Vélarvana tuðra dregin í land

Um klukkan hálf níu í kvöld var Björgunarfélag Vestmannaeyja vegna vélarvana tuðru sem rak vélarvana stutt frá bjarginu í Stórhöfða. Þrír menn voru um borð en önnur tuðra frá Ribsafari var fengin til aðstoðar og kom fljótlega til aðstoðar eftir útkallið. Þrátt fyrir það tók rúma klukkustund að draga hinn vélarvana bát í land en […]
Gaman að geta veitt þessa þjónustu

Þeir eru ýmsir möguleikarnir sem opnast með tilkomu Landeyjahafnar. Í síðustu viku mætti minkabóndi úr Þykkvabænum í loðnubræðslu Vinnslustöðvarinnar og keypti þrjú tonn af lýsi. „Hann hafði áður keypt lýsi á Akranesi en nú er styttra fyrir hann að koma út í Eyjar,“ sagði Sigurður Friðbjörnsson, verksmiðjustjóri. (meira…)
Aukaferð Herjólfs vegna leiks ÍBV og Breiðabliks

Næstkomandi mánudag verður stórleikur í Pepsídeild karla þegar efsta lið deildarinnar, ÍBV sækir Breiðablik heim en Blikar eru í öðru sæti, tveimur stigum á eftir ÍBV. Framhald Íslandsmótsins ræðst á leiknum, sigur ÍBV kemur þeim í ökumannssætið og jafntefli í raun og veru líka. Tap þýðir hins vegar að Breiðablik nær efsta sætinu af ÍBV. […]
Gosnóttin endurgerð fyrir Djúpið

Tökur á kvikmyndinni Djúpið eru hafnar í Vestmannaeyjum en Baltasar Kormákur leikstýrir myndinni, sem er að einhverju leyti byggð á Helliseyjarslysinu 1984, auk þess sem Heimaeyjargosið 1973 kemur við sögu. Myndin er byggð á samnefndu leikriti Jóns Atla Jónassonar. Tökur hófust á mánudaginn og hafa farið fram víða í miðbænum. M.a. var á heitu sumarkvöldi […]
Gengur mjög vel

Flugfélagið Ernir hóf áætlunarflug milli Reykjavíkur og Vestmannaeyja þann 4. ágúst en þá hætti Flugfélag Íslands að fljúga til Eyja. Hannes Sigurðsson, umboðsmaður Ernis í Vestmannaeyjum, segir að nýja félaginu hafi verið vel tekið og nóg að flytja. (meira…)
Fullur bær af ferðamönnum í dag

Það var mikið um að vera í dag í Vestmannaeyjabæ en strax í morgun fóru að flykkjast í bæinn ferðamenn. Eyjamenn eru orðnir vanir slíku eftir að Herjólfur hóf siglingar í Landeyjahöfn enda mikið af ferðamönnum sem hafa skotist í dagsferðir til Eyja. Hins vegar bættust í dag við tvö skemmtiferðaskip, annars vegar portúgalska skipið […]
Rástímaskráning í golfinu
Á þriðjudaginn var tekin í notkun svonefnd rástímaskráning hjá Golfklúbbi Vestmannaeyja. Allmargir golfklúbbar hafa tekið upp rástímaskráningu, aðallega klúbbarnir á höfuðborgarsvæðinu þar sem ásókn er mikil. GV er tuttugasti klúbburinn sem tekur upp slíka skráningu og Elsa Valgeirsdóttir, framkvæmdastjóri GV, segir það hafa verið nauðsynlegt í kjölfar þess að Herjólfur hóf siglingar í Landeyjahöfn. (meira…)
Nífalt fleiri SMS á sunnudegi þjóðhátíðarinnar

Í fréttatilkynningu frá Símanum kemur fram að fjöldi SMS-skilaboða sem fóru um GSM og 3G senda Símans í Vestmannaeyjum um verslunarmannahelgina, sexfölduðus samanborið við venjulega helgi. Ef Sunnudagur þjóðhátíðarinnar er skoðaður sérstaklega nífaldaðist fjöldi skilaboðanna miðað við venjulegan sunnudag. (meira…)
Lundavarp misferst algerlega í Vestmannaeyjum og víðar um land

Útlit er fyrir að mjög fáar lundapysjur komist á legg í Vestmannaeyjum, Akurey, Ingólfshöfða og Papey í ár. Nú hafa egg ýmist verið afrækt eða pysjurnar drepist fljótlega eftir klak í öllum þeim holum sem Náttúrustofan hefur fylgst með í sumar. Varpárangurinn í Vestmannaeyjum hefur verið slæmur undanfarin ár en aldrei sem nú. Ástandið er […]
Herjólfur hefur flutt um 40 þúsund farþega frá 21. júlí

Á fundi bæjarráðs í gær var eitt mál á dagskrá, flutningar Herjólfs frá 21. júlí og til 4. ágúst síðastliðinn. Á því tímabili hefur Herjólfur flutt alls 35.773 farþegar milli lands og Eyja, 19.564 frá Landeyjahöfn en 16.209 frá Vestmannaeyjum. Fluttir hafa verið 4.865 bílar á tímabilinu, 2.531 frá Landeyjahöfn en 2.334 frá Vestmannaeyjum. Flutningavagnarnir […]
Sveit GV klár
Golfklúbbur Vestmannaeyja teflir fram sveit í 1. deild karla í sveitakeppninni sem fram fer í Hafnarfirði um helgina. Þetta er annað árið í röð sem Eyjamenn eru í efstu deild en GV hefur síðustu ár verið á flakki milli 1. og 2. deildar. Sveitina skipa eftirfarandi: (meira…)
Danskir heimildaþættir um hvíta þræla fjalla m.a. um Tyrkjaránið

Síðasta vor kom til Eyja kvikmyndatökufólk frá Danmarks Radio (DR) en fólkið var aðvinna að þáttagerð um hvíta þræla og múslímska sjóræningja. Í þáttunum var m.a. fjallað um Guðríði Símonardóttur sem numin var á brott í Tyrkjaráninu 1627. Nú eru þættirnir tilbúnir og verða sýndir næstu sunnudaga á DR. (meira…)
�?vissa með Hurst

Heyrst hefur að enski bakvörðurinn James Hurst sé á förum frá ÍBV. Trausti Hjaltason, framkvæmdastjóri ÍBV, segir ekkert staðfest í þeim efnum en viðurkennir þó að Hurst gæti horfið með skömmum fyrirvara kalli Portsmouth á hann. Hurst er á lánssamningi hjá ÍBV til 30. ágúst og hann mun alltaf missa af lokaspretti deildarinnar. Fari hann […]
Herjólfur hafi fortakslausan forgang í Landeyjahöfn
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra hefur sett hafnarreglugerð fyrir Landeyjahöfn, Rangárþingi eystra. Markmið hennar er að leitast við að tryggja örugga aðstöðu til ferjusamgangna milli lands og Vestmannaeyja. Í henni er kveðið á um að áætlunarsigling Vestmannaeyjaferju hafi fortakslausan forgang umfram aðra starfsemi eða rekstur á hafnarsvæðinu. (meira…)
Tökur á Djúpinu hafnar í Eyjum

Tökur kvikmyndarinnar Djúpið eftir Baltasar Kormák hófust í Vestmannaeyjum í dag. Kvikmyndin er byggð á atburðum í tengslum við Helliseyjarslysið 11. mars 1984. Þá fórust fjórir menn en einn komst lífst af með því að synda í land eftir að vélbáturinn Hellisey VE 503 sökk um fimm kílómetra austur af Heimaey. Kvikmyndin er byggð á […]
Falsaðir peningaseðlar í umferð í Eyjum
Lögreglan í Eyjum hafði að mörgu að hyggja í vikunni. Mikill erill var að sinna óskilamunum eftir þjóðhátíð en samkvæmt dagbókarfærslu lögreglunnar gekk vel að koma óskilamunum ár réttan stað. Þá segir einnig að við uppgjör í tveimur verslunum bæjarins, hafi komið í ljós tveir falsaðir peningar, 1000 króna seðill og 5000. Málið er í […]
Leikhópurinn Lotta heimsækir Vestmannaeyjar

Laugardaginn 14. ágúst sýnir Leikhópurinn Lotta nýjasta verk sitt, Hans klaufa í Stakkó í Vestmannaeyjum. Verkið skrifaði Ljóti hálfvitinn Snæbjörn Ragnarsson en auk Hans klaufa koma við sögu aðrar þekktar persónur úr ævintýraheiminum. Þar má til dæmis nefna Öskubusku og froskaprinsinn. Verkið segir frá því þegar Aron prins og aðstoðarmaður hans, Hans klaufi, koma heim […]
Bergur-Huginn fékk ker númer 500.001

Fyrirtækið Promens Dalvík hefur framleitt Sæplastker í 26 ár en framleiðsluna kannast margir Eyjamenn vel við, enda unnið með kerin bæði til lands og sjávar í tengslum við sjávarútveginn í Eyjum. Fyrirtækið afhenti á Fiskideginum mikla ker númer 500.000 og 500.001. Það síðara fékk Magnús Kristinsson, útgerðarmaður Bergs Hugins en útgerðin hefur um áraraðir notað […]
Tilraunalandið í Eyjum

Norræna húsið og Háskóli Íslands verða í dag og á morgun með farandsýningu Tilraunalandsins á Stakkó. Í Tilraunalandinu kynnast börn og ungmenni undraheimum vísindanna í gegnum leik og skemmtun. (meira…)
Lítt sannfærandi gegn neðsta liðinu

Eyjamenn virkuðu lítt sannfærandi gegn botnliði Hauka þegar liðin mættust á Hásteinsvelli í dag. Það virtist vera lítill áhugi almennt í Eyjum fyrir leiknum, aðeins 501 mætti á leikinn og leikmennirnir sjálfir virtust vera hálf áhugalausir, í það minnst í fyrri hálfleik. Eyjamenn lentu undir snemma leiks en höfðu heppnina með sér og náðu að […]