Eyjamönnum boðið að skoða flugvélar Ernis

Á morgun, miðvikudaginn 4. ágúst, mun Flugfélagið Ernir taka við áætlunarflugi milli Eyja og Reykjavíkur. Af því tilefni er Vestmannaeyingum boðið til samkomu í flugstöðinni í Vestmannaeyjum milli 17:00 og 18:00. Hægt verður að skoða flugvélar sem notaðar verða í áætlunarfluginu ásamt því að hitta forsvarsmenn félagsins og fá upplýsingar um þá þjónustu sem verður […]
Magnaður endir á frábærri hátíð

Það er óhætt að segja að hápunkti þjóðhátíðarinnar hafi verið náð að miðnætti síðasta kvöldsins þegar þjóðsöngurinn var kyrjaður af um 17 þúsund manna brekkukór, blysin voru tendruð og svo sameinuðust allir í þjóðhátíðarsöngnum Lífið er yndislegt. Á hverju ári er boðið upp á þessa einstöku upplifun í Herjólfsdal en nú er hægt að ylja […]
Blautur endir á risa þjóðhátíð 2010

Nú er þjóðhátíð 2010 lokið og gestir hátíðarinnar farnir að tínast til síns heima. Hápunktur gærdagsins var brekkusöngur Árna Johnsen, sem nú naut liðsinnis Jarls Sigurgeirssonar og Sæþórs Vídó. Auk þess var textum laganna varpað upp á skjá og óhætt að segja að þessar breytingar hafi heppnast mjög vel. Aldrei hafa fleiri verið í brekkukórnum […]
Milli 16-17 þúsund manns í brekkusöngnum í gærkvöldi

Nú er Þjóðhátíð Vestmannaeyja 2010 lokið og gestir byrjaðir að streyma til síns heima. Herjólfur mun sigla 8 ferðir næsta sólarhringinn með farþega af þjóðhátíð. Þá eru áætlaðar 32 ferðir með Flugfélagi Íslands til Reyjavíkur og í dag er loftbrú milli Bakkaflugvallar og Eyja með minni vélum. Það byrjaði að rigna þegar leið á nóttina […]
Sól og blíða á öðrum degi þjóðhátíðar

Annar dagur þjóðhátíðarinnar er nú að baki en gestir hátíðarinnar hafa svo sannarlega verið heppnir með veður. Í Eyjum er nú sól og blíða, en dagurinn í gær var líklega einn af betri veðurdögum sumarsins í Eyjum og minnti klæðnaður fólksins meira á það sem þekkist við miðbaug en við suðurströnd Íslands. (meira…)
Engin meiriháttar mál komu upp í nótt
Nokkur erill var hjá lögreglunni í Vestmannaeyjum í nótt við að sinna ýmsum verkefnum í tengslum við þjóðhátið án þess að nein meiriháttar mál kæmu upp. Tveir gistu fangageymslu í morgun vegna líkamsárása. Skýrslutökur yfir þeim fara fram í dag. Nokkur fíkniefnamál komu upp í gær og í nótt. (meira…)
Árni Johnsen fær liðsauka

Samkvæmt áræðanlegum heimildum Eyjafrétta verða tveir stuðboltar með Árna Johnsen í brekkusöngnum. Þetta eru Eyjamennirnir Jarl Sigurgeirsson og Sæþór Vídó sem báðir spila með hljómsveitinni Tríkot. Árni Johnsen hefur einn séð um brekkusönginn undanfarna áratugi en kallar nú til þá Jarl og Sæþór, sem hafa mikla reynslu af gítarspili og stuði. Brekkusöngur Árna er einn […]
�?venju þægir þjóðhátíðargestir

Nóttin var róleg í Vestmannaeyjum miðað við aðfaranótt sunnudags um Verslunarmannahelgi. Að sögn lögreglumanns á vakt voru Þjóðhátíðargestir óvenjurólegir og voru menn því ánægðir með gang mála í Herjólfsdal. Þrír gistu þó fangageymslu en lögreglan benti á að þar væri „ekki uppselt“ ennþá. (meira…)
Vefmyndavél í Herjólfsdal

Hægt er að fylgjast með þjóðhátíðinni í Herjólfsdal í Vestmannaeyjum á mbl.is gegnum vefmyndavél sem sett hefur verið upp á stóra sviðinu og sýnir brekkuna og danspallinn. Útsendingin, sem er í samstarfi við Svar tækni og raftækjavinnustofuna Geisla í Vestmannaeyjum stendur til klukkan 2 í nótt og verður einnig annað kvöld. (meira…)
Lögregla áætlar að 15 þúsund manns hafi verið í Dalnum í nótt
Stöðugur straumur gesta hefur verið síðasta sólarhringinn til Eyja og áætlar lögregla nú að fjöldi gesta sé kominn í 15 þúsund og enn eru margir væntanlegir í dag, kvöld og á morgun. Nokkur erill var hjá lögreglunni í Vestmannaeyjum síðustu nótt, en ekki komu upp nein meiriháttar óhöpp. Ein líkamsárás var kærð en þar var […]
Mikil og góð stemmning í Herjólfsdal í gær

Fyrsti sólarhringur þjóðhátíðar Vestmannaeyja gekk í flesta staði mjög vel í gær. Þjóðhátíðin var sett við hátíðlega athöfn um miðjan dag í blíðskaparveðri. Almennt er talið að sjaldan hafi jafn margir verið við setningu þjóðhátíðarinnar og í ár og fjölmargir mættu prúðbúnir í Dalinn. Eftir setningum tók við barnadagskrá og heimamenn héldu veislur í hvítu […]
15.000 á methátíð í Eyjum

Þjóðhátíð Vestmannaeyja er sú fjölmennasta til þessa en um 15.000 manns eru nú í Eyjum. Ein líkamsárás hefur verið kærð eftir nóttina. Lögregla segir hátíðina ganga ótrúlega vel miðað við mannfjölda. Tveir 17 ára strákar lentu í áflogum í Herjólfsdal í nótt og í kjölfarið barst kæra um líkamsárás til lögreglu. (meira…)
Bílastæðin við Landeyjahöfn full

Nú eru öll þau 2000 bílastæði, sem búið var að útbúa í Landeyahöfn, orðin full. Eimskip segir, að ferðalangar, sem ekki eigi bókaða ferð fyrir bílinn sinn með til Eyja, verði að leita annara ráða. Í tilkynningu frá Eimskip segir Ólafur Hand, markaðsstjóri félagsins að fjöldinn sem sæki Vestmannaeyjar heim á þjóðhátíð sé búinn að […]
Eðlilegra að heyra í manni hljóðið áður en lagt var af stað

„Það hefur tvisvar verið haft samband við mig vegna þessarar myndar en í bæði skiptin var það eftir að búið var að ákveða að gera hana. Hefði kannski verið eðlilegra að heyra í manni hljóðið áður en lagt var af stað en greinilega hefur maður lítið að segja um þetta.“ sagði Guðlaugur Friðþórsson, um myndina […]
�?etta er þakklátt starf

Munavarsla hefur verið í boði á Þjóðhátíð í mörg ár, fyrst í gámum en flutti inn í Herjólfsbæ þegar hann reis fyrir nokkrum árum. Þar er aðstaða til fyrirmyndar og geta þeir sem nýta sér þjónustu munavörslunnar gengið að hlutunum vísum þegar þeir þurfa á þeim að halda. Þetta er þakklátt starf enda mikill munur […]
Áætlar að í gærkvöldi hafi sjö þúsund verið í Eyjum
Mikill fjöldi gesta eru nú þegar mættir á þjóðhátíð Vestmannaeyja og í gærkvöldi áætlar lögregla að á sjöunda þúsund manns hafi verið komnir til Eyja og stöðugt hafi bæst við í nótt og morgun. Töluverður erill var hjá lögreglunni í Vestmannaeyjum sl. nótt. Sex fíkniefnamál komu upp í gærkvöldi og í nótt, í einu málinu […]
Tveggja tíma akstur frá Reykjavík til Landeyjahafnar

Þeir sem hyggjast aka frá Reykjavík til Landeyjarhafnar þurfa að gera ráð fyrir 2 klukkustunda akstri ef aðstæður eru góðar. Hafa skal í huga að á leiðinni er ekið í gegnum þrjá þéttbýliskjarna þar sem hraði er takmarkaður miðað við það sem almennt gerist á leiðinni. Um Verslunarmannahelgina má án efa búast við mikilli umferð […]
Herjólfur tafðist um þrjá tíma

Þriggja tíma töf var á ferð Herjólfs frá Landeyjahöfn til Vestmannaeyja í nótt. Skipið sem átti að leggja af stað klukkan þrjú fór ekki fyrr en klukkan sex í morgun. Óhagstæð sjávarskilyrði urðu til þess að ekki var nóg dýpi í höfninni og sat Herjólfur fastur um tíma. Verið er að athuga með ferðina klukkan […]
Eyjastúlkur öruggar í úrslit 1. deildar

Kvennalið ÍBV lék í kvöld gegn Fjölni í B-riðli 1. deildar kvenna en leikurinn fór fram við frekar erfiðar aðstæður á Hásteinsvellinum. Völlurinn sem slíkur var ekki slæmur heldur veðrið, því á meðan leik stóð var sterkur vindur á annað markið og auk þess rigning lengst af. Eyjastúlkur léku gegn vindinum í fyrri hálfleik en […]
�?s í verslunum Eyjanna

Þjóðhátíðargestir streyma til Vestmannaeyja og álag eykst á ýmsum sviðum bæjarfélagsins. Í fyrra mynduðust biðraðir við matvöru- og áfengisverslanir á tímabili, enda margfaldast íbúafjöldinn yfir verslunarmannahelgina. Sighvatur Jónsson spjallaði við viðskiptavini og starfsfólk matvöruverslunar í ösinni í Vestmannaeyjum í gær. (meira…)