Dregið úr þjónustu miðað við áætlanir

Elliði Vignisson, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum, segir að gríðarlegar breytingar hafi verið gerðar á siglingum Herjólfs, sé miðað við það sem átti að verða 2008. Gert hafi verið ráð fyrir því að sigldar yrðu tæplega fimm ferðir að meðaltali á dag, alls 1.800 ferðir á ári. Þetta hafi verið skorið niður í 1.360 ferðir. (meira…)

Fjórar léku með U16 ára landsliðinu

Fjórar Eyjastúlkur tóku þátt í æfingaleikjum með U16 ára landsliði kvenna í handbolta um helgina. Þetta voru þær Aðalheiður Pétursdóttir, Drífa Þorvaldsdóttir, Sigríður Lára Garðarsdóttir og Berglind Dúna Sigurðardóttir. Leikið var gegn norsku félagsliði en getumunurinn var mikill. (meira…)

Eyjastúlkur fögnuðu sigri í gær

Kvennalið ÍBV lék einnig í gær í 1. deild kvenna þegar stelpurnar sóttu ÍR heim. Þetta er næst síðasti leikur liðanna í riðlakeppninni en ÍBV er öruggt í úrslitakeppni um laust sæti í úrvalsdeild. Eyjastelpur voru ekki í vandræðum með ÍR-inga og unnu sex marka sigur, 0:6. Næsta laugardag leikur ÍBV sinn síðasta leik þegar […]

Ekki sáttur við úrslitin

Leikmenn og stuðningsmenn ÍBV voru samferða á heimleiðinni með Herjólfi nú undir miðnætti en blaðamaður Eyjafrétta, settist niður með Andra Ólafssyni á heimstíminu og fór yfir leikinn gegn Breiðabliki. Andri var ekki sáttur við úrslitin og vildi sigur. Ég er ekki sáttur enda er stefnan sett á sigur í hverjum einasta leik. Við hefðum getað […]

Toppsætið í Pepsídeildinni ennþá í Eyjum

Stórmeistarajafntefli 1-1 varð niðurstaðan í leik ÍBV og Breiðabliks i Pepsí deildinni í kvöld. Baráttan var um toppsætið, sem ÍBV hafði, en Breiðablik hefði getað tekið með sigri. – Af spádómum knattspyrnuspekinga í bloggheimum veðjuðu flestir á sigur Breiðabliks, þá miklu markaskorara sem þar eru á hverju strái og hafa skorað flest mörkin í sumar. […]

Ellefu Eyjamenn styrkja Íþróttafélagið �?gi í Reykjavíkurmaraþoninu

Laugardaginn 21. ágúst næstkomandi fer Reykjavíkurmaraþonið fram. Hlauparar geta nú skráð sig hjá Íslandsbanka og hlaupið til styrktar góðu málefni. Ellefu hlauparar frá Eyjum hafa þegar skráð sig og styrkja um leið Íþróttafélagið Ægi, sem er íþróttafélag fatlaðra í Vestmannaeyjum. Hlaupararnir safna áheitum en auk þess greiðir Íslandsbanki hverju hlaupara 500 krónur fyrir hvern kílómetra […]

50 þúsundasti farþeginn farþeginn fékk blómvönd

Eimskip hóf siglingar Herjólfs um Landeyjahöfn þann 21. júlí síðastliðinn og má segja að stanslaus umferð hafi verið þar síðan. Farþegar ferjunnar frá nýju höfninni eru nú komnir yfir 50 þúsundin og reyndist það vera Eyjamaðurinn Guðlaugur Sigurgeirsson, sem býr í Reykjavík sem varð 50 þúsundasti farþeginn þegar hann sigldi til Vestmannaeyja á föstudaginn. (meira…)

Mikilvægast að vera stöðugur í bítinu

Trommarar hafa ávallt verið álitnir sér þjóðflokkur innan tónlistargeirans. Hvort það sé vegna manngerðarinnar sem velst í hlutverk trommarans eða vegna hljóðfærisins skal ósagt látið. En trommarar halda úti vefsíðu og þar er valinn trommuleikari hverrar viku. Trommuleikari vikunnar nú er sjálfur Birgir Nielsen, sem kennir við Tónlistarskólann í Vestmannaeyjum. Hægt er að sjá viðtal […]

Erum svo sannarlega klárir í slaginn

Andri Ólafsson fyrirliði ÍBV segir að Eyjamenn séu klárir í slaginn og muni berjast til síðasta manns en sannkallaður stórleikur fer fram á Kópavogsvelli í kvöld þegar tvö efstu lið Pepsi-deildarinnar, Breiðablik og ÍBV, leiða saman hesta sína. Eyjamenn tróna á toppi deildarinnar. Þeir hafa 32 stig, Breiðablik er í öðru sæti með 30 og […]

Hitað upp á Spot fyrir kvöldið

Aðdáendur ÍBV og Eyjamenn á höfuðborgarsvæðinu og víðar eru hvattir að mæta á skemmistaðinn Spot Kópavogi og hita upp fyrir leik kvöldsins. Sannkallaður stórleikur enda toppliðin ÍBV og Breiðablik að mætast á Kópvogsvellinum klukkan 19.15. Stemmingin á útileikunum í sumar hefur verið frábær, en núna ætlum við að slá öllum við og mynda frábæru stemmningu […]

�??�?g er með þeim heppnari á jörðinni�??

Valdimar Gíslason má teljast ótrúlega heppinn að sleppa án teljandi meiðsla eftir að tjaldhæll stakkst í ennið á honum. Einungis munaði millímetra að tjaldhællinn fór í gegnum höfuðkúpuna og segist hann heppinn að hafa ekki orðið blindur eða hlotið heilaskaða. Óhappið varð á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum, síðdegis á sunnudeginum. Valdimar segir við Pressuna að hann […]

Toppslagur í Kópavogi í kvöld

Í kvöld verður einn stærsti leikur Íslandsmóts karla í knattspyrnu þegar topplið ÍBV sækir Breiðablik heim í Kópavoginn en Blikar eru í öðru sæti, aðeins tveimur stigum á eftir ÍBV. Leikurinn er báðum liðum afar mikilvægur en Blikarnir eru erfiðir heim að sækja, hafa unnið síðustu þrjá heimaleiki sína með markatölurnni 11:1. ÍBV vann leik […]

GV endaði í fimmta sæti

Um helgina fór fram sveitakeppni í golfi en Golfklúbbur Vestmannaeyja tefldi fram sveit í 1. deild í karlaflokki. Sveitakeppnin fer þannig fram að í hverri deild eru átta sveitir sem er skipt í tvo riðla. Tvær efstu sveitirnar fara í undanúrslit en tvær neðstu í umspil um fall í 2. deild. GV endaði í þriðja […]

Auðveldur sigur gegn Afríku

KFS hafði betur gegn Afríku í B-riðli 3. deildar í dag en leikur liðanna fór fram í mikilli rigningu á Þórsvellinum. Lokatölur urðu 6:0 eftir að staðan í hálfleik var 2:0. KFS er nú í öðru sæti B-riðils en tvö efstu lið riðilsins komast í úrslitakeppni deildarinnar. Berserkir hafa þegar tryggt sér efsta sætið en […]

Margrét Lára með á laugardaginn?

Margrét Lára Viðarsdóttir lék allar 90 mínúturnar þegar lið hennar Kristianstad tapaði 3:0 gegn Tyresö í sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag. Það má því reikna með að hún geti spilað þegar Ísland mætir Frakklandi í undankeppni HM á laugardaginn. Margrét Lára hefur átt við þrálát meiðsli að stríða en leikurinn í dag átti að […]

Mikilvægur leikur hjá KFS í dag

KFS leikur síðasta heimaleik sinn í B-riðli 3. deildar í dag þegar liðið tekur á móti Afríku. Leikurinn hefst klukkan 14.00 og fer fram á Helgafellsvellinum. Eyjamenn eiga enn ágæta möguleika á að komast í úrslitakeppnina. Sá möguleiki felst í því að vinna tvo síðustu leikina, það dugar KFS til að tryggja sér annað sæti […]

Hef alltaf verið hrifin af ráðgátum

Nadia Rannveig Ásgeirsdóttir, var tveggja ára gömul þegar hún fluttist til Vestmanneyja ásamt foreldrum sínum en hún er dóttir Ásgeirs Karls­sonar og Viktoriu Ayn Petty­piece. Nadia ólst upp við mikið frjálsræði í faðmi Eyjanna og lauk stúdentsprófi frá Framhaldsskól­anum í Vestmannaeyjum árið 2001. Eftir það ákvað hún að hleypa heimdraganum og sækja sér frekari menntun […]

Traustur og góður bátur og happafley

Stormur Breki, báturinn sem nota á í kvikmyndinni Djúpið, sem nú er verið að taka upp í Eyjum, var upphaflega smíðaður fyrir útgerðarmenn í Vestmannaeyjum. Kom hann nýr til heimahafnar í Vest­mannaeyjum í janúar 1958. Hann hét Reynir VE 15 og hélt hann nafninu lengst af. Fréttir ræddu við Engilbert Sig­urðsson, vélstjóra og síðar vörubílstjóra […]

�?akklátur fyrir hvað gekk þó vel

Mikið hefur mætt á starfsfólki Herjólfs allt frá því siglingar hófust í Landeyjahöfn enda flutti skipið um tíu þúsund farþega til og frá Eyjum í kringum þjóðhátíð. Mikið var að gera vikuna áður og fullbókað fyrir bíla vikuna eftir þjóðhátíð. Er ekkert lát á flutningunum. Guðmundur Nikulásson, hjá Eimskip innanlands, segir afgreiðslu á Herjólfi á […]

Bifreið rann af stað og endaði á grindverki

Bifreið sem stóð við Gerðisbraut, rann af stað og endaði á girðingu við hús á Helgafellsbraut. Engin slys urðu á fólki en skemmdir urðu á bílnum og grindverkinu. Helgafellsbrautin er afar brött og ef bifreiðin hefði farið lengra niður götuna, hefði hún fljótt náð miklum hraða og skapað enn meiri hættu. Það var því lán […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.