið fagnar 100 ára afmæli sínu

Leikfélag Vestmannaeyja býr sig nú undir vetrarstarfið en um þessar mundir fagnar Leikfélagið 100 ára afmæli sínu. Af því tilefni verða settar upp stórbrotnar og mikilfenglegar sýningar á þessu leikári, eins og segir í fréttatilkynningu frá Leikfélaginu. Vetrarstarfið hefst hins vegar með leiklistarnámskeiði sem byrja eftir helgi en Eyjamaðurinn Haraldur Ari Karlsson mun leikstýra hjá […]
Eyjamenn áfram á toppnum

Gera má ráð fyrir að Eyjamenn hugsi hlýlega til Andra Marteinssonar og lærisveina hans í Haukum eftir úrslit kvöldsins. Hið ótrúlega gerðist, neðsta liðið, Haukar lagði Breiðablik að velli og það á sjálfum Kópavogsvellinum en þetta er fyrsti sigurleikur Hauka í sumar. Þetta eru klárlega óvæntustu úrslit það sem af er sumars og benda ótvírætt […]
Engar pysjur en fýlsunganum bjargað

Undanfarna áratugi hafa börn í Vestmannaeyjum tekið þátt í viðamiklum björgunarstörfum á þessum árstíma þegar lundapysjur hafa látið blekkjast af ljósum bæjarins og lent í sjálfheldu í Vestmannaeyjabæ. Nú er afkoma lundastofnsins hins vegar í sögulegu lágmarki og ekki útlit fyrir að pysjurnar láti sjá sig, Eyjakrökkum til mikillar mæðu. En krakkarnir deyja þó ekki […]