Bæjarstjórn ætlar að borga hlut samgönguráðuneytisins
Fyrr í sumar sendu Vestmannaeyjabær og Eimskip sameiginlegt tilboð til Samgönguráðuneytisins um fjölgun ferða úr 1360 á ári í 1485, sem myndi þýða fjórar ferðir alla daga ársins. Samkvæmt núverandi áætlun er aðeins gert ráð fyrir þremur ferðum mánudag til fimmtudags og á laugardögum yfir háveturinn. Kostnaður við fjölgun ferða var áætlaður rúmar 18 milljónir og höfðu Vestmannaeyjabær og Eimskip boðist til að borga rúm 2/3 hluta kostnaðarins og að ráðuneytið myndi leggja til það sem upp á vantaði. Í svarbréfi ráðuneytisins sem tekið var fyrir á bæjarráðsfundi í dag, kemur fram að ekki sé tímabært að taka afstöðu til beiðni bæjarins og Eimskips. Bæjarráð býðst nú til að borga einnig hluta Samgönguráðuneytisins.

Nýjustu fréttir

„Einsi Kaldi lokar þegar ég hef ekki metnað í eldhúsinu lengur“
Frá Heimaeyjargosinu til kostulegra sagna af Vellinum
Nýr sæstrengur en bræðslan gengur fyrir olíu
Herjólfur fellir niður ferðir
Frá Vestmannaeyjum í norska skóla 
Kyrrðarbæn í dag
Þór flutti sjúkling til Landeyjahafnar á hæsta forgangi
Setja frest á viðræður um sorpþjónustu
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.