Tryggvi orðinn næst markahæstur
Tryggvið Guðmundsson, leikmaður knattspyrnuliðs ÍBV er orðinn næst markahæsti leikmaður ÍBV í efstu deild frá upphafi. Tryggvi skoraði eina mark Eyjamanna í gær gegn FH og komst um leið upp fyrir Sigurlás Þorleifsson. Lási, eins og hann er jafnan kallaður, skoraði á sínum tíma 60 mörk fyrir ÍBV í efstu deild en Tryggvi hefur nú skorað 61 mark. Markahæstur sem fyrr er fyrrum félagi Tryggva í framlínu ÍBV, Steingrímur Jóhannesson en hann skoraði 72 mörk fyrir ÍBV.

Nýjustu fréttir

„Einsi Kaldi lokar þegar ég hef ekki metnað í eldhúsinu lengur“
Frá Heimaeyjargosinu til kostulegra sagna af Vellinum
Nýr sæstrengur en bræðslan gengur fyrir olíu
Herjólfur fellir niður ferðir
Frá Vestmannaeyjum í norska skóla 
Kyrrðarbæn í dag
Þór flutti sjúkling til Landeyjahafnar á hæsta forgangi
Setja frest á viðræður um sorpþjónustu
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.