�?trúleg skemmdarverk

Það er ljóst að einhverjir sem eiga mjög bágt hafa verið á ferðinni í miðbænum í gær. Í morgun blasti ekki fögur sjón við okkur sem fórum um miðbæinn okkar. Aspartrén sem glatt hafa augu okkar allra bæði að sumarlagi sem og á vetrarmánuðum, þá skreytt ljósaseríum, hafa orðið fyrir barðinu á skemmdarvargi eða vörgum […]
Löggæsla efld til muna
Löggæsla hefur verið efld frá fyrra ári og fíkniefnalöggæsla er öflug eins og alltaf áður. Nú verður mikil löggæsla og ekki síst fíkniefnalöggæsla í Landeyjahöfn á vegum lögreglunnar á Hvolsvelli sem njóta aðstoðar lögreglunnar á Selfossi. Að auki mun sérstakt teymi fíkniefnalögreglumanna á vegum ríkislögreglustjóra sinna eftirliti og munu koma yfir til Eyja til aðstoðar […]
Gestir í Herjólfsdal gætu orðið fjórtán þúsund í ár

Ríflega 11.600 farþegar eiga bókað far til Eyja vikuna og dagana fyrir þjóðhátíð en reikna má með að einhver hluti farþega með Herjólfi fyrri part viku hafi verið í dagsferðum. Ef farið er yfir flutningstölur frá síðustu þjóðhátíð þá komu 9.400 þjóðhátíðargestir með Herjólfi og flugi en nú má allt eins má reikna með um […]
Nýja tilraunin gekk vel

Í dag var gerð áhugaverð tilraun þegar reynt var að koma skipulagi á tjöldun hvítu tjaldanna á þjóðhátíð. Til þessa hefur verið hálfgert skipulagsleysi þegar kemur að því að finna tjaldinu pláss en nú var ákveðið að láta slag standa, hælun tjaldplássa yrði ekki leyfð fyrr en á slaginu 18:00 og var fengin fallbyssa til […]
Allt á fullu í Landeyjahöfn

„Tjaldbúarnir og þeir sem ætla á þjóðhátíð fara að koma. Traffíkin í dag hefur ekkert verið meiri en venjulega þar sem það hefur alltaf allt verið fullskipað frá því að höfnin opnaði,“ segir Sigmar Jónsson. Hann segir farið að bæta við ferðum á morgun en þá verða farnar átta ferðir. Farnar verði sex, sjö og […]
Tjöldun hefst í kvöld klukkan 18.00

Í dag klukkan 18.00 hefst tjöldun hvítu tjalda þjóðhátíðarinnar en þá finna heimamenn tjaldinu sínu stað. Gera á tilraun í ár með að jafna leikinn þannig að allir fari af stað á sama tíma, nema hvað starfsmenn þjóðhátíðarnefndar fá að velja sér pláss á undan öðrum og eru það laun þeirra. Oftast nær er talsverður […]
Smartmedia færir þér þjóðhátíðardagskrána í tjaldið

Á síðasta ári tóku starfsmenn Smartmedia sig til og prentuðu út og plöstuðu dagskrá Þjóðhátíðarinnar og dreifðu í öll þjóðhátíðartjöldin í Herjólfsdal. Hlaut þetta framtak góð viðbrögð enda gott að eiga dagskránna plastaða og fína í tjaldinu. (meira…)
ÍBV tókst það sem KR tókst ekki

Eyjamenn hafa samið við suður-afrísku knattspyrnukonuna Noko Matlou sem kjörin var besti leikmaður Afríku í febrúar 2009. Hún er þegar komin með leikheimild og má því leika með 1. deildarliðinu gegn Fjölni á fimmtudagskvöld. Matlou hefur áður verið í fréttum hér á landi því í fyrra reyndi KR að fá hana til sín. Ekkert varð […]
Unnið að bílastæðamálum í Landeyjahöfn

Stýrihópur vegna þjóðhátíðar fundaði í vikunni en á fundinum var m.a. rætt um aðstöðu þjóðhátíðargesta í Landeyjahöfn. Aðstaðan er ekki tilbúin og því ljóst að vandamál gæti skapast við afgreiðslu skipsins og ekki síður fyrir þá fjölmörgu þjóðhátíðargesti sem hyggjast skilja bíla sína eftir við höfnina og halda þannig til Eyja. Nú er hins vegar […]
�??Upplifi �?jóðhátið eins og eitt stórt ættarmót�?�

Þjóðhátíðarblað Vestmannaeyja 2010 er komið. Blaðið 72 síður og fullt af lesmáli sem og skemmtilegum myndum frá Þjóðhátíðum í gegnum árin. Í blaðinu í ár er skemmtileg grein um þjóðhátíðarlögin eftir Guðrún Jónsdóttir þar sem hún fjallar um þau frá sínum bæjardyrum. Viðtal við ítarlegt Ingólf Þórarinsson poppstjörnu og knattspyrnukappa, létt spjall við Hönnu Birnu […]
�?jóðhátíðarlagið í efsta sæti vinsældarlista Rásar 2

Eins og svo oft áður eru misjafnar skoðanir á þjóðhátíðarlagi ársins en KK var fenginn til að semja og leika þjóðhátíðarlagið í ár. Það gerði hann með laginu Viltu elska mig á morgun sem er ljúf ballaða með áherslum KK. Flestir eru þó sammála um að lagið sé fallegt enda situr það nú á toppi […]
Guðbjörg skattadrottning

Guðbjörg M. Matthíasdóttir, aðaleigandi Ísfélagsins í Vestmannaeyjum greiðir hæstu skatta í ár rétt tæpar 343 milljónir króna. Ingi Guðjónsson, lyfjafræðingur í Kópavogi, er í 2. sæti og greiðir um 198 milljónir og Þorsteinn Hjaltetsted Vatnsendabóndi er í 3. sæti og greiðir tæpar 120 milljónir króna. (meira…)
Sjómannaafslátturinn hækkar vegna strandveiða
Sjómannaafsláttur hækkaði nokkuð milli áranna 2008 og 2009 eða um 17,4%, en nú fengu 5720 sjómenn samtals 1297 milljónir í sérstakan skattaafslátt vegna sjómannsstarfa. Ríkisskattstjóri segir, að um meiri hækkun sé að ræða en sést hafi í mörg ár. Líklega skýrist það af svokölluðum strandveiðum sem teknar voru upp á síðasta ári. (meira…)
Tveir fíkniefnaakstrar í Vestmannaeyjum
Lögreglan í Vestmannaeyjum hefur stóraukið umferðareftirlit þegar nær dregur þjóðhátíð sem fram fer næstu helgi. Í dag voru tveir ökumenn kærðir fyrir akstur undir áhrifum fíkniefna, annar á fertugsaldri en hinn á þrítugsaldri. Í öðru tilfellinu var gerð húsleit á heimili ökumannsins og fundust nokkur grömm af hassi við þá leit. Þá var einn ökumaður […]
12 ára gamall með nýtt þjóðhátíðarlag

Ágúst Emil Grétarsson er 12 ára gamall Eyjapeyi með mikla hæfileika. Þrátt fyrir ungan aldur, er Ágúst Emil búinn að semja nýtt þjóðhátíðarlag sem heitir Í Dalnum með þér. Ágúst lét sér ekki nægja að semja lag og texta, heldur fékk hann Eyjahljómsveitina Tríkot til að spila lagið í upptökum í gær hjá Árna Óla […]
Bæjarstjórn ætlar að borga hlut samgönguráðuneytisins

Fyrr í sumar sendu Vestmannaeyjabær og Eimskip sameiginlegt tilboð til Samgönguráðuneytisins um fjölgun ferða úr 1360 á ári í 1485, sem myndi þýða fjórar ferðir alla daga ársins. Samkvæmt núverandi áætlun er aðeins gert ráð fyrir þremur ferðum mánudag til fimmtudags og á laugardögum yfir háveturinn. Kostnaður við fjölgun ferða var áætlaður rúmar 18 milljónir […]
Erum mætt á �?jóðhátíð

Við erum að sjálfsögðu mætt á Þjóðhátíð og búin að koma okkur fyrir í Eyjabúð. Við bjóðum Eyjamenn sérstaklega velkomna til Nova og hvetjum alla til að koma við hjá okkur og fá kók í gleri. Okkur er sönn ánægja að segja frá því að 3G farsíma- og netsamband Nova hefur verið stórbætt í Vestmannaeyjum. […]
�?flug löggæsla á Suðurlandi um Verslunarmannahelgina
Mikið verður lagt í eftirlit lögreglunnar um komandi Verslunarmannahelgi. Ljóst er af bókunum til Vestmanneyja að þar verður mjög fjölmennt en búast má við mikilli umferð um allt Suðurland. Yfirmenn löggæslu á Selfossi, á Hvolsvelli og í Vestmanneyjum hittust á fundi í morgun þar sem farið var yfir skipulag löggæslunnar. (meira…)
Ekkert vesen

Hljómsveitina Silfur þarf varla að kynna fyrir Eyjamönnum en sveitin hefur spilað reglulega fyrir gesti skemmtistaðarins Lundans. Sveitin hefur nú sent frá sér sinn fyrsta geisladisk en diskurinn fékk nafnið Ekkert vesen. Á honum má finna 11 íslensk lög, þar af tvö þekkt lög sem bandið tók upp á sína arma. Það er Grýlulagið Valur […]
Gleymdu sér í þjóðhátíðarspenningnum og sungu hástöfum

Lögreglan var í síðustu viku kvödd að heimahúsi einu hér í bæ en tilkynnt hafði verið um mikinn hávaða frá íbúðinni. Þegar að var komið, kom í ljós að þar voru vinir samankomnir sem höfðu gleymt sér í þjóðhátíðarspenningnum. Spiluðu þeir á gítar og sungu sem mest þeir máttu en lofuðu að hemja sig fram […]