Engar pysjur en fýlsunganum bjargað

Undanfarna áratugi hafa börn í Vestmannaeyjum tekið þátt í viðamiklum björgunarstörfum á þessum árstíma þegar lundapysjur hafa látið blekkjast af ljósum bæjarins og lent í sjálfheldu í Vestmannaeyjabæ. Nú er afkoma lundastofnsins hins vegar í sögulegu lágmarki og ekki útlit fyrir að pysjurnar láti sjá sig, Eyjakrökkum til mikillar mæðu. En krakkarnir deyja þó ekki […]

Hvetja ökumenn til að fara varlega, sérstaklega í kringum skólana

Síðustu tvær vikur hafa verið með rólegra móti hjá lögreglunni í Vestmannaeyjum og engin alvarleg mál ratað inn á borð lögreglunnar. Skemmtanahald helgarinnar fór ágætlega fram og engin teljandi vandræði komu upp við skemmtistaði bæjarins. Nú eru skólarnir að hefja vetrastarf sitt en lögregla hvetur ökumenn til að fara varlega, sérstaklega í kringum skóla bæjarins. […]

Snjór ruddur sjö daga vikunnar

Nú bíður vetur konungur handan við hornið og vetrarstarf víða að fara af stað. Ný samgönguleið við Landeyjahöfn hefur sannað gildi sitt yfir sumartímann og spennandi að sjá hvernig ástandið verður yfir vetrartímann. Eitt liggur þó ljóst fyrir, Eyjamenn og gestir þeirra þurfa ekki að hafa áhyggjur yfir því að vegurinn frá Landeyjahöfn snjói í […]

Grunnskóli Vestmannaeyja settur í dag

Í dag, mánudaginn 23. ágúst verður Grunnskóla Vestmannaeyja settur en kennsla hefst svo samkvæmt stundaskrá miðvikudaginn 25. ágúst. Ástæða þess að skólinn byrjar ekki á morgun, þriðjudag er sú að kennarar munu sitja námskeið fyrir komandi vetur. Nánari tímasetningar á skólasetningu má sjá hér að neðan. (meira…)

Lögðum okkur ekki nægilega mikið fram

„Þetta sýnir það bara ef menn leggja sig ekki fram og gera ekki eins og lagt er upp með fyrir leikinn, þá vinnur maður ekki,“ sagði Andri Ólafsson, fyrirliði ÍBV ósáttur eftir tap gegn Grindavík í Eyjum í kvöld. Hann taldi ekki að veðrið hefði haft áhrif á leik liðsins. „Nei ef það ætti að […]

Grindvíkingar fóru með þrjú stig frá Eyjum

Grindvíkingar ætla að reynast örlagavaldur í toppbaráttu Íslandsmótsins. Suðurnesjaliðið hefur nú lagt að velli Breiðablik, FH og í kvöld bættu þeir um betur og lögðu toppliðið að velli og það á sjálfum Hásteinsvellinum. Aðstæður voru vægast sagt slæmar í kvöld, sterkur vindur stóð beint á annað markið og lék allt of stórt hlutverk í leiknum. […]

Eyjamenn taka á móti Grindvíkingum í dag

Karlalið ÍBV leikur í dag afar mikilvægan leik gegn Grindvíkingum í Pepsídeild karla. Leikurinn fer fram á Hásteinsvelli og hefst klukkan 18:00 en búast má við erfiðum leik þótt staða liðanna í deildinni segi annað. Þannig hafa Grindvíkingar ekki tapað í síðustu sex leikjum sínum, hafa gert fjögur jafntefli og unnið tvo leiki, m.a. Íslandsmeistara […]

Sæbjörg Logadóttir þriðja í Reykjavíkurmarþoninu

Sæbjörg Logadóttir náði hreint frábærum árangri í Reykjavíkurmaraþoninu í dag. Sæbjörg hljóp heilt maraþon, 42 km og varð í þriðja sæti á tímanum 3:16:29. Fyrst varð Rannveig Oddsdóttir á 2:57:33 og önnur varð hin þýska Barbara Dieterle á 3:14:17. (meira…)

KFS í úrslit 3. deildar

KFS tryggði sér sæti í úrslitum 3. deildar með fræknum sigri á Ægi í Þorlákshöfn í dag. KFS dugði ekkert minna en sigur en Ægismenn höfðu ekki tapað heimaleik í sumar. Auk þess hafði KFS ekki gert neinar rósir í Þorlákshöfn á undanförnum árum þannig að sagan var svo sem ekki á bandi Eyjamanna. En […]

Eyjastúlkur burstuðu Selfoss í dag

Kvennalið ÍBV gerði sér lítið fyrir og burstaði Selfoss þegar liðin mættust á Hásteinsvelli í dag. Leikurinn var úrslitaleikur um efsta sæti B-riðils 1. deildar en bæði lið voru örugg í úrslitakeppnina. Eyjastúlkur unnu 6:0 en staðan í hálfleik var 3:0. ÍBV endaði því í efsta sæti B-riðils og mætir Keflavík í undanúrslitum um lausu […]

�?rslitaleikir hjá Eyjaliðunum

Það verður í nógu að snúast hjá knattspyrnufólki Eyjanna í dag því tvö af þremur meistaraflokksliðum leika í úrslitaleikjum gegn nágrönnum sínum af Suðurlandi. Kvennalið ÍBV tekur á móti Selfossi í síðustu umferð B-riðils 1. deildar, bæði lið eru örugg í úrslitakeppni um sæti í úrvalsdeild en sigur tryggir ÍBV efsta sæti riðilsins. Jafntefli dugar […]

ÍBV burstaði HK

Bæði karla- og kvennalið ÍBV léku í kvöld sína fyrstu æfingaleiki en leita þarf langt aftur í tímann að fyrstu leikirnir séu leiknir í Eyjum. Með nýjum samgöngumáta við Eyjarnar eru önnur lið hins vegar farin að leitast eftir því að koma til Eyja en karlalið HK og kvennalið Fylkis léku í kvöld gegn ÍBV. […]

Flottir rammar og fegurðin rosaleg

Tökur á kvikmyndinni Djúpinu eru í fullum gangi og hafa farið fram víðs vegar um bæinn frá því byrjað var að mynda þann 9. ágúst. Á mánudag var myndað við hús á Hásteinsvegi og bílar og gangandi vegfarendur sýndu fulla tillitssemi og allt gekk átaka­laust. Það var skemmtilegt að fylgjast með því hvernig sama senan […]

Verði fallegur minnis­varði um sjómenn

Ólafur Darri Ólafsson fer með aðalhlutverið í Djúpinu. Hann hefur leikið í allmörgum kvikmyndum og má þar nefna myndir eins og Börn, Foreldra, Brúðgumann, Reykjavík-Rotterdam og Fangavaktina. Er hann kominn í hóp okkar bestu leikara og hefur náð að skapa nokkrar mjög eftirminnilegar persónur. Djúpið byggir á raunverulegum atburðum, Heimaeyjargosinu 1973, Helliseyjarslysinu og afreki Guðlaugs […]

Gunnar Berg með ÍBV næsta vetur?

Í Morgunblaðinu í dag er sagt frá vandræðum Íslandsmeistara Hauka í handbolta en Eyjamaðurinn Gunnar Berg Viktorsson, besti varnarmaður úrvalsdeildarinnar í fyrra, er meiddur. Gunnar Bert er frá vegna meiðsla í mjöðm og mun ekki spila með Haukum fyrr en eftir áramót að því að talið er. Annað nokkuð merkilegt kemur fram í fréttinni en […]

Margir hæfir hafa sótt um

Vinnslustöðin auglýsti eftir fólki í fimm stöður hjá fyrirtækinu um miðjan júlí en þá var auglýst eftir sviðsstjóra bolfisks, sviðsstjóra uppsjávarfisks, rekstarstjóra, sölu­manni fersks og frosins bolfisks og verkstjóra í fiskvinnslu. Í síðustu viku auglýstu fimm fyrirtæki eftir starfsfólki, mörg hver í þjónustugeiranum sem þýðir að fjölgun ferðamanna kallar á fleiri hendur og skapar atvinnutækifæri. […]

Algjört hrun í varpi lundans

Erpur Snær Hansen, sviðsstjóri vistfræðisviðs Náttúrustofu Suðurlands segir algjört hrun í varpi lundans í ár. Lundinn hafi afrækt eggin þann­ig að innan við 20% pysja klaktist úr eggjunum. Afkoma þeirra fáu sem klöktust hefur einnig verið mjög léleg þannig að lítið bætist við stofninn í ár, minna en undanfarin ár. Svipaða sögu er að segja […]

�?órarinn Ingi í banni í næsta leik

Þórarinn Ingi Valdimarsson verður í leikbanni þegar ÍBV tekur á móti Grindvíkingum næstkomandi sunnudag. Þórarinn Ingi fékk gult spjald í leiknum gegn Breiðabliki og er því kominn með fjögur slík í sumar sem þýðir eins leiks bann. Leikmaðurinn var einn af betri mönnum ÍBV gegn Blikum og er einn af lykilmönnum liðsins. (meira…)

Fleiri í Landakirkju eftir að Landeyjahöfn opnaði

Fjöldi ferðamanna hefur margfaldast í Eyjum eftir að Landeyjahöfn opnaði en farþegar um höfnina nýju eru orðnir fleiri en 50 þúsund talsins frá því 21. júlí. Verslunareigendur og aðrir þjónustuaðilar í Vestmannaeyjum hafa ekki farið varhluta af þessu og á góðviðrisdögum hefur verið mikið líf í miðbæ Vestmannaeyja. Og samkvæmt heimasíðu Landakirkju, þá eru ferðamenn […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.