Hvanndalsbræður og Ljótu hálfvitarnir starta þjóðhátíð í Eyjum 2010 annað kvöld

Árum saman hafa þessar tvær af vinsælustu „Norðlensku“ hljómsveitum landsins, leitað leiða til að halda sameiginlega tónleika í höfuðstað Vestmannaeyjaklasans en þrátt fyrir ráðleggingar frá helstu stjörnuspekingum, fjármálaráðgjöfum, og borðtennislandsliðinu hefur ekki tekist að koma saman trúverðugri dagsetningu á slikan konsert. (meira…)
Tjöldum saman á miðvikudaginn klukkan 18

Þjóðhátíðarnefnd hefur ákveðið að tjöldun hvítra hústjalda í Herjólfsdal verði leyfð á miðvikudaginn klukkan 18, degi fyrr en vanalega. Er þetta liður í samfélagsverkefni nefndarinnar og fjölmiðla í Vestmannaeyjum með það að markmiði að færa tjöldunina í betra horf. Er sérstaklega horft til þess að varðveita þá áralöngu hefð sem hefur skapast fyrir því að […]
Hermann í viðræður

Hermann Hreiðarsson landsliðsmaður í knattspyrnu er að hefja viðræður við enska 1. deildarfélagið Portsmouth um nýjan samning og vonast til að vera áfram hjá félaginu á komandi leiktíð. Hermann sleit hásin í mars og missti því af síðustu vikum Portsmouth í ensku úrvalsdeildinni í bili, en er á réttri leið með að jafna sig á […]
Full flugumferðarstjórn í Eyjum um verslunarmannahelgina
Flugvellinum í Vestmannaeyjum verður stjórnað með sama hætti um verslunarmannahelgina og í Keflavík, Reykjavík og á Akureyri, að sögn Friðþórs Eydal hjá Isavia. Í stað þess að einn starfsmaður sinni upplýsingaþjónustu í flugturninum eins og verið hefur í Vestmannaeyjum munu fimm starfsmenn sinna honum á vöktum yfir verslunarmannahelgina og koma fjórir þeirra frá Reykjavík. (meira…)
�??Menn, konur og börn leita Vitans�??

Vinir Ketils Bónda er félagsskapur ungra manna í Vestmannaeyjum. Hópurinn hefur staðið fyrir ýmsum skemmtilegum uppákomum og hafa síðust ár gefið út sitt eigið þjóðhátíðarblað sem heitir því frumlega nafni Þroskahefti. Nú hafa Vinirnir stigið skrefi lengra og gefa út lag í tilefni þjóðhátíðarinnar. Lagið sjálft er reyndar gamalt og er eftir þá Axel Einarsson […]
�?jóðhátíðarbingó í kvöld
Í kvöld klukkan 20:00 verður Risaþjóðhátíðarbingó í Höllinni. Í boði eru glæsilegir vinningar en fyrsti vinningur er miði í Dalinn og þjóðhátíðarkarfa þar sem má finna ýmsan varning í tjaldið. Þá er meðal annarra vinninga háltími á Segway fyrir tvo, gjafabréf í ýmsum verslunum og margt, margt fleira. (meira…)
Siglingar í Landeyjahöfn

Siglingar í Landeyjahöfn eru bannaðar öllum skipum nema Herjólfi. Þetta er ákvörðun Siglingastofnunar. Að þeirra sögn meðan reynsla er að komast á siglingar Herjólfs þangað. Mér finnst þessi ákvörðun stofnunarinnar arfavitlaus. Virðist þjóna þeim tilgangi einum að Eimskip fái ekki samkeppni um fólksflutninga til og frá Eyjum. Minnir um margt á Loftleiðir á sínum tíma. […]
Tólf marka leikur hjá KFS

KFS vann góðan sigur á KFK í B-riðli 3. deildar á laugardaginn. Heil tólf mörk voru skoruð í leiknum, þar af sjö í síðari hálfleik en lokatölur urðu 8:4 eftir að staðan í hálfleik hafði verið 3:2. Hreint ótrúlegar lokatölur eftir 90 mínútna leik. Stefán Björn Hauksson skoraði þrennu fyrir KFS, Einar Kristinn Kárason tvö […]
Lundaveiði hófst á laugardag

Lundaveiðitímabilið hófst á laugardaginn 24. júlí en tímabilið í ár stendur aðeins í fimm daga, til 29. júlí sem er næsti fimmtudagur. Lundaveiðitímabilið var einnig í fimm daga í fyrra en slæm staða lundastofnsins gerir það að verkum að lundaveiðitímabilið er stytt úr 55 dögum í aðeins 5. Þetta ákvað bæjarstjórn Vestmannaeyja á fundi sínum […]
Sigur í kaflaskiptum leik

ÍBV hafði betur gegn Val í dag á Hásteinsvellinum en lokatölur urðu 3:1. Leikurinn var afar kaflaskiptur, Valsmenn voru sterkari í fyrri hálfleik og voru verðskuldað yfir 0:1 í hálfleik. En Eyjamenn sýndu sparihliðarnar í seinni hálfleik, skoruðu tvö gullfalleg mörk, fyrst varamaðurinn Damien Justin Warlen þegar hann þrumaði boltanum inn af 25 metra færi […]
Bara blíða á þjóðhátíðinni – eins langt og spár ná

Miðað við þær upplýsingar sem nú liggja fyrir hjá flutningsaðilum, má reikna með svipuðum fjölda gesta til Eyja á þessa þjóðhátíð og var í fyrra. Og veðrið sem skiptir svo miklu máli ætti ekki að trufla þjóðhátíðarhald, allavega eins langt og veðurspár hafa birst. Á veðurvefnum belgingur.is er veðurspá fram á laugardag. (meira…)
Sterkar Stjörnur unnu ÍBV-stúlkur

Í blíðskaparveðri á Hásteinsvelli í dag, þurftu ÍBV stúlkur að sætta sig við tap í undanúrslitum Visa bikarsins. Þær fundu ofjarla sína í Stjörnustúlkum sem unnu verðskuldað og sem leika þá til úrslita við Val um bikarmeistaratitlinn. En árangur ÍBV stelpanna í bikarkeppninni hefur samt verið afar góður, að komast í undanúrslitin. (meira…)
Knattspyrna og aftur knattspyrna

Það er mikið um að vera á knattspyrnusviðinu í Eyjum í dag. Auk bikarleiks ÍBV og Stjörnunnar kl. 14.00 verður einnig leikur KFS og KFK á Helgafellsvelli og hefst sá leikur einnig kl. 14.00. Þessi tvö lið berjast um laust úrslitasæti í B-riðli 3. deildar. (meira…)
Stórleikur í dag hjá stelpunm

Í dag klukkan 14:00 leikur kvennalið ÍBV stærsta leik liðsins í áraraðir þegar liðið tekur á móti úrvalsdeildarliði Stjörnunnar í undanúrslitum bikarkeppninnar. ÍBV leikur sem kunnugt er í 1. deild Íslandsmótsins en leikurinn fer fram á Hásteinsvellinum. Í hinni viðureign undanúrslitanna mætast svo úrvalsdeildarliðin Valur og Þór/KA. (meira…)
Sjúkraflugvél verður staðsett í Eyjum yfir �?jóðhátíðina
Gengið hefur verið frá samkomulagi milli Sjúkratrygginga Íslands og Mýflugs, um að staðsett verði sjúkraflugvél í Eyjum yfir Þjóðhátíðina. Er kostnaður vegna þess 725 þúsund krónur. (meira…)
Veitingahús opnað í Höllinni yfir þjóðhátíð

Nú hafa þeir Björgvin Þór Rúnarsson, Hallarbóndi og Einsi Kaldi tekið saman höndum fyrir þjóðhátíð og hafa ákveðið að opna veitingahús í Höllinni. Með því að opna staðinn segjast þeir félagar vera mæta brýnni þörf fyrir stóran og rúmgóðan veitingastað, eins og segir í fréttatilkynningu frá þeim en hana má lesa hér að neðan. (meira…)
�?viðkomandi umferð skipa og báta um Landeyjahöfn bönnuð

Öll umferð annarra skipa og báta en Herjólfs um Landeyjahöfn er bönnuð. Þetta segir í fréttatilkynningu frá Siglingastofnun sem send var út nú síðdegis en ástæðan er sú að bannið stendur á meðan reynsla er fengin á siglingar ferjunnar um höfnina og vegna mikils álags fram yfir þjóðhátíð. Einnig er nauðsynlegt að takmarka siglingar út […]
DJAMM!

Símafyrirtækið Ring fer skemmtilega leið til að vekja athygli á fyrirtækinu en auglýsingar á vegum Ring hefur verið að birtast í ljósvakamiðlum undanfarið. Steindi jr. fer með aðalhlutverkin í auglýsingunum á vegum fyrirtækisins en honum barst óvæntur liðsauki í nýjustu auglýsingunni. Þar fer þingmaðurinn Árni Johnsen hamförum en sjón er sögu ríkari. Auglýsinguna má sjá […]
Gufan hitar upp fyrir �?jóðhátíð Vestmannaeyja 2010

Útvarpsstöðin Gufan fer aftur í loftið fyrir Þjóðhátíð Vestmannaeyja. Gufan var endurvakin í fyrra í tilefni þess að þá voru 20 ár liðin frá því að stöðin var fyrst starfrækt. Leikurinn verður endurtekinn nú og hefjast útsendingar með formlegum hætti í fyrramálið, föstudaginn 23. júlí, klukkan 9 og standa yfir hátíðina. Gufan hitar upp fyrir […]
Búið að lækka breytingagjald í Herjólf í 500 krónur

Ein af þeim nýjungum sem voru teknar upp við afgreiðslu Herjólfs þegar skipið hóf siglingar í Landeyjahöfn, var breytingagjald á pöntunum. Breytingagjaldið var upphaflega 1.000 krónur en hefur nú verið lækkað í 500 krónur. Hildur Sævaldsdóttir, hjá Herjólfi segir nauðsynlegt að hafa breytingagjald til að minnka óþarfa pantanir í skipið. (meira…)