Lítt sannfærandi gegn neðsta liðinu

Eyjamenn virkuðu lítt sannfærandi gegn botnliði Hauka þegar liðin mættust á Hásteinsvelli í dag. Það virtist vera lítill áhugi almennt í Eyjum fyrir leiknum, aðeins 501 mætti á leikinn og leikmennirnir sjálfir virtust vera hálf áhugalausir, í það minnst í fyrri hálfleik. Eyjamenn lentu undir snemma leiks en höfðu heppnina með sér og náðu að […]
Eyjamenn mæta Haukum í dag klukkan 16:00

Karlalið ÍBV tekur í dag á móti botnliði Hauka í 15. umferð Pepsídeildar karla. Leikurinn fer fram á Hásteinsvelli og hefst klukkan 16:00. Eyjamenn misstigu sig gegn hinu Hafnarfjarðarliðinu í síðasta heimaleik og ekkert nema sigur kemur til greina í dag. Heil umferð er í deildinin í dag en hinir fimm leikirnir fara fram í […]
11:0 hjá stelpunum gegn Hetti

Kvennalið ÍBV fór illa með Hött frá Egilstöðum þegar liðin mættust í B-riðli 1. deildar í gær. Leikurinn fór fram á Hásteinsvelli en lokatölur urðu 11:0 fyrir ÍBV. Edda María Birgisdóttir, sem gekk nýverið í raðir ÍBV skoraði fjögur mörk í leiknum en hin unga og efnilega Svava Tara Ólafsdóttir skoraði tvö, eins og hin […]
Fimmtíu þúsund hlustuðu á brekkusönginn

Samkvæmt hlustundartölum Capacent um Verslunarmannahelgina, hlustuðu fimmtíu þúsund manns á útsendingu kvölddagskrár þjóðhátíðarinnar á sunnudaginn. Hápunktur útsendingarinnar var að sjálfsögðu hinn árlegi brekkusöngur en útsendingin stóð frá 21:00 til 01:00. Um 22% þjóðarinnar á aldrinum 12 til 80 ára stilltu á einhverjum tímapunkti á útsendinguna. Þetta er jafnframt sá dagskrárliður í útvarpi í síðustu viku […]
Vestmannaeyjar fá fyrstu einkunn
Íbúar Vestmannaeyjabæjar eru afar stoltir af bænum sínum og náttúru Eyjanna. Margir telja að ekki sé til fallegri bær á landinu og hvergi sé betra að búa. Það getur því verið ákaflega gott að fá staðfestingu á því frá gestum Eyjanna, en bæjarstjórn Vestmannaeyja barst fyrir stuttu póstur þar sem Vestmannaeyjar eru dásamaðar í bak […]
Tryggvi orðinn næst markahæstur

Tryggvið Guðmundsson, leikmaður knattspyrnuliðs ÍBV er orðinn næst markahæsti leikmaður ÍBV í efstu deild frá upphafi. Tryggvi skoraði eina mark Eyjamanna í gær gegn FH og komst um leið upp fyrir Sigurlás Þorleifsson. Lási, eins og hann er jafnan kallaður, skoraði á sínum tíma 60 mörk fyrir ÍBV í efstu deild en Tryggvi hefur nú […]
Tryggvi gaf Gunnleifi �?órstreyju

Tryggvi Guðmundsson leikmaður ÍBV gaf Gunnleifi Gunnleifssyni markmanni FH gamlan íþróttabúning eftir leik liðanna í efstu deild karla í knattspyrnu í kvöld. Treyjan er söguleg þar sem hún er frá þeim árum þegar tvö íþróttafélög voru í Vestmannaeyjum, Þór og Týr. (meira…)
Sanngjarn sigur Íslandsmeistaranna á Hásteinsvelli

FH-ingar unnu sanngjarnan sigur á ÍBV í kvöld, 1:3 en leikurinn fór fram á heimavelli ÍBV. Hásteinsvöllur hefur það sem af er sumars verið mikil gryfja, Eyjamenn hafa ekki tapað þar leik og aðeins fengið á sig þrjú mörk í sex leikjum þegar kom að leiknum gegn FH. En Íslandsmeistararnir sýndu allar sínar bestu hliðar […]
Lögreglan í Eyjum lítur sprengjuárásina mjög alvarlegum augum

Lögreglan í Vestmannaeyjum lítur sprengjuárásina í mannfjöldanum á Þjóðhátíð mjög alvarlegum augum. Litlu mátti muna að mjög illa færi þegar einhvers konar glersprengju var varpað inn í mannfjöldann við aðalsviðið í Herjólfsdal. (meira…)
Sprengja sprakk við fætur ungs manns á þjóðhátíð

Ungur maður sem var gestur á þjóðhátíð slasaðist illa þegar sprengja sprakk við fætur hans. Frá þessu er greint á Pressunni.is en svo virðist sem einhverskonar glersprengju hafi verið kastað inn í stóran hóp fólks fyrir framan stóra sviðið aðfaranótt mánudagsins sem svo sprakk við fætur Hauks Hólm Ármannssonar. Haukur missti heyrnina tímabundið, fékk glerbrot […]
Íslandsmeistararnir í heimsókn í kvöld

Eyjamenn taka á móti sjálfum Íslandsmeisturum FH á Hásteinsvellinum í kvöld í alvöru toppslag Pepsí-deildarinnar en ÍBV er á toppnum ásamt Breiðabliki og FH í því þriðja. Þó munar heilum sjö stigum á liðunum tveimur en ef FH-ingar ætla að blanda sér í toppbaráttuna, þá kemur ekkert til greina hjá þeim nema sigur. Í raun […]
Mikið eftir af óskilamunum

Lögreglan í Vestmannaeyjum sendi í dag um 80 óskilamuni með pósti til viðtakenda víða. Um var að ræða muni sem þjóðhátíðargestir höfðu týnt eða gleymt. Varðstjóri lögreglunnar í Eyjum sagði að mikið hafi verið hringt til að spyrja um óskilamuni eftir hátíðina. (meira…)
Flugfélagið Ernir tekið við flugi milli lands og Eyja

Í dag tók Flugfélagið Ernir við flugleiðinni milli lands og Eyja og af því tilefni var haldin mótttökuathöfn í flugstöðinni. Hörður Guðmundsson, eigandi og framkvæmdastjóri Flugfélagsins Ernis sagði í stuttu ávarpi að hann lofaði því að flugfélagið myndi standa sig í samgöngumálum við Vestmannaeyjar. Elliði Vignisson, bæjarstjóri bauð hið nýja félag velkomið en flugfélagið bauð […]
ÍBV semur við úganskan markvörð

ÍBV hefur fengið markvörðinn Abel Dhaira til liðs við sig en hann kemur til félagsins frá Úganda. „Við erum búnir að semja við hann fyrir næstu tvö ár og þetta er framtíðarhugsun, sagði Heimir Hallgrímsson þjálfari ÍBV við Fótbolta.net í dag. “ (meira…)
Gufan verður ÍBV-útvarp

Á morgun, fimmtudag spilar ÍBV gegn Íslandsmeisturunum í FH en leikur liðanna hefst klukkan 19:15 á Hásteinsvellinum. Af þessu tilefni verður útvarpstöðinni Gufunni breytt í ÍBV-útvarp en klukkan 17:00 munu þeir Geir Reynisson og Júlíus Ingason hita upp fyrir leikinn með viðtölum og upplýsingum um leikinn. ÍBV-útvarpið er á fm 104,7 en stefnan er að […]
Fréttir koma út á morgun
Vegna Þjóðhátíðarinnar koma Fréttir út á morgun, fimmtudag. Blaðið verður borið út seinnipart dags og þá fer það einnig í verslanir í bænum á svipuðum tíma. Meðal efnis í Fréttum morgundagsins, er Þjóðhátíðin, sú stærsta til þessa. Hún er gerð upp í máli og myndum og af mörgu að taka. Þá er gluggað í skattskránna […]
Bragi hættir á fluginu

Í dag eru tímamót í flugsögu Vestmannaeyja. Í fyrsta lagi er í kvöld síðasta áætlunarflug Flugfélags Íslands milli Reykjavíkur og Vestmannaeyja, í bili í það minnsta. En það sem verra er, Bragi Ingiberg Ólafsson hættir um leið störfum en Bragi hefur verið lengur en elstu menn muna upp á flugstöð. Fjölmenn kveðjuathöfn var haldin í […]
Miðaði leikfangabyssu að höfði lögreglumanns
Á þjóðhátíðinni var einn aðili kærður fyrir brot á vopnalögum en hann beindi leikfangabyssu að höfði lögreglumanns sem var staðsettur í lögreglubíl. Byssubófinn var handtekinn og hald lagt á leikfangabyssuna en lögregla lítur þetta mál alvarlegum augum, þar sem ekki er alltaf auðvelt að greina á milli leikfanga og alvöru skotvopna. Þá voru einnig gerðar […]
Gagnrýna bókunarreglur Herjólfs

Formaður þjóðhátíðarnefndar Vestmannaeyja gagnrýnir nýjar bókunarreglur Herjólfs um að farþegar þurfi ekki að gefa upp kennitölur. Hann segir að það geri nefndinni erfiðara fyrir að geta ekki lengur fylgst með aldri hátíðargesta. (meira…)
Vilja 1,7 milljónir fyrir afnot af varahöfn

Fulltrúar Þorlákshafnar krefjast ríflega 1,7 milljóna króna á mánuði í hafnar- og þjónustugjöld fyrir afnot af Þorlákshöfn sem varahöfn fyrir Herjólf. Upphæðin er sú sama og innt var af hendi þegar flutningar milli lands og Eyja fóru að fullu um Þorlákshöfn. (meira…)